Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2016 13
8-18 virka daga og 10-14 slippfelagid.is
Hágæða útimálning á stein
frá Slippfélaginu.
Inniheldur hágæða
100% hreint akrýlbindiefni
sem gerir málninguna afburða
veðurþolna og litheldna.
Einnig hreinsar hún sig sérlega vel
og safnar ekki í sig óhreinindum.
Er létt í vinnslu og þekur vel.
Hágæða þakmálning
frá Slippfélaginu.
HJÖRVI er ætlaður á
galvanhúðað járn,
litaðar járnklæðningar,
ál og aðra léttmálma.
HJÖRVI er auðunninn,
jótþornandi og heldur lit
og glans sérlega vel.
VIÐAR VITRETEX HJÖRVI
Veldu íslenska háþróaða og hágæða málningu frá Slippfélaginu á bæinn þinn.
Komdu til okkar eða hringdu í síma 588 8000 og fagmenn aðstoða þig!
Hágæða viðarvörn
frá Slippfélaginu.
Fáanleg í PALLAOLÍU,
TRÉVÖRN, GRUNNMÁLNINGU,
HÁLFÞEKJANDI og
ÞEKJANDI viðarvörn.
Litirnir eru fjölmargir
og einnig hægt að fá þá
sérblandaða hjá okkur.
Veld ísle s áþr l i fr li l i i i
Fæst í Bresabúð Kalmansvöllum 1a, 300 Akranesi
Krefjandi verkefni á
lausu hjá ISS!
Vantar starfsmann í hlutastarf
alla virka daga eftir kl 16:00.
Upplýsingar veitir Ása í síma 696-4919.
Þegar skólar hefja starfsemi sína á
haustin verður mikil breyting í um-
ferðinni. Hún þyngist til muna þeg-
ar skólabörn og nemar streyma í og
úr skóla og allir koma til vinnu eftir
sumarfrí. Í haust hefja um 4.200 börn
skólagöngu sína í fyrsta sinn og þús-
undir annarra barna og ungmenna
eru á ferð. Mikilvægt er að ökumenn
taki tillit til þeirra og muni að börn
geta átt það til að gera óvænta hluti.
Jafnframt þurfa forráðamenn barna
að fara yfir öruggasta ferðamátann til
og frá skóla með börnunum. Trygg-
ingafélagið VÍS hefur tekið saman
nokkur atriði sem við hvetjum ak-
andi, gangandi og hjólandi fólk til
að lesa vel. Það er nefnilega aldrei of
varlega farið og alltaf viljum við að
allir komi heilir heim:
Akandi
Gefa sér nægan tíma í aksturinn.•
Virða hámarkshraða.•
Hafa alla athygli við aksturinn.•
Tryggja að allir í bílnum séu í •
viðeigandi öryggisbúnaði.
Sjá til þess að barn lægra en 150 •
sm sitji ekki fyrir framan loftpúða
í framsæti.
Stöðva á öruggum stað við skól-•
ann og hleypa barni út gangstétt-
armegin.
Sýna tillitsemi og stoppa fyrir •
gangandi og hjólandi.
Gangandi
Velja öruggustu leiðina í skólann •
sem er ekki endilega sú stysta.
Vera með athyglina við umhverf-•
ið en t.d. ekki símann eða tón-
list.
Auka sýnileika með endurskini.•
Vera viss um að ökumaður sjái sig •
ef fara á yfir götu og nota gang-
brautir þar sem unnt er.
Horfa vel til beggja hliða áður en •
farið er yfir götu.
Ganga meðfram bílastæðum en •
ekki þvert yfir þau.
Hjólandi
Hafa hjól í lagi. •
Nota hjálm og hafa hann rétt •
stilltan.
Nota ljós að framan og aftan í •
myrkri.
Auka sýnileika með endurskini.•
Velja öruggustu leiðina í skólann •
sem er ekki endilega sú stysta.
Nota gangbrautir ef unnt er.•
Horfa vel til beggja hliða áður en •
farið er yfir götu.
Sýna gangandi tillitsemi. •
Læsa hjóli og setja hjálm á örugg-•
an stað.
mm
Margir
smáir á ferð
í umferðinni