Skessuhorn - 24.08.2016, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2016 15
Þann 28. nóvember árið 1941 fórst
bresk tveggja hreyfla Vickers Well-
ington sprengjuflugvél er hún flaug
á hamrabelti Svartahnjúks í Kolgrafa-
firði á Snæfellsnesi. Með vélinni fór-
ust sex breskir hermenn og er þessum
atburði gerð góð skil í kvikmyndinni
Svartihnjúkur – Stríðssaga úr Eyrar-
sveit, eftir Hjálmtý Heiðdal. Í her-
mannagrafreit Fossvogskirkjugarðs
eru sex legsteinar en sagan segir að
aðeins fjögur lík hafi verið flutt nið-
ur af fjallinu. Talið er að lík tveggja
hermanna hafi aldrei fundist og voru
sögur um reimleika í Kolgrafafirði
tengdar þessum tveimur mönnum.
Fyrir neðan Svartahnjúk er Hrafna-
gil sem þykir illfært og var talið að
mennirnir hafi jafnvel hrakist þangað
niður en afar torfært er þarna um og
nær ómögulegt að komast upp aftur
nema með viðeigandi sigbúnaði.
Fjórir félagar úr Björgunarsveit-
inni Klakki í Grundarfirði gerðu út
leiðangur laugardaginn 20. ágúst síð-
astliðinn er þeir fóru með sigbúnað
til að síga ofan í hið illfæra gil. Gil-
ið sem um ræðir er fyrir ofan Hrafna-
foss sem setur svo sterkan svip á svæð-
ið. Þeir félagar gengu upp fjallið og
sigu svo niður í gilið þar sem tal-
ið var að enginn hafi farið áður. Ekki
urðu þeir varir við nein ummerki eft-
ir hermennina í þessari ferð enda var
það ólíklegt eftir öll þessi ár. Þarna
verða miklir vatnavextir í leysingum
og mikil hreyfing á jarðvegi. Þó var
það rætt að gera út annan leiðangur
og hafa þá málmleitartæki með í för
og athuga hvort að eitthvað af málm-
hlutum gæti fundist.
tfk
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi
Stykkishólmsbæjar 2002 - 2022
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á fundi 15. maí
2016 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar
2002-2022 samkvæmt 1.mgr. 31.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Vatnsás - Breyting á aðalskipulagi
Meginmarkmið breytinga á aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar
2002-2022 er vegna þess að skortur er á lóðum undir minni
fjölbýli og parhús í Stykkishólmi. Með aðalskipulagsbreytingu í
Vatnsási verður heimilað að setja land undir íbúðarhúsabyggð.
Fyrir liggur ósk um lóðarúthlutun til handa gistiþjónustu í
smáhýsum. Vel fer á því að koma slíkri þjónustu fyrir í næsta
nágrenni við tjaldsvæði.
Rekstur gistiþjónustu/rekstarleyfis í
íbúðarsvæði Vatnsáss verður óheimill.
Aðalskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef
Stykkishólmsbæjar, www.stykkkisholmur.is og á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3 á opnunartíma milli
klukkan 10-15 frá 24. ágúst til 5. október 2016 og eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
aðalskipulagsbreytinguna og koma ábendingum eða athuga-
semdum á framfæri, skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa
Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 7, 340 Stykkishólmi í
síðasta lagi 5. október 2016.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi.
Auglýsing um nýtt deiliskipulag við
Vatnsás – Stykkishólmsbær
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á fundi 15. maí
2016 að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu samkvæmt 41.gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan er
auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi 2002-2022.
Markmiðið er að skapa skilyrði fyrir fjölbreytni er varðar tegund
og stærð húsnæðis þar sem lögð er áhersla á parhús og minni
fjölbýlishús. Skapa skilyrði fyrir fjölbreytni og ákveðin sveigjan-
leika er varðar stærðir íbúða þar sem lögð er áhersla á minni íbúðir
o.fl. ásamt því að móta þétta byggð fyrir ferðaþjónustuhús þar sem
möguleikar er á útleigu gistirýma.
Rekstur gistiþjónustu/rekstarleyfis í
íbúðarsvæði Vatnsáss verður óheimill.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á vef Stykkishólmsbæjar,
www.stykkisholmur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfull-
trúa, Hafnargötu 3 á opnunartíma milli klukkan 10-15 frá
24. ágúst til 5. október 2016 og eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér deiliskipulagstillöguna
og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega til
skipulags- og byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 7,
340 Stykkishólmi í síðasta lagi 5. október 2016.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi -
Lóð númer 3 við Nýrækt – Stykkishólmsbær
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á fundi
15. maí 2016 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi samkvæmt
1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ástæða breytinga er nýtt deiliskipulag íbúða- og
ferðaþjónustuhverfis á Vatnsás sem fer að hluta til inn á lóð nr. 3
í deiliskipulagi Nýræktar. Lóð númer 3 verður minnkuð.
Deiliskipulagsbreytingin verður aðgengileg á vef
Stykkishólmsbæjar, www.stykkisholmur.is, og á skrifstofu
skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3 á skrifstofutíma
milli klukkan 10-15, frá 24. ágúst til 5. október 2016 og eru þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, hvattir til að kynna sér
breytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri,
skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar,
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi, í síðasta lagi 5. október 2016.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn
í Stykkishólmi.
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Stykkishólmsbær
RARIK Vesturlandi
Tilkynning um straumleysi
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Rarik www.rarik.is
Bilanasími: 528 9390
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Ágætu raforkunotendur.
Rafmagnslaust verður norðan Skarðheiðar aðfararnótt föstudagsins 26. ágúst
frá kl. 01:00 til kl. 06:00 vegna vinnu Landsnets í aðveitustöð við Vatnshamra.
Um er að ræða allt svæðið norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarfjörð, Mýrasýslu og þar með
talið alla þéttbýlisstaði, s.s. Borgarnes, Bifröst og Hvanneyri.
Snæfellsnes
Varavélar verða keyrðar eftir því sem við verður komið á norðanverðu Snæfellsnesi,
notendur á svæðinu geta orðið fyrir einhverjum truflunum á raforkuafhendingu.
Hafið ekki viðkvæm raftæki í notkun þegar rafmagnið fer af og hugið að
endurstillingu allra tímastilltra raftækja sem kunna að hafa breytt sér.
Rarik biðst velvirðingar á þeirri röskun sem
rafmagnsleysið hefur í för með sér fyrir notendur.
Leitað að týndum hermönnum í Hrafnagili
Hérna eru björgunarsveitarmennirnir Rúnar Þór Ragnarsson, Marínó Ingi Eyþórsson, Kári Gunnarsson og Sveinn Pétur Þor-
steinsson fyrir framan Hrafnagil.
Mynd úr flygildi sem sýnir ofan í umrætt gil. Svartihnjúkur er hægra megin á
myndinni.
Hér er efsti hluti Hrafnafoss með sínum
stórmerkilegu jarðlögum og hraun-
rásum sem hægt er að sjá þarna.