Skessuhorn - 24.08.2016, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 20166
Glussaslanga
gaf sig
GRUNDARTANGI: Slökkvi-
lið Akraness og Hvalfjarðar-
sveitar var síðdegis á mánudag-
inn kallað út að verksmiðju El-
kem Ísland á Grundartanga.
Þar mun glussaslanga hafa gefið
sig í lokuðu rými uppi á fjórðu
hæð iðnaðarhússins og kviknað
í olíu. Starfsmenn náðu að kæla
niður vettvang áður en slökkvi-
liðsmenn mættu á svæðið og
gekk vel að ljúka slökkvistörf-
um og tryggja svæðið, að sögn
Þráins Ólafssonar slökkviliðs-
stjóra. -mm
Ekkert símasam-
band á slysstað
REYKHÓLAHR: Starfs-
menn Póst- og fjarskiptastofn-
unar vinna nú að mælingum á
farsímasambandi á þjóðvegum
landsins. Meðal þess sem þær
mælingar hafa leitt í ljós er að
samband er afar slæmt í Vattar-
firði í Reykhólasveit og mældist
ekkert samband á löngum kafla
í firðinum. Í Vattarfirði varð bíl-
slys fyrir helgi þegar bíll hafn-
aði utan vegar og endaði í sjón-
um. Í bílnum voru hjón ásamt
ungu barni sínu á ferð um land-
ið. Maðurinn komst við illan
leik í land með barn þeirra en
önnur hjón, sem komu að slys-
inu, aðstoðuðu konuna í land
eftir að hún komst af sjálfsdáð-
um úr bílnum sem þá var sokk-
inn. Sökum þess að ekkert síma-
samband er á staðnum þar sem
slysið varð var ekki hægt að hafa
samband við Neyðarlínuna.
Það var ekki fyrr en vörubíl-
stjóra bar að garði að hægt var
að kalla eftir aðstoð viðbragðs-
aðila. -kgk
Leggja drög að
ljósleiðara-
væðingu
BORGARBYGGÐ: Ljós-
leiðaravæðing Borgarbyggðar
var til umræðu á fundi byggð-
arráðs sveitarfélagsins síðast-
liðinn fimmtudag. Um var að
ræða framhald umræðna í kjöl-
far kynningarfundar með Guð-
mundi Daníelssyni um miðjan
mánuðinn. Guðmundur hefur
unnið sem ráðgjafi með nokkr-
um sveitarfélögum við undirbún-
ing og framkvæmd við lagningu
ljósleiðara, til dæmis Ásahreppi
og Rangárþingi ytra. Niðurstaða
byggðarráðs var sú að fela sveitar-
stjóra að hefja viðræður við Guð-
mund, meðal annars um frum-
hönnun og kostnaðaráætlun fyrir
ljósleiðaravæðingu Borgarbyggð-
ar. Sveitarstjóra var enn frem-
ur falið að vera í samskiptum við
Rarik og verktaka varðandi sam-
nýtingu með lagningu strengs
milli Stóra-Kropps og Reykholts
í Reykholtsdal. -kgk
Viðahaldsfram-
kvæmdir í
Dalabúð
DALIR: Í félagsheimilinu Dala-
búð í Búðardal er um þessar
mundir unnið að endurnýjun
gólfefna í matsalnum. Í fram-
haldinu verður einnig skipt um
gólfefni í samkomusal hússins
auk þess sem bæta á aðgengi fatl-
aðra um húsið. „Börnin í Auðar-
skóla borða í matsalnum og við
vorum í vandræðum með hávaða
og erum við því að þessu í tvenn-
um tilgangi, til að draga úr há-
vaða og svo var einfaldlega kom-
inn tími á þetta, enda var Dala-
búð fyrst opnuð 24. júní 1967 og
er því að verða 50 ára næsta sum-
ar og gólfefnið líka. Við erum
einnig að setja skábrautir þar
sem þess þarf svo fatlaðir kom-
ist betur um húsið,“ segir Sveinn
Pálsson sveitarstjóri Dalabyggð-
ar í samtali við Skessuhorn.
-arg
Aukafjárveiting
til viðhalds
tónlistarskóla
BORGARNES: Viðhald á hús-
næði Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar og félagsmiðstöðvarinn-
ar Óðals í Borgarnesi var til um-
ræðu á fundi byggðarráðs Borg-
arbyggðar fimmtudaginn 18.
ágúst. Kristján Finnur Krist-
jánsson, umsjónarmaður fast-
eigna, sat fundinn undir þeim
lið og lagði fram kostnaðaráætl-
un yfir nauðsynlegar viðhalds-
framkvæmdir við tónlistarskóla
og félagsmiðstöð. Samþykkti
byggðarráð aukafjárveitingu allt
að 9,5 milljónir króna til við-
halds utanhúss á tónlistarskól-
anum við Borgarbraut 23, þar
sem fyrir liggi að hann verði þar
til húsa í nánustu framtíð. Fjár-
veitingunni er vísað til viðauka
fjárhagsáætlunar Borgarbyggð-
ar 2016. Miðað er við að við-
haldsframkvæmdir við tónlistar-
skólann hefjist á þessu ári. Hvað
varðar félagsmiðstöðina Óðal
taldi byggðarráð að fara þyrfti
í frekari greiningu á viðhalds-
þörf hússins, aðeins lægi fyrir
kostnaðaráætlun fyrir brýnasta
viðhald. Enn fremur taldi ráð-
ið að gera þyrfti þarfagreiningu
á framtíðarhúsnæði félagsmið-
stöðvar í Borgarnesi. -kgk
Mánudaginn 15. ágúst síðastliðinn
voru niðurstöður prófkjörs Pírata í
Norðvesturkjördæmi kynntar. Nið-
urstaðan varð sú að Þórður Guð-
steinn Pétursson vermir efsta sæti
listans, Gunnar Jökull Karlsson varð
í öðru sæti og Eiríkur Þór Theó-
dórsson í því þriðja. Töluverð um-
ræða skapaðist í kjölfarið á vef Pírata
um listann. Meðal þeirra sem hafa
tjáð sig er Halldóra Sigrún Ásgeirs-
dóttir, kafteinn Pírata á Vestfjörðum.
Halldóra hvetur Pírata eindregið til
að fella listann en sjálf hafnaði hún
í sjötta sæti í prófkjörinu. Hún seg-
ir á vef Pírata að það sé óboðlegt að
tefla fram manni efst á lista sem fáir
þekkja og treysta auk þess sem hún
segir það vera óboðlegt að enginn
Vestfirðingur sé í efstu fimm sætun-
um. Hún segist sjálf ekki geta kosið
flokkinn ef þetta verður endanlegur
listi í Norðvesturkjördæmi og hefur
dregið framboð sitt til baka.
Halldóra sakar Þórð Guðstein um
að hafa smalað fólki til að kjósa sig
og benti þar á óvenju góða kosn-
ingaþátttöku í Norðvesturkjördæmi
miðað við önnur stærri kjördæmi.
Þórður neitar því í samtali við ruv.is
að hafa smalað á listann en segir að
hann hafi beðið fjölskyldu sína um
að skrá sig í flokkinn og kjósa sig.
Sitt sýnist hverjum á vef Pírata um
málið en ef listinn verður felldur fer
fram nýtt prófkjör þar sem aðeins
þeir sem drógu framboð sitt ekki til
baka geta boðið sig fram. Þeir sem
munu kjósa í prófkjörinu yrðu ekki
aðeins meðlimir Norðvesturkjör-
dæmis heldur allir Píratar á lands-
vísu. bþb
Kafteinn Pírata á Vestfjörðum vill
að listi flokksins verði ógiltur
Þórður Guðsteinn Pétursson hreppti
efsta sæti listans í prófkjörinu.
Í sumar hafa staðið yfir framkvæmd-
ir á versluninni Bjargi að Stillholti
14 á Akranesi. Var húsnæðið bætt
verulega að innan og verslunin end-
urskipulögð. Meðan á framkvæmd-
um hefur staðið hefur Bjarg ver-
ið til húsa á Kalmansvöllum 1 en á
fimmtudaginn síðasta var verslun-
in opnuð aftur að Stillholti 14 í ný-
endurbættu og glæsilegu rými. „Við
erum mjög ánægð með útkomuna,
þetta lítur mjög vel út,“ sagði Ör-
lygur Stefánsson eigandi verslunar-
innar við opnunina. Árið er stórt hjá
versluninni en hún fagnar fimmtíu
ára afmæli. bþb
Verslunin Bjarg var opnuð með pompi og prakt
Eigendurnir Örlygur Stefánsson og Ásta Gísladóttir voru hæstánægð á opnunar-
daginn.
Sveinn Arnar, organisti í Akraneskirkju, lék ljúfa tóna fyrir
gesti.
Mikil fjöldi fólks mætti þegar verslunin Bjarg var opnuð að
nýju á gamla staðnum sínum.