Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201616
Snemma árs festi Vélsmiðja
Grundarfjarðar, í eigu Þórðar
Magnússonar og Remigijus Bilevi-
cius, kaup á húsnæði og tækjum
Berg Vélsmiðju. Hóf Vélsmiðja
Grundarfjarðar síðan rekstur 1.
maí síðastliðinn og hefur verið
starfrækt síðan. Skessuhorn leit við
hjá þeim Þórði og Remigijus fyrir
helgi og ræddi við þá um reynslu
undangenginna mánaða. „Það er
búið að vera talsvert að gera. Við
höfum mikið verið í skipasmíð-
um og skipaviðgerðum auk al-
mennra bílaviðgerða,“ segir Þórð-
ur. „Við höfum líka boðið upp á
dekkjaskipti og smurningu,“ bæt-
ir Remigijus við. Þórður segir að
í smiðjunni séu einnig framleidd-
ar allar týpur af glussaslöngum og í
raun séu bara leyst öll verkefni sem
til falla. „Við gerum við þvottavél-
ar ef svo ber undir,“ segir hann og
brosir. „Já, ég hef gert við þvotta-
vélar hérna,“ bætir Remigijus við
og hlær.
Þórður sér um fjármál og bók-
hald Vélsmiðju Grundarfjarð-
ar en Remigijus um allan dagleg-
an rekstur. Starfsmenn eru fimm
og eigendurnir segjast hafa leit-
ast eftir að ráða menntað fólk til
starfa hjá fyrirtækinu. „Remigi-
jus er menntaður bifvélarafvirki og
hér starfa einnig tveir lærðir skipa-
smiðir, menntaðir í Póllandi. Þar
er skipasmíði fjögurra ára nám,
þannig að menntunarstigið í fyrir-
tækinu er hátt. Þeir eru enn frem-
ur með rafsuðu sem sérsvið,“ segir
Þórður. „Það er alveg sama hvort
það er járnsuða, álsuða, rústfrítt
stál eða koparsuða. Við getum soð-
ið í allt,“ bætir Remigijus við.
Eigum að flytja
inn þekkingu
En hvers vegna ákváðu þeir félagar
að hefja rekstur vélsmiðju? „Það
er smá forsaga að því. Ég á sjálf-
ur Djúpaklett ehf. sem sér meðal
annars um fiskumsýslu og lönd-
un fyrir Fiskmarkað Íslands,“ segir
Þórður. „Á tímabili sáum við fram
á að vélsmiðjan Berg myndi hugs-
anlega hætta starfsemi, sem hefði
verið mjög alvarlegt fyrir mitt fyr-
irtæki því þá hefði slitnað í sund-
ur sú kveðju sem skipin þurfa að
hafa hér í Grundarfirði,“ seg-
ir hann. „En þess utan sáum við
bara viðskiptatækifæri þar sem við
erum í aðstöðu sem mjög fáir eru í
vegna þess að bæði ég og Remigi-
jus tölum pólsku reiprennandi.
Þar að auki tala ég íslensku, Re-
migijus er að læra íslensku og talar
að sjálfsögðu móðurmál sitt lithá-
ísku. Við höfum því bæði tungu-
málakunnáttu og tengsl erlendis
til að fá til starfa fólk erlendis frá
sem er menntað í greinum sem Ís-
lendingar eru ekki,“ segir Þórður.
„Ég held til dæmis að síðasti ís-
lenski skipasmiðurinn hafi útskrif-
ast um 1930,“ bætir hann við létt-
ur í bragði. En gamninu fylgir al-
vara. Þórður telur að Íslendingar
verði að læra af reynslunni þegar
kemur að því að flytja inn vinnu-
afl. „Fyrir hrunið fluttum við inn
fólk til að flaka fisk og skúra gólf.
Hugsaðu þér, við fluttum inn fólk
til að vinna störf sem við kunn-
um að inna af hendi. Íslending-
ar hafa flakað fisk í þúsund ár og
kunna það líklega betur en flest-
ir. En fyrir nokkrum árum þótt-
umst við allt í einu ekki geta það
lengur. Við áttum að sjálfsögðu að
flytja inn menntað fólk sem hef-
ur þekkingu sem við höfum ekki
hérna heima,“ segir Þórður. „Við
fluttum til dæmis ekki inn mennt-
aða skipasmiði þó við ættum enga
slíka. Við kannski hefðum bet-
ur gert það og flakað áfram fisk-
inn og skúrað gólfin sjálf, í stað-
inn fyrir að hætta að flaka fisk og
fara að reka banka,“ bætir hann við
og brosir.
Hafa sameiginlega
sýn á reksturinn
Þórður og Remigijus segja að
einn helsti styrkur vélsmiðjunnar
sé að geta fengið stærri og dýr-
ari vörur beint frá Póllandi eða
Litháen. „Þannig getum við spar-
að við innkaup og það gefur okk-
ur möguleika á því að veita stórum
viðskiptavinum afslátt, ef svo ber
undir,“ segir Þórður. Aðspurðir
um framtíðaráform fyrirtækisins
segja þeir að á döfinni sé samstarf
við stærri fyrirtæki í Póllandi. „Það
mun gefa okkur möguleikann á því
að bjóða í stór verkefni, eitthvað
sem við getum ekki núna,“ segja
þeir og kveðast sjá fram á að fjölga
starfsfólki í framtíðinni. „Já, við
sjáum fram á að fjölga í fyrirtæk-
inu og það verður ekki vandamál
að fá starfsfólk og tæki,“ segja þeir
en bæta því við að allt hafi þó sinn
tíma. Þeir hyggist ekki fara fram
úr sér. „Það er nauðsynlegt þegar
tveir menn eiga fyrirtæki að þeir
hafi sameiginlega sýn á reksturinn
og framtíðina. Við eigum það sam-
merkt að vera báðir dálítið gamal-
dags þegar kemur að rekstri,“ segir
Þórður og Remigijus tekur undir
það. „Við kaupum bara og bætum
við þegar við höfum efni á því og
við kunnum að borða fíl - einn bita
í einu,“ segja þeir að lokum.
kgk
„Við kunnum að borða fíl - einn bita í einu“
Rætt við eigendur Vélsmiðju Grundarfjarðar
Eigendur Vélsmiðju Grundarfjarðar, þeir Þórður Magnússon og Remigijus Bilevicius.
Þegar blaðamann bar að garði var í vélsmiðjunni verið að leggja lokahönd á nýja
fiskilyftu.
Kafari var að sulla í Grundará við
Grundarfjörð á dögunum og vakti
það athygli fréttaritara Skessuhorns
sem stóðst ekki mátið og fór að for-
vitnast aðeins um málið. Þarna var
á ferðinni Daníel Haraldsson nýr
dýralæknir í Stykkishólmi, ásamt
dönskum vini sínum. Þeir voru á
flundruveiðum í ósi Grundarár.
Þetta var gert með góðfúslegu leyfi
landeiganda sem er ekki ánægð-
ur með ágang flundrunnar í ánni.
Flundra er flatfiskur af kolaætt en
hún veiddist fyrst við Íslandsstrend-
ur árið 1999. Hún sækir töluvert
upp í ferskvatnsár við Ísland. Þeir
félagar voru þó meira að þessu til
gamans enda aðferðir þeirra eflaust
töluvert krefjandi. Þeir voru með
lítið spjót við veiðarnar og voru
aflabrögðin með þokkalegasta móti
þannig að eitthvað hafa þeir kunn-
að að nota veiðitólin.
tfk
Á flundruveiðum í Grundará
Hér er Daninn með eina óheppna flundru á spjótsoddinum.
Hulda Birna Baldursdóttir hef-
ur verið ráðin framkvæmdastjóri
Knattspyrnufélags ÍA. Tekur hún
við starfinu 1. nóvember næstkom-
andi af fráfarandi framkvæmda-
stjóra, Haraldi Ingólfssyni, sem
ráðið hefur sig til starfa hjá Sjóvá.
Þangað til mun Hulda Birna taka
þátt í einstökum verkefnum félags-
ins og kynna sér starfið. „Það er
mjög spennandi að ganga til liðs
við KFÍA á þessum tímapunkti. Ég
þekki vel til félagsins, lék með yngri
flokkum félagsins og meistaraflokki
í nokkur ár,“ segir Hulda Birna, en
hún lék einnig BÍ og Stjörnunni á
sínum knattspyrnuferli. „Markmið-
ið er að koma KFÍA í fremstu röð
og keppa um titla á komandi árum.
Það verður gert með því að því að
byggja á öflugu uppeldis- og afreks-
starfi og vera með þjálfara í fremstu
röð. Ég tek nýjum áskorunum fagn-
andi og hlakka til að starfa með öfl-
ugum hópi stjórnar, starfsmanna,
iðkenda og þjálfara KFÍA,“ segir
Hulda Birna.
Hulda Birna er viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla Íslands og með
meistarapróf í stjórnun frá Háskól-
anum á Bifröst. Hún starfaði áður
sem markaðsstjóri Tækniskólans
og framkvæmdastjóri Stelpugolfs
PGA á Íslandi. Hún situr í stjórn
PGA og hefur verið formaður
barna- og unglingaráðs í Fylki und-
anfarin þrjú ár.
kgk
Hulda Birna er nýr
framkvæmdastjóri KFÍA
Frá undirritun ráðningarsamnings að kvöldi síðasta þriðjudags. F.v. Sævar Freyr
Þráinsson varaformaður KFÍA, Hulda Birna Baldursdóttir nýráðinn framkvæmda-
stjóri og Magnús Guðmundsson formaður. Ljósm. KFÍA.