Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201632
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Pennagrein
Byggðaþróun á Íslandi ber sífellt
aukin merki nýlendustefnu höfuð-
borgarsvæðisins gagnvart lands-
byggðinni en sífellt hærra hlutfall
af landsmönnum býr á höfuðborg-
arsvæðinu. Síðustu 18 árin hækk-
aði hlutfall landsmanna búsett-
um á höfuðborgarsvæðinu úr 60%
í 64% og yfir 80% af fjölgun íbúa
varð þar. Innan við 10% af fjölgun
landsmanna varð utan höfuðborg-
arsvæðisins og Suðurnesja. Mik-
il hagræðing hefur orðið í sjávar-
útvegi og hefðbundnum landbún-
aði og störfum fækkað í þessum at-
vinnugreinum en ný störf hafa ekki
skapast í staðinn. Þjónustugrunnur-
inn á landsbyggðinni hefur verið að
veikjast. Uppgangur ferðaþjónustu
hefur ekki skapað nægilegan fjölda
nýrra heilsársstarfa á landsbyggðinni
og þrengt er að opinberri þjónustu.
Í opinberri umræðu og stjórn lands-
ins má sjá mörg dæmi um hvernig
þessi nýlendustefna birtist en hér
skulu aðeins nokkur nefnd:
Sjávarútvegurinn
Endalausar kröfur eru um skattlagn-
ingu á sjávarútveg í því skyni að færa
fjármuni frá fyrirtækjum á lands-
byggðinni til höfuðborgarsvæðisins.
Enginn hljómgrunnur er fyrir því að
geta sjávarútvegsins til að greiða sér-
stakan skatt sé fyrst og fremst nýtt til
að stuðla að uppbyggingu nýrra at-
vinnutækifæra í þeim byggðum sem
hafa orðið undir í hinni hörðu sam-
keppni sem innleidd var í sjávarút-
vegi.
Landbúnaðurinn
Settar eru á deilur um styrki til land-
búnaðar langt umfram tilefni og
hlutfallslegt umfang styrkja og ann-
ars stuðnings við landbúnaðinn. All-
ar búvörur og grænmeti vega að-
eins 6,6% af útgjöldum heimilanna.
Til samanburðar eru útgjöld vegna
áfengis og tóbaks 3,1%, bíla- og
bensínreikningurinn 14,1%, hús-
næðisliðurinn 20,7% og sífellt hærra
hlutfall útgjalda er til þjónustuliða.
Öll kindakjötsframleiðsla sauðfjár-
bænda er sambærileg við það magn
af mat sem fer í gegnum tvo til þrjá
frystitogara en samt er eins og efna-
hagur landsmanna standi og falli
með stuðningi við sauðfjárrækt.
Ferðaþjónustan
Ferðaþjónustan byggist upp að
miklu leyti á forsendum höfuð-
borgarsvæðisins. Ferðamenn dreif-
ast aðallega frá höfuðborgarsvæð-
inu út á land þar sem uppbygging
innviða er stórlega vanrækt vegna
þess að tekjur af ferðamönnum
skila sér ekki til viðkomandi sveit-
arfélaga eða annarra þeirra sem
þurfa að bera kostnað af því verki.
Hlutdeild erlendra ferðamanna í
útgjöldum einkaneyslu er orðin
um 20% og samsvarandi hlutdeild
tekna af neyslusköttum skilar sér í
ríkissjóð. Samt er endalaus vand-
ræðagangur við að fjármagna inn-
viði ferðaþjónustu á landsbyggð-
inni.
Orkumálin
Orkuauðlindir Íslendinga eru að
langstærstum hluta á landsbyggð-
inni. Þar er víða áhugi á að nýta
þær á sjálfbæran hátt í þágu íbú-
anna og almennur stuðningur við
það í viðkomandi byggðarlögum.
En í flestum tilfellum þegar nýt-
ing orkuauðlinda og iðnaðarupp-
bygging kemst á dagskrá fer af stað
mikil mótmælaalda og andstaða frá
fólki utan svæðis sem vill að orku-
auðlindirnar séu helst ekki nýtt-
ar yfirleitt. Þá er reynt að búa til
fleyg á milli aðila í ferðaþjónustu
og þeirra sem styðja uppbyggingu
iðnaðar.
Heilbrigðismálin
Heilbrigðiskerfið hefur þróast á
forsendum nýlenduskipulagsins.
Á tiltölulega fáum árum hafa heil-
brigðisstofnanir á landsbyggðinni
verið skornar markvisst niður og
starfsemin flutt til Landsspítalans
fyrst og fremst. Allt í nafni hag-
ræðingar. Og Landsspítalinn hefur
jafnan talið sig geta tekið við stærra
hlutverki. Nú þegar Landsspítalinn
kvartar undan of miklu álagi dett-
ur engum í hug að létta af honum
byrðinni og flytja þjónustuna aftur
til síns heima sem þó væri eðlilegt
og í leiðinni byggja upp sérhæfð-
ar þjónustueiningar á landsbyggð-
inni. Bygging nýs Landsspítala
er í sjálfu sér hagkvæm aðgerð en
hún mun væntanlega líka festa enn
frekar í sessi samþjöppun þjónust-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Menntamálin
Menntakerfið þróast á svipuðum
forsendum, sértaklega háskóla-
kerfið. Háskólar á landsbyggðinni
eru í eilífri baráttu og mæta litlum
skilningi. Það er helst Háskólinn
á Akureyri sem hefur fengið svig-
rúm til uppbyggingar en landbún-
aðarskólarnir sannarlega lent fyrir
niðurskurðarhnífnum. Háskóli Ís-
lands hefur hins vegar fengið sér-
meðferð og nú síðast með því að
ákveðið hefur verið í fjármálaáætl-
un að efla hann sérstaklega með
3,7 milljarða framlagi til Húss ís-
lenskra fræða. Það er að sjálfsögðu
pólitísk ákvörðun.
Samgöngumálin
Samgönguframkvæmdir og við-
hald samgöngumannvirkja hafa
verið vanrækt mörg undanfarin
ár. Í fyrra voru vegaframkvæmd-
ir t.d. 37% minni en að meðal-
tali á árunum 2000 – 2009. Það
bitnar á landsbyggðinni þrátt fyr-
ir að Reykvíkingar hafi nánast af-
salað sér alvöru samgöngufram-
kvæmdum fyrir bílaumferð en vilja
helst þrengja götur borgarinnar og
gengu svo langt að reyna í leiðinni
að leysa húsnæðisvanda sinn með
fuglahúsum á Hofsvallagötunni.
Þrengt er að flugvellinum í höfuð-
borginni sem gerir landsbyggðinni
erfiðara fyrir.
Húsnæðismálin
Nýlendustefnunni hefur fylgt mik-
il hækkun á húsnæðisverði á höf-
uðborgarsvæðinu umfram lands-
byggðina. Þannig var t.d. fer-
metraverð í fjölbýli á árinu 1995
46% hærra í Reykjavík en í Borg-
arbyggð. Á árinu 2015 var munur-
inn orðinn 110%. Þessi þróun hef-
ur haft í för með sér gífulega skatt-
frjálsa eignamyndun og auðssöfnun
fyrir íbúa Reykjavíkur og nágrenn-
is meðan íbúar landsbyggðarinn-
ar hafa setið eftir. Raunhækkunin í
Borgarbyggð er 12% en í Reykja-
vík 88% á þessum tíma.
Atkvæðavægið
Mikil umræða er nú um nauðsyn
þess að jafna vægi atkvæða milli
kjördæma og fast sótt að þeirri
málamiðlun sem náðist við síðustu
kjördæmabreytingu. Því er haldið
fram að jafnt vægi atkvæða sé sér-
stakt mannréttindabrot. Þó er það
svo að fjölmargir þeirra sem berjast
fyrir jöfnu vægi atkvæða vilja ganga
í Evrópusambandið og telja það
einn af helstu kostum við inngöng-
una að við fáum svo mikil áhrif með
ríflegum atkvæðisrétti miðað við
stærri þjóðir s.s. Þjóðverja. Ákvörð-
un um atkvæðavægi byggir á mörg-
um sjónarmiðum og niðurstaðan
verður alltaf málamiðlun. En bar-
áttan fyrir jöfnu vægi atkvæða nú er
enn einn þátturinn í nýlendustefn-
unni gagnvart landsbyggðinni.
Áhugalausir ráðherrar
Þessi mál eru mér sérstaklega hug-
leikin núna þegar Háskólinn á Bif-
röst hefur verið að sækjast eftir því
að fá til sín lögreglunám á háskóla-
stigi. Eins og stjórnarflokkarnir hafa
talað um byggðamál mætti reikna
með því að svona „moli“ gæti hugs-
anlega mátt hrökkva norður fyrir
Hvalfjörð því að þetta er ný starf-
semi og ekki neitt af neinum tekið
þótt Háskólinn á Bifröst fengi þetta
mikilvæga verkefni sem yrði til þess
að styrkja verulega starfsemi skól-
ans. En þá er eins og innanríkisráð-
herra og menntamálaráðherra sem
hafa haft með málið að gera grípi
mikið áhugaleysi og embættis-
mennirnir látnir ráða ferðinni sem
setja málið í „faglegt“ valferli sem
er aðallega sniðið fyrir Háskóla Ís-
lands. Háskólanum á Bifröst var
þá vísað frá með bolabrögðum,
þrátt fyrir að skólinn hefði algjör-
lega verið inni í myndinni á öllum
fyrri stigum málsins og viðurkennt
að skólinn gæti gert þetta mjög
vel (eins og hinir háskólarnir líka).
Þess má geta að engin „fagleg“
hugmyndasamkeppni fór fram um
hvernig best væri að nýta 3,7 millj-
arða í fjárfestingarfé í háskólakerf-
inu þegar ákvörðun var tekin um
Hús íslenskra fræða. Þá var hægt
að taka pólitíska ákvörðun enda
byggingin á réttum stað. HÍ, HR
og HA hafa allir verið efldir með
pólitískum ákvörðunum. HA hefur
orðið myndarlegur skóli og fest sig
í sessi fyrir harðfylgi norðlenskra
þingmanna. HR fékk Tækniskól-
ann til að efla kennslu í tæknigrein-
um og HÍ hefur eðlilega verið efld-
ur með pólitískum sérkjörum allan
sinn langa starfstíma. Því var ekki
óeðlilegt að Háskólinn á Bifröst
fengi einu sinni eitt minni háttar
pólitískt framlag til að styrkja skól-
ann til lengri tíma.
Ráðlaus
aðstoðarráðherra
Aðstoðarmaður innanríkisráðherra
sem nú gefur kost á sér á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi er meðal þeirra ráðuneytis-
starfsmanna sem komið hafa hvað
mest að þessu máli. Hún hef-
ur aldrei getað séð glætu í því að
að taka pólitíska ákvörðun um að
fara með lögreglunám í Háskólann
á Bifröst á sambærilegan hátt og
hægt er með að veita 3,7 milljörð-
um í Hús íslenskra fræða á Melun-
um í Reykjavík. Í þessu ferli hafa
hinir áhugalausu ráðherrar leyft
ráðuneytisstarfsmönnum að valta
yfir þá þingmenn sem hafa verið að
styðja málstað okkar. Sem gamall
þingmaður Norðurlandskjördæm-
is vestra verð ég að viðurkenna að
ég er hissa á því að hún skuli vera
að bjóða sig fram til þjónustu við
okkur hér í kjördæminu þegar hún
virðist alls ekki vera tilbúin til að
taka á sig nein óþægindi fyrir okkar
hönd, og hvað þá að vilja taka þátt
í að efla háskólastarf í kjördæminu
þegar tækifæri gefst.
Þingmenn með kjark
Við höfum verið svo heppin að hafa
nokkra þingmenn sem hika ekk-
ert við að taka slaginn fyrir okkur.
Sjálfstæðismennirnir tveir, Einar
Kristinn og Haraldur, hafa verið í
þeim hópi auk þingmanna úr öðr-
um flokkum sem eru líka tilbúnir
til að leggja hagsmunamálum kjör-
dæmisins lið af áhuga og heilind-
um. Vonandi ná þannig þingmenn
kjöri í kosningunum í haust, þing-
menn sem skilja að þeir þurfa að
vera bæði þjónar og leiðtogar og
hafa líka kjark og afl til að verjast
nýlendustefnunni.
Ísland sambandsríki?
En niðurstaða mín vegna þeirr-
ar nýlenduþróunar sem ég skynja í
samskiptum höfuðborgarsvæðisins
og landsbyggðarinnar er sú að fyrr
eða síðar kemur til stofnunar flokks
á svipuðum grunni og Skoski þjóð-
arflokkurinn. Sá flokkur mun þá
hafa á stefnuskrá sinni að Ísland
verði sambandsríki þar sem sem
landsbyggðin getur þá tekið mál-
in í eigin hendur. Það gerist ekki
fyrir þessar kosningar en gæti vel
gerst fyrir þær næstu ef núverandi
flokkakerfi snýr ekki af braut ný-
lendustefnunnar.
Vilhjálmur Egilsson.
Höf. er rektor Háskólans á Bifröst.
Nýlendustefnan