Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Fimm þúsund á skólabekk Haustið er tími umskipta í mörgu, þar á meðal í atvinnulífinu. Nýtt kvótaár hefst, sláturtíðin leiðir í ljós hvað bændur uppskera og ferða- þjónustan skiptir um gír á sama tíma og sumarstarfsmenn hverfa í skólana. Dæmi eru um að vegna manneklu þurfi þjónustufyrirtæki nánast að skella hurðinni á ferðamanninn, því fólk vantar til starfa. Á haustin hefja líka skólar á öllum stigum starfsemi sína. Í síðustu viku gerðum við ítarlega grein fyrir starfsemi þriggja skólastiga á Vestur- landi, allt frá grunnskólum til háskóla. Nú í þessari viku tökum við púlsinn á leikskólunum í landshlutanum og heyrum hljóðið í þeim tónlistarskólum sem voru tilbúnir að tjá sig um starfið framundan. Samkvæmt talningu okkar á ritstjórn Skessuhorns eru rétt tæplega 5000 manns sem eru að hefja skólavist á öllum skólastigum, allt frá Hvalfjarðarbotni og norður til Reykhólahrepps. Þetta er enginn smá- ræðis fjöldi og samsvarar því að þriðjungur íbúa stundar nám. Reynd- ar er þetta dálítil einföldun því inni í þessari tölu eru allir nemendur háskólanna tveggja sem koma víða að og eiga sumir hverjir ekki lög- heimili á Vesturlandi. Samantekt okkar sýnir engu að síður að 943 eru að hefja nám á leikskólastigi á Vesturlandi, 2.244 í grunnskóla, 870 í framhaldsskólunum þremur og ríflega 900 í háskólunum á Hvann- eyri og Bifröst. Nákvæm tala þessa hóps er 4.957 einstaklingar. Þá eru ótaldir allir sem huga að endurmenntun, t.d. hjá Símenntunarmið- stöðinni á Vesturlandi, eru í fjarnámi í erlendum skólum, stunda tón- listarnám eða nám til aukinna ökuréttinda. Nám er undirstaða framfara og forsenda þess að við Íslendingar ætl- um að vera áfram í hópi fremstu þjóða þegar kemur að efnahag og lífskjörum. Allir vilja því að hlúð sé að menntun á öllum skólatig- um. Sjálfur er ég ekki í minnsta vafa um að skólastofnanir hér á Vest- urlandi standa framarlega að gæðum. Mér vitanlega er hvergi slegið slöku við og héðan eru að útskrifast góðir nemendur og nýtir þjóð- félagsþegnar. Það væri ekki hægt nema að skólarnir væru að standa undir nafni, allt frá leikskólum til menntastofnana á háskólastigi. Til að þjóðfélagið haldi áfram að vaxa og eflast megum við aldrei gefa eftir í stuðningi við menntastofnanir. Sveitarfélögin verða að hagræða í rekstri til að hafa efni á rekstri góðra leik- og grunnskóla. Eftir það tekur ríkið við þeim kaleik að reka skólana. Við verðum því að gera þá kröfu á hið opinbera að sveigjanleikinn í menntakerfinu sé alltaf mikill. Atvinnugreinar vaxa nefnilega meðan aðrar láta undan. Þannig er ljóst að við þurfum að fjölga þeim sem stunda nám í þjón- ustugreinum eins og ferðaþjónustunni sem nú stefnir hratt í að verða langstærsta atvinnugrein okkar. Þá þurfum við að leggja miklu meiri áherslu á vöxt iðngreina og að iðnnám stundi fleiri en gera í dag. Það er skortur á iðnaðarmönnum í landinu og úr því verðum við að bæta með öllum tiltækum ráðum. Við þessi litla þjóð höfum ekki efni á að fjöldaframleiða fólk í hinum ýmsu „mjúku“ greinum á sama tíma og skortur er á fólki sem hefur þekkingu og réttindi til að gera við rafmagnið, múra húsin eða lagfæra pípulagnirnar. Alveg á sama hátt virðist vera skortur á fólki til að sinna uppeldis- og kennslustörfum, eða sinna iðju- og þroskaþjálfun, svo dæmi séu tekin. Menntakerfið þarf augljóslega að sýna meiri sveigjanleika og festu í að stýra fólki til náms í greinum þar sem efirspurn er meiri en framboðið eftir starfs- kröftum þess. Ég vona að þeir sem komast til valda eftir kosningarn- ar í haust séu vel meðvitaðir um þetta og sýni festu í mótun enn betra og kvikara menntakerfis en við höfum í dag. Þeirra er tækifærið til að gera gott land enn betra. Magnús Magnússon Leiðari Samþykkt var á síðasta fundi stjórnar Kaupfélags Borgfirðinga að ráðast í 240 fermetra stækkun verslunarhúss félagsins við Egils- holt 1 í Borgarnesi. Að sögn Guð- steins Einarssonar kaupfélagsstjóra er ástæðan sú að félagið hefur auk- ið innflutning á síðustu árum og þarf stærra lagerhúsnæði. Við- byggingin verður því að stórum hluta fyrir lager og grófvöru en verslunin verður þó stækkuð um sem nemur 80 fm. Ráðgert er að jarðvegsframkvæmdir hefjist fljót- lega og er stefnt að því að bygg- ingin verði risin fyrir lok nóvem- ber. Af þessum sökum hefur kaup- félagið ákveðið að fresta árlegri Hausthátíð KB fram á vetur og segir Guðsteinn að vonandi verði hún enn veglegri fyrir vikið, en þó með öðrum brag og sem hent- ar þeim árstíma. Samið hefur ver- ið við Límtré Vírnet um einingar í viðbygginguna, en húsið var á sín- um tíma einnig byggt úr einingum frá fyrirtækinu. mm Kaupfélagið stækkar verslunarhúsið við Egilsholt Viðbyggingin mun rísa sunnan við verslunarhúsið við Egilsholt á þeim stað sem keppt hefur verið í hornstaurakasti á Hausthátíð KB síðustu árin. Þessi svipmynd er frá keppninni. Ferðaþjónustan er í hröðum vexti hérlendis og sjást þess víða merki. Ein birtingarmynd þessa vaxtar er takmarkað bílastæðapláss við ýms- ar af þekktustu náttúruperlum landsins. Nýlega var greint frá því að Umhverfisstofnun hafi veitt Ís- göngum ehf. leyfi til að stækka bíla- stæðin við rætur Langjökuls þar sem farið er á jökulinn. Með því er bæði reynt að bregðast við fjölgun- inni sem og að tryggja öryggi gesta. Nú á dögunum virtist sama vanda- mál blasa við hjá Vatnshelli í þjóð- garðinum Snæfellsjökli, þ.e.a.s. að bílastæðin mættu vera fleiri. Þessa mynd tók ljósmyndari Skessuhorns í síðustu viku. bþb/ Ljósm. ki. Bílastæði eru víða af skornum skammti Á dögunum endurnýjuðu Internet- þjónustan Hringiðan, Borgarbyggð og Snæfellsbær samkomulag frá 2006 um internetþjónustu á sunn- anverðu Snæfellsnesi. Svæðið sem um ræðir nær frá Hellnum að Hít- ará. „Sem hluti af samkomulaginu mun Hringiðan taka að fullu niður eldra netkerfi og skipta því út fyr- ir nýrra og betra. Fjarskiptastaður- inn á Kolviðarnesi verður ljósleið- aravæddur sem mun hámarka eins og kostur er áreiðanleika kerfis- ins,“ segir í tilkynningu frá Hring- iðunni. „Vinna við uppfærslu er í fullum gangi og er uppfærslu á tenging- um í Snæfellsbæ að mestu lokið og gert er ráð fyrir að uppfærslu teng- inga í Borgarbyggð ljúki fyrir mán- aðamótin. Samningurinn gildir til 1. ágúst 2018 og gefur hann bæj- arfélögunum svigrúm að vinna að ljósleiðaravæðingu. Verðlag á teng- ingum er í samræmi við það sem gengur og gerist á stærri þéttbýlis- stöðum og stendur íbúum svæðis- ins og eigendum frístundahúsa nú til boða tengingar með ótakmörk- uðu niðurhali. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér betur nýju tenging- arnar og verð þeirra er bent á að hafa samband við Hringiðuna á hringidan@hringidan.is eða í síma 525 2400,“ segir í tilkynningunni. mm Endurnýja netkerfi á sunnanverðu Snæfellsnesi Í júlí síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta 31,4 milljörð- um króna samanborið við 24 millj- arða í sama mánuði 2015. Um er að ræða ríflega 31% aukningu milli ára. Í samantekt Rannsókna- seturs verslunarinnar kemur fram að kortavelta erlendra ferðamanna í júlí var sú mesta í einum mánuði frá upphafi en fyrra met var sett í júní síðastliðnum þegar erlendir ferðamenn greiddu vörur og þjón- ustu fyrir um 26 milljarða króna með kortum sínum. Líkt og und- anfarna mánuði var vöxtur í öll- um útgjaldaliðum. Myndarlegur vöxtur var í dagvöruverslun í júlí en ferðamenn greiddu 1.357 millj- ónir til dagvöruverslana í mán- uðinum eða 45,6% meira en í júlí í fyrra. Ef litið er á erlenda greiðslu- kortaveltu til verslunar í heild þá var hún rúmir 4,7 milljarðar í júní, 25% meiri en í júlí 2015. Erlendir ferðamenn greiddu 30,8% meira fyrir gistiþjónustu samanborið við sama mánuð í fyrra, alls 6,2 milljarða, 29,5% meira á veitingastöðum eða 3,5 milljarða og 2,8 milljarða fyrir bílaleigubíla, 36% meira en í júlí 2015. Þá má nefna að menningartengd ferða- þjónusta jókst um 39% í mán- uðinum miðað við júlí í fyrra. Í júlí komu 236 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð samkvæmt talningu Ferðamálastofu, 30,6% fleiri en í sama mánuði í fyrra. mm Erlendir ferðamenn 31% fleiri í júlí en í fyrra

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.