Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201620
LEIKSKÓLAR
ínar Gísladóttur leikskólastjóra eru 55 börn skráð í leikskól-
ann núna en þeim mun fjölga þegar líður á haustið. „Við höf-
um pláss fyrir 65 börn og tökum þau inn allt árið. Við miðum
við 18 mánaða aldur,“ segir Kristín. Við leikskólann starfa 18
starfsmenn. „Við erum með þrjá nýja starfsmenn núna en ann-
ars hafa ekki verið miklar mannabreytingar. Ég geri ráð fyrir
að þurfa þó að bæta við starfsmönnum þegar börnum fjölgar í
vetur en núna er fullmannað. Við erum svo heppin að hafa frá-
bæran hóp starfsmanna og gekk mjög vel að manna, við gát-
um í raun valið úr því það komu mjög margar umsóknir,“ seg-
ir Kristín.
Í Uglukletti er lögð áhersla á frjálsan leik og sjálfræði
barnanna. Börnin fá að hafa áhrif á nám sitt, sjálfsákvörðun-
arréttur hver og eins er virtur auk þess sem ýtt er undir frum-
kvæði og sjálfstæði barnanna. „Nýtum við okkur hugmynd-
ir jákvæðrar sálfræði og sérstaklega hugmyndir Mihaly Csiks-
zentmihalyi um Flæði. Svo vinnum við áfram ýmis verkefni
eins og Vináttuverkefni sem er forvarnarverkefni gegn einelti á
vegum Barnaheilla, Leiðtogann í Mér, við erum með markvissa
tónlistarkennslu og útikennslu. Einnig erum við að vinna að
markmiðum Landlæknisembættis um heilsueflandi leikskóla“
segir Kristín. Ugluklettur fékk styrk úr Lýðheilsusjóði upp á
500 þúsund krónur fyrir verkefni sem kallast ævintýrapokinn.
„Við ætlum að nota styrkinn til að efla hreyfingu og útikennslu
og tengja það við nýsköpun,“ segir Kristín að endingu.
Leikskólinn í Stykkishólmi
Leikskólinn í Stykkishólmi er þriggja deilda leikskóli með 72
börn og eru tvö til viðbótar væntanleg um áramótin. Þetta er
örlítil fjölgun á börnum frá síðast vetri og að sögn Sigrúnar
Þórsteinsdóttur leikskólastjóra verður leikskólinn rúmlega full-
ur í vetur. „Það er alveg orðið spurning að bæta þurfi fjórðu
deildinni við. Það eru alltaf að bætast við börn hér í bænum og
erum við núna að taka inn 21 barn og þar af eru þrjú sem koma
inn vegna flutninga í bæinn.“ Við leikskólann eru 22 starfs-
menn, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi, og nú er verið að aug-
lýsa eftir leikskólakennara í sérkennslu. Býr leikskólinn að vel
menntuðu starfsfólki en einn til tveir leikskólakennarar starfa á
hverri deild. Við leikskólann starfa einnig grunnskólakennarar
og annað háskólamenntað fólk auk þess sem flestir starfsmenn-
irnir hafa mikla reynslu af leikskólastarfinu. „Það hefur verið
lítið um mannabreytingar hjá okkur núna og alltaf hefur geng-
ið vel að ráða í lausar stöður. Við myndum þó gjarnan vilja fá
karlmenn til starfa en það eru mjög fáir karlar sem hafa unnið
hjá okkur,“ segir Sigrún.
Í leikskólanum í Stykkishólmi er mikið unnið með skapandi
starf og í vetur verður það tengt vinnu með námsefnið ,,Lubbi
finnur málbein“ á öllum deildum þar sem m.a. er unnið mark-
visst með málhljóðin. Leikskólinn byggir á jákvæðni og virð-
ingu í agamálum og jákvæðri umgengni, en einkunnarorð leik-
skólans eru virðing, gleði og kærleikur. „Við mætum hverju
barni með jákvæðni og ef barni verður á, svona eins og ger-
ist stundum, fá þau alltaf tækifæri til að leiðrétta sig og hér er
enginn skammaður og börnin eiga aldrei að ganga hér út með
skömm. Málin eru rædd og viðkomandi fær að leiðrétta sig. Við
vinnum með jákvæðni og höfum gleði í fyrirrúmi,“ segir Sig-
rún. „Eins erum við með einstaklingsnámsskrá fyrir hvert og
eitt barn þar sem leikskólaganga þeirra er skráð bæði í máli og
myndum.“
Sólvellir í Grundarfirði
Leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði er fjögurra deilda leikskóli
fyrir börn á aldrinum 1-5 ára. Að sögn Bjargar Karlsdóttur er
51 barn skráð í leikskólann fyrir komandi vetur en börnin eru
tekin inn allt árið, þegar þau hafa náð eins árs aldri. „Við höf-
um pláss fyrir 64 börn svo leikskólinn er ekki fullur. Núna erum
við að taka inn fimm ný börn en í vor var opnuð deild fyrir
fimm ára börn í grunnskólanum svo við misstum tvo árganga
eða rúmlega 20 börn úr leikskólanum.“ Við leikskólann eru
18 starfsmenn sem er fækkun frá síðasta skólaári en tveir nýir
starfsmenn hafa bæst í hópinn. „Það er skortur á fagmennt-
uðum starfsmönnum hjá okkur en aðeins þrír starfsmenn hafa
leikskólakennararéttindi. Tveir þeirra starfa við stjórnun en
einn er deildarstjóri. Það er þó gaman að segja frá því að átta
starfsmenn hjá okkur eru að fara í nám með vinnu í vetur, þar af
einn í leikskólakennarafræðum, tveir eru í kennaranámi og aðr-
ir í sérhæft nám sem nýtist vel í leikskóla“ segir Björg.
Á Sólvöllum er félagsþroskinn hafður í fyrirrúmi, þar sem
áhersla er á frelsi einstaklingsins til að finna sjálfan sig í um-
hverfinu. Lögð er áhersla á að börnin velji sér sjálf viðfangs-
efni sem þau vinna við eins lengi og þau vilja eða þar til þau
hafa náð tökum á því og færa sig svo upp á næsta þrep. „Við
leggjum líka áherslu á tónlist, náttúrufræðslu og hreyfingu.
Hér á Sólvöllum starfar frábært fólk sem vinnur af metnaði
og við ætlum að halda áfram að byggja upp góðan leikskóla
þó ekki sé menntað fólk. Hér ríkir gott andrúmsloft og við
erum öll staðráðin í að byggja upp metnaðarfulla starfsemi,“
segir Björg að lokum.
Leikskóli Snæfellsbæjar
Leikskóli Snæfellsbæjar er með tvær starfsstöðvar, Krílakot í
Ólafsvík og Kríuból á Hellissandi, og eru samtals fimm deild-
ir á stöðvunum. Samtals er pláss fyrir 105 börn í leikskólanum
en í vetur eru tæplega 90 börn skráð í skólann. Að sögn Ingi-
gerðar Stefánsdóttur leikskólastjóra er svolítil fækkun milli
ára, enda útskrifuðust 25 börn í vor en einungis átta börn eru
nýskráð. Venjulega komast börn inn á leikskólann við tveggja
ára aldur en ef pláss leyfir hafa þau verið tekin yngri inn. „Við
höfum verið að taka inn aðeins yngri börn núna, tæplega fjór-
tán mánaða. En það er bara vegna þess að það hafa verið laus
pláss,“ segir Ingigerður. Við leikskólann er 31 starfsmaður í
27 stöðugildum, þar af eru 18% fagaðilar.
Síðasta vetur voru leikskólar í Snæfellsbæ sameinaðir og er
enn verið að vinna að sameiningunni og finna henni farveg.
„Við viljum halda okkar sérstöðu. Þó að þetta sé einn leik-
skóli með tvær starfsstöðvar, þá eru þeir svolítið ólíkir. En það
er margt sem við gerum sem er sameiginlegt. Starfsdagar og
námskeið eru haldin saman og elstu börnin frá báðum starfs-
stöðvum eru saman í aðlögun að grunnskólanum.“ Einkunn-
arorð Leikskóla Snæfellsbæjar eru gleði, virðing og vinátta og
allt í gegnum leikinn. Leikskóli Snæfellsbæjar mun leggja aukna
áherslu á mikilvægi þess að góður grunnur sé lagður í undir-
stöðuþáttum er tengjast læsi, svo sem að efla orðaforða, mál-
þroska og hljóðkerfisvitund barna. „Við erum með börn sem
eru með annað móðurmál en íslensku og því skiptir þessi áhersla
okkar miklu máli. Við fengum veglegan styrk frá Snæfellsbæ til
að kaupa spjaldtölvur en Lionshreyfingin styrkti líka verkefni
sem kallast „Bókin heim“. Við munum nota bækur sem við eig-
um og fengum þennan styrk til að kaupa fleiri bækur, þar á meðal
bækur á pólsku. Við förum af stað með þetta verkefni um næstu
mánaðamót, á báðum starfsstöðvum,“ segir Ingigerður. „Þetta
hefur gefið góða raun annars staðar og við viljum allt það besta
fyrir börnin okkar,“ bætir hún við.
Fjórir sameinaðir leik- og grunnskólar
á Vesturlandi
Líkt og fram kom í Skólablaði Skessuhorns, sem kom út í
síðustu viku, eru fjórir sameinaðir leik- og grunnskólar í
landshlutanum. Þetta eru Auðarskóli í Búðardal, Laug-
argerðisskóli á Snæfellsnesi, Leik- og grunnskóli Hval-
fjarðarsveitar og Reykhólaskóli í Reykhólasveit. Starfi
þessara skóla voru gerð skil í síðasta tölublaði og hér má
lesa það helsta um leikskóladeildirnar.
Auðarskóli í Dölum
Leikskóli Auðarskóla var opnaður eftir sumarfrí 2. ágúst síð-
astliðinn. Á þessu skólaári eru leikskólabörnin 33 talsins, ell-
efu eru á yngri deildinni en 22 á þeirri eldri. Í leikskólanum eru
níu starfsmenn. Í Auðarskóla geta börn hafið leikskólagöngu
sína tólf mánaða gömul og verið í leikskólanum fram að grunn-
skóla. „Síðastliðinn vetur var ákveðið að bjóða börnum frá tólf
mánaða aldri vistun á leikskólanum en áður höfðu aldursmörk-
in verið 18 mánaða. Í framhaldinu var farið í umbætur á aðbún-
aði og útileiksvæði fyrir þau yngstu og nú er komið sér leik-
svæði fyrir þau, sem enn er í vinnslu,“ segir Herdís Erna Gunn-
arsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Auðarskóla.
Mikið fjör var á sumarhátíðinni í Leikskólanum í Stykkishólmi.
Börn og starfsfólk á Sólvöllum í Grundarfirði að horfa á Leikhópinn Lottu í sumar.
Börn að leik á Kríubóli á Hellissandi, sem er önnur starfsstöð Leik-
skóla Snæfellsbæjar.
Lögreglan kom í heimsókn á hjóladegi í Auðarskóla.