Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201632 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Pennagrein Byggðaþróun á Íslandi ber sífellt aukin merki nýlendustefnu höfuð- borgarsvæðisins gagnvart lands- byggðinni en sífellt hærra hlutfall af landsmönnum býr á höfuðborg- arsvæðinu. Síðustu 18 árin hækk- aði hlutfall landsmanna búsett- um á höfuðborgarsvæðinu úr 60% í 64% og yfir 80% af fjölgun íbúa varð þar. Innan við 10% af fjölgun landsmanna varð utan höfuðborg- arsvæðisins og Suðurnesja. Mik- il hagræðing hefur orðið í sjávar- útvegi og hefðbundnum landbún- aði og störfum fækkað í þessum at- vinnugreinum en ný störf hafa ekki skapast í staðinn. Þjónustugrunnur- inn á landsbyggðinni hefur verið að veikjast. Uppgangur ferðaþjónustu hefur ekki skapað nægilegan fjölda nýrra heilsársstarfa á landsbyggðinni og þrengt er að opinberri þjónustu. Í opinberri umræðu og stjórn lands- ins má sjá mörg dæmi um hvernig þessi nýlendustefna birtist en hér skulu aðeins nokkur nefnd: Sjávarútvegurinn Endalausar kröfur eru um skattlagn- ingu á sjávarútveg í því skyni að færa fjármuni frá fyrirtækjum á lands- byggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Enginn hljómgrunnur er fyrir því að geta sjávarútvegsins til að greiða sér- stakan skatt sé fyrst og fremst nýtt til að stuðla að uppbyggingu nýrra at- vinnutækifæra í þeim byggðum sem hafa orðið undir í hinni hörðu sam- keppni sem innleidd var í sjávarút- vegi. Landbúnaðurinn Settar eru á deilur um styrki til land- búnaðar langt umfram tilefni og hlutfallslegt umfang styrkja og ann- ars stuðnings við landbúnaðinn. All- ar búvörur og grænmeti vega að- eins 6,6% af útgjöldum heimilanna. Til samanburðar eru útgjöld vegna áfengis og tóbaks 3,1%, bíla- og bensínreikningurinn 14,1%, hús- næðisliðurinn 20,7% og sífellt hærra hlutfall útgjalda er til þjónustuliða. Öll kindakjötsframleiðsla sauðfjár- bænda er sambærileg við það magn af mat sem fer í gegnum tvo til þrjá frystitogara en samt er eins og efna- hagur landsmanna standi og falli með stuðningi við sauðfjárrækt. Ferðaþjónustan Ferðaþjónustan byggist upp að miklu leyti á forsendum höfuð- borgarsvæðisins. Ferðamenn dreif- ast aðallega frá höfuðborgarsvæð- inu út á land þar sem uppbygging innviða er stórlega vanrækt vegna þess að tekjur af ferðamönnum skila sér ekki til viðkomandi sveit- arfélaga eða annarra þeirra sem þurfa að bera kostnað af því verki. Hlutdeild erlendra ferðamanna í útgjöldum einkaneyslu er orðin um 20% og samsvarandi hlutdeild tekna af neyslusköttum skilar sér í ríkissjóð. Samt er endalaus vand- ræðagangur við að fjármagna inn- viði ferðaþjónustu á landsbyggð- inni. Orkumálin Orkuauðlindir Íslendinga eru að langstærstum hluta á landsbyggð- inni. Þar er víða áhugi á að nýta þær á sjálfbæran hátt í þágu íbú- anna og almennur stuðningur við það í viðkomandi byggðarlögum. En í flestum tilfellum þegar nýt- ing orkuauðlinda og iðnaðarupp- bygging kemst á dagskrá fer af stað mikil mótmælaalda og andstaða frá fólki utan svæðis sem vill að orku- auðlindirnar séu helst ekki nýtt- ar yfirleitt. Þá er reynt að búa til fleyg á milli aðila í ferðaþjónustu og þeirra sem styðja uppbyggingu iðnaðar. Heilbrigðismálin Heilbrigðiskerfið hefur þróast á forsendum nýlenduskipulagsins. Á tiltölulega fáum árum hafa heil- brigðisstofnanir á landsbyggðinni verið skornar markvisst niður og starfsemin flutt til Landsspítalans fyrst og fremst. Allt í nafni hag- ræðingar. Og Landsspítalinn hefur jafnan talið sig geta tekið við stærra hlutverki. Nú þegar Landsspítalinn kvartar undan of miklu álagi dett- ur engum í hug að létta af honum byrðinni og flytja þjónustuna aftur til síns heima sem þó væri eðlilegt og í leiðinni byggja upp sérhæfð- ar þjónustueiningar á landsbyggð- inni. Bygging nýs Landsspítala er í sjálfu sér hagkvæm aðgerð en hún mun væntanlega líka festa enn frekar í sessi samþjöppun þjónust- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Menntamálin Menntakerfið þróast á svipuðum forsendum, sértaklega háskóla- kerfið. Háskólar á landsbyggðinni eru í eilífri baráttu og mæta litlum skilningi. Það er helst Háskólinn á Akureyri sem hefur fengið svig- rúm til uppbyggingar en landbún- aðarskólarnir sannarlega lent fyrir niðurskurðarhnífnum. Háskóli Ís- lands hefur hins vegar fengið sér- meðferð og nú síðast með því að ákveðið hefur verið í fjármálaáætl- un að efla hann sérstaklega með 3,7 milljarða framlagi til Húss ís- lenskra fræða. Það er að sjálfsögðu pólitísk ákvörðun. Samgöngumálin Samgönguframkvæmdir og við- hald samgöngumannvirkja hafa verið vanrækt mörg undanfarin ár. Í fyrra voru vegaframkvæmd- ir t.d. 37% minni en að meðal- tali á árunum 2000 – 2009. Það bitnar á landsbyggðinni þrátt fyr- ir að Reykvíkingar hafi nánast af- salað sér alvöru samgöngufram- kvæmdum fyrir bílaumferð en vilja helst þrengja götur borgarinnar og gengu svo langt að reyna í leiðinni að leysa húsnæðisvanda sinn með fuglahúsum á Hofsvallagötunni. Þrengt er að flugvellinum í höfuð- borginni sem gerir landsbyggðinni erfiðara fyrir. Húsnæðismálin Nýlendustefnunni hefur fylgt mik- il hækkun á húsnæðisverði á höf- uðborgarsvæðinu umfram lands- byggðina. Þannig var t.d. fer- metraverð í fjölbýli á árinu 1995 46% hærra í Reykjavík en í Borg- arbyggð. Á árinu 2015 var munur- inn orðinn 110%. Þessi þróun hef- ur haft í för með sér gífulega skatt- frjálsa eignamyndun og auðssöfnun fyrir íbúa Reykjavíkur og nágrenn- is meðan íbúar landsbyggðarinn- ar hafa setið eftir. Raunhækkunin í Borgarbyggð er 12% en í Reykja- vík 88% á þessum tíma. Atkvæðavægið Mikil umræða er nú um nauðsyn þess að jafna vægi atkvæða milli kjördæma og fast sótt að þeirri málamiðlun sem náðist við síðustu kjördæmabreytingu. Því er haldið fram að jafnt vægi atkvæða sé sér- stakt mannréttindabrot. Þó er það svo að fjölmargir þeirra sem berjast fyrir jöfnu vægi atkvæða vilja ganga í Evrópusambandið og telja það einn af helstu kostum við inngöng- una að við fáum svo mikil áhrif með ríflegum atkvæðisrétti miðað við stærri þjóðir s.s. Þjóðverja. Ákvörð- un um atkvæðavægi byggir á mörg- um sjónarmiðum og niðurstaðan verður alltaf málamiðlun. En bar- áttan fyrir jöfnu vægi atkvæða nú er enn einn þátturinn í nýlendustefn- unni gagnvart landsbyggðinni. Áhugalausir ráðherrar Þessi mál eru mér sérstaklega hug- leikin núna þegar Háskólinn á Bif- röst hefur verið að sækjast eftir því að fá til sín lögreglunám á háskóla- stigi. Eins og stjórnarflokkarnir hafa talað um byggðamál mætti reikna með því að svona „moli“ gæti hugs- anlega mátt hrökkva norður fyrir Hvalfjörð því að þetta er ný starf- semi og ekki neitt af neinum tekið þótt Háskólinn á Bifröst fengi þetta mikilvæga verkefni sem yrði til þess að styrkja verulega starfsemi skól- ans. En þá er eins og innanríkisráð- herra og menntamálaráðherra sem hafa haft með málið að gera grípi mikið áhugaleysi og embættis- mennirnir látnir ráða ferðinni sem setja málið í „faglegt“ valferli sem er aðallega sniðið fyrir Háskóla Ís- lands. Háskólanum á Bifröst var þá vísað frá með bolabrögðum, þrátt fyrir að skólinn hefði algjör- lega verið inni í myndinni á öllum fyrri stigum málsins og viðurkennt að skólinn gæti gert þetta mjög vel (eins og hinir háskólarnir líka). Þess má geta að engin „fagleg“ hugmyndasamkeppni fór fram um hvernig best væri að nýta 3,7 millj- arða í fjárfestingarfé í háskólakerf- inu þegar ákvörðun var tekin um Hús íslenskra fræða. Þá var hægt að taka pólitíska ákvörðun enda byggingin á réttum stað. HÍ, HR og HA hafa allir verið efldir með pólitískum ákvörðunum. HA hefur orðið myndarlegur skóli og fest sig í sessi fyrir harðfylgi norðlenskra þingmanna. HR fékk Tækniskól- ann til að efla kennslu í tæknigrein- um og HÍ hefur eðlilega verið efld- ur með pólitískum sérkjörum allan sinn langa starfstíma. Því var ekki óeðlilegt að Háskólinn á Bifröst fengi einu sinni eitt minni háttar pólitískt framlag til að styrkja skól- ann til lengri tíma. Ráðlaus aðstoðarráðherra Aðstoðarmaður innanríkisráðherra sem nú gefur kost á sér á lista Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjör- dæmi er meðal þeirra ráðuneytis- starfsmanna sem komið hafa hvað mest að þessu máli. Hún hef- ur aldrei getað séð glætu í því að að taka pólitíska ákvörðun um að fara með lögreglunám í Háskólann á Bifröst á sambærilegan hátt og hægt er með að veita 3,7 milljörð- um í Hús íslenskra fræða á Melun- um í Reykjavík. Í þessu ferli hafa hinir áhugalausu ráðherrar leyft ráðuneytisstarfsmönnum að valta yfir þá þingmenn sem hafa verið að styðja málstað okkar. Sem gamall þingmaður Norðurlandskjördæm- is vestra verð ég að viðurkenna að ég er hissa á því að hún skuli vera að bjóða sig fram til þjónustu við okkur hér í kjördæminu þegar hún virðist alls ekki vera tilbúin til að taka á sig nein óþægindi fyrir okkar hönd, og hvað þá að vilja taka þátt í að efla háskólastarf í kjördæminu þegar tækifæri gefst. Þingmenn með kjark Við höfum verið svo heppin að hafa nokkra þingmenn sem hika ekk- ert við að taka slaginn fyrir okkur. Sjálfstæðismennirnir tveir, Einar Kristinn og Haraldur, hafa verið í þeim hópi auk þingmanna úr öðr- um flokkum sem eru líka tilbúnir til að leggja hagsmunamálum kjör- dæmisins lið af áhuga og heilind- um. Vonandi ná þannig þingmenn kjöri í kosningunum í haust, þing- menn sem skilja að þeir þurfa að vera bæði þjónar og leiðtogar og hafa líka kjark og afl til að verjast nýlendustefnunni. Ísland sambandsríki? En niðurstaða mín vegna þeirr- ar nýlenduþróunar sem ég skynja í samskiptum höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar er sú að fyrr eða síðar kemur til stofnunar flokks á svipuðum grunni og Skoski þjóð- arflokkurinn. Sá flokkur mun þá hafa á stefnuskrá sinni að Ísland verði sambandsríki þar sem sem landsbyggðin getur þá tekið mál- in í eigin hendur. Það gerist ekki fyrir þessar kosningar en gæti vel gerst fyrir þær næstu ef núverandi flokkakerfi snýr ekki af braut ný- lendustefnunnar. Vilhjálmur Egilsson. Höf. er rektor Háskólans á Bifröst. Nýlendustefnan

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.