Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2016 25 Heyrðu umskiptin -fáðu heyrnartæki til reynslu. Erum með margar gerðir og verðflokka ReSound heyrnartækja. ReSound er í fremstu röð í framleiðslu heyrnartækja í heiminum í dag. Miklar vinsældir ReSound má rekja til frábærra gæða tækjanna og einnig til þess að Apple valdi ReSound sem samstarfsaðila í samþættingu á heyrnartækjum við iPhone- snjallsíma. Í samkeppni á heyrnartækjamarkaðinum hefur ReSound náð verulegu forskoti. Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is • SK ES SU H O R N 2 01 6 ÞI T KYNNUM NÝTT GREIÐSLUFYRIRKOMULAG 6 vikur á 14.500,- Innifalið: Allar æfingar Fitnessbox og Jálka samkvæmt stundatöflu í þessar 6 vikur! Nánari upplýsingar, stundatöflu og verðskrá er að finna á www.ia.is undir Hnefaleikar Spurningar skulu berast á hnefak@gmail.com Karen Jónsdóttir sem á og rekur líf- rænu verslunina Matarbúr Kaju á Akranesi hyggst á næstunni opna útibú verslunarinnar í Reykjavík. „Ég fæ húsnæðið afhent 1. september og stefni að því að opna laugardaginn 10. september,“ segir Karen í sam- tali við Skessuhorn. Matarbúr Kaju í Reykjavík verður til húsa við Óð- insgötu 8b. Segir Karen að verslunin verði með svipuðu sniði og verslunin á Akranesi þar sem almenn þurrvara, ávextir og grænmeti er selt eftir vigt. „Áherslan er á lífrænt vottuð og um- hverfisvæn matvæli sem seld eru eft- ir vigt. Þó verður enn meiri áhersla lögð á lausasöluna og umbúðalaust í versluninni í Reykjavík þar sem að- stæður bjóða upp á það,“ segir hún. „Svo er hugmyndin að framleiða hrá- kökutertur hér á Akranesi og selja einnig í Matarbúrinu í Reykjavík,“ bætir hún við. Aðspurð hvers vegna hún hyggist færa út kvíarnar telur hún að eftir- spurn sé eftir lífrænni matvöru á höf- uðborgarsvæðinu. „Ég er að breiða út lífræna boðskapinn og tel að markað- urinn sé að leita eftir þessu. Skaga- menn hafa tekið svo vel í sína verslun að nú er mál að athuga hvort Reyk- víkingar vilja ekki eiga sína líka,“ seg- ir hún og kveðst full eftirvæntingar. „Þetta leggst vel í mig. Ég er búin að ráða verslunarstjóra og verð sjálf með annan fótinn þarna til að byrja með. Svo ráðum við fólk ef þess þarf. Ég er með stóran hnút í maganum af spenningi en hef fulla trú á því að þetta eigi eftir að gera sig,“ segir Kar- en Jónsdóttir að lokum. kgk Útibú Matarbúrs Kaju senn opnað í Reykjavík Útibú Matarbúrs Kaju verður staðsett í kjallara Óðinsgötu 8b í Reykjavík. Ljósm. Matarbúr Kaju. Deildarstjóra á leikskóla Dag ur í lífi... Nafn: Guðrún Lilja Magnúsdóttir Fjölskylduhagir og búseta: Í sambúð með Gunnari Jökli Karls- syni og búum við í Grundarfirði. Starfsheiti og fyrirtæki: Deildar- stjóri á leikskólanum Sólvöllum. Hvað felst í þínu starfi? Að stjórna deild sem telur 17 börn, fædd 2014. Hvað er það besta við starfið? Númer 1: börnin, nr. 2: fólkið sem ég vinn með. Áhugamál: Án efa bækur. Ég reyni að lesa eitthvað skemmti- legt á hverju kvöldi fyrir svefninn og er með hrúgu af bókum á nátt- borðinu mínu sem bíða eftir að verða opnaðar. Núna er ég að lesa bókina Framúrskarandi vinkona, en hún er fyrsta Napólí-sagan af þremur eftir Elenu Ferrante. Vinnudagurinn: Föstudagurinn 19. ágúst 2016. Klukkan hvað vaknaðir þú og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Ég vaknaði korter yfir sex og setti brauðdeig á bökunar- plötu, en það hafði ég útbúið deg- inum áður. Ég stráði smá grófu salti yfir og skellti inní ofninn í klukkutíma. Hvað var í morgunmat? Banani og einn bolli af kaffi. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Ég labbaði í vinnuna rúmlega hálf átta með nýbakað brauðið í fanginu. Fyrstu verk í vinnunni? Að taka á móti faðmlagi og kossum í tilefni afmælisdagsins míns, taka úr lás á leikskólanum og kveikja ljósið hjá fiskunum á deildinni minni. Hvað varstu að gera kl 10? Eg var úti með börnunum enda glampandi sól og Spánarveður. Við vorum í stórskemmtilegum krókódílaleik sem endaði með því að við bökuðum sandkökur handa krókódílnum og buðum honum í kaffi. Hvað gerðir þú í hádeginu? Ég kom hluta af börnunum í hvíld og sagði þeim sögur á meðan þau sofnuðu. Hvað varstu að gera kl 14? Nokkur börn á deildinni minni eru með vistunartíma til 14 og því var eg að kveðja þau og foreldrana á þeim tíma og skellti mér svo út í góða veðrið þar sem hin voru að leik. Hvenær hættir þú og það síð- asta sem þú gerðir í vinnunni? Eg hætti kl. 16. Slökkti ljósið hjá fiskunum, gaf þeim að borða og fór heim. Hvað gerðir þú eftir vinnu? Ég er alltaf með háleitar hugmynd- ir um líkamsrækt, skokk, já eða yogatíma eftir vinnu. En þennan dag, sem og svo marga aðra, end- aði ég uppi í sófa og átti stefnumót við vin minn Dr. Phil. En hann er alveg yndislegur maður og huggu- legur og ég gæti ekki hugsað mér betri félaga eftir vinnu. Hvað var í kvöldmat og hver eldaði? Þar sem ég átti afmæli fékk ég frí í eldhúsinu og borðuð- um við fjölskyldan barbeque ham- borgara að hætti Gunna Joð. Hvernig var kvöldið? Afskap- lega friðsælt fyrir framan sjón- varpið. Ég hringdi í móður mína sem býr á Selfossi og svo skelltum við okkur í smá bíltúr um nánasta umhverfi. Hvenær fórstu að sofa? Alltof seint. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Burstaði tennurnar og fór út með hundinn minn, hann Bangsa. Hvað stendur uppúr eftir dag- inn? Kórónan sem var búin til handa mér í vinnunni og afmæl- issöngurinn sem börnin sungu fyrir mig alein og óstudd. Og jú, líka kakan sem dóttir mín bakaði og beið mín eftir vinnu. Annars er erfitt að nefna eitthvað eitt, eða tvennt, eða þrennt.. Þetta var frá- bært dagur!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.