Skessuhorn


Skessuhorn - 24.08.2016, Page 17

Skessuhorn - 24.08.2016, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2016 17 Reykholtskirkja Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju S K E S S U H O R N 2 01 6 - L jó sm . G Ó Höfuðdagsmessa, 28. ágúst kl. 14.00 ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2016 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & Smur, Nesvegi 5 Miðvikudagur 31. ágúst Fimmtudagur 1. september Föstudagur 2. september Allar stærðir ökutækja skoðaðar Tímapantanir í síma 438–1385 Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 SK E S S U H O R N 2 01 6 Skipavík í Stykkishólmi er alhliða verktakafyrirtæki og þar starfa rúm- lega 60 manns. Skessuhorn ræddi við Sævar Harðarson í síðustu viku, en hann hefur verið framkvæmdastjóri Skipavíkur síðan 1998, en sama ár keypti Sigurjón Jónsson meirihluta í félaginu. Eru þeir tveir eigend- ur fyrirtækisins í dag. Eins og nafn- ið gefur til kynna eru að sjálfsögðu smíðuð skip og bátar hjá Skipavík, auk vélsmíðavinnu sem þeirri starf- semi fylgir. Flest verkefni fyrirtækis- ins um þessar mundir eru hins vegar á sviði húsbygginga, en þar að auki rekur Skipavík verslun í Stykkis- hólmi og leigir út fasteignir. „Síðan höfum við undanfarinn áratug sinnt viðhaldi á kerjum í kerskála Norður- áls á Grundartanga. Það er í hönd- um starfsmanna Skipavíkur sem eru búsettir í Borgarnesi og á Akranesi. Þá sáum við um niðursetningu á öll- um straumliðum Norðuráls þegar álverið var stækkað á sínum tíma,“ segir Sævar. „Hjá Skipavík er í raun- inni allt nema jarðvinna, pípulagnir og málari. Við höfum reyndar verið með starfandi pípulagningameistara en ekki þessa stundina,“ bætir hann við. Verkefnastaðan góð Meðal stærstu verkefna fyrirtækis- ins í seinni tíð má nefna byggingu íþróttahússins í Ólafsvík, sund- laug og leikskóla í Stykkishólmi og stækkun Rjúkandavirkjunar. Sæv- ar segir að næg verkefni séu fram- undan. „Verkefnastaðan er mjög góð heilt ár fram í tímann,“ seg- ir hann. „Það eru alltaf einhverjar sveiflur í slippnum og verkefnin þar eru mismikil eftir árstíðum. Það er dauður tími frá miðjum nóvember og fram í endaðan febrúar. Reynd- ar hefur verkefnum á þeim tíma fjölgað vegna fiskeldisins á Vest- fjörðum. Skip frá fiskeldisfyrirtækj- um koma helst í slipp eftir að há- annatímanum er lokið,“ segir hann og bætir því við að nýlega hafi ver- ið lokið við að koma fyrir kælitanki, auk annarra breytinga, á Saxhamri SH-50 sen gerður er út frá Rifi. Þá voru Gunnar Bjarnason SH-122 og Hannes Andrésson SH-737 í slipp þegar blaðamann bar að garði. Sæv- ar segir flesta báta sem koma í slipp í Skipavík vera af Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Fyrirtækið geti tek- ið við bátum allt að 450 tonnum að stærð. „Við getum tekið flesta báta af Nesinu í slipp fyrir utan þá allra stærstu,“ segir hann. Skipavík byggir nýtt Amtsbókasafn Stærsta verkefni Skipavíkur um þessar mundir er hins vegar bygg- ing nýs Amtsbókasafns í Stykkis- hólmi. Verkefnið hljóðar upp á 250 milljónir króna og framkvæmdir eru hafnar. „Það er byrjað að moka og áætluð verklok eru 20. septem- ber 2017,“ segir Sævar. Eins og Skessuhorn greindi frá fyrr í mán- uðinum var hart tekist á um bygg- ingu Amtsbókasafns í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar. Samþykkt var með fjórum atkvæðum gegn þrem- ur að hrinda verkinu í framkvæmd. Sævar segir að framkvæmdin hafi verið áberandi í umræðunni í bæn- um síðan hún var samþykkt í bæjar- stjórn. „Það hefur verið mikið rætt um þetta mál og fólk hefur misjafn- ar skoðanir,“ segir Sævar. „Ég hef gaman af því þegar menn takast á en er blessunarlega laus við að vera í bæjarpólitíkinni, það er betra að einbeita sér að rekstri fyrirtækisins. Margir hafa sem betur fer skoðanir á bæjarmálum og ef eitthvað er gert eru einhverjir því ósammála eða hafa sterkar skoðanir, menn verða náttúrulega að taka því.“ Sigldu lygnan sjó gegnum kreppuna Að sögn Sævars hefur Skipavík gengið vel að standa af sér sveifl- ur í efnahagslífi þjóðarinnar. „Þeg- ar svokallað hrun reið yfir þá hafði það engin alvarleg áhrif á rekstur fyrirtækisins. Sjávarútvegurinn hélt sínu striki í hruninu og við héldum verkefnum okkar fyrir Norðurál sem hélt okkur gangandi. Fólk ger- ir sér ekki almennt grein fyrir þeim óbeinu áhrifum sem Norðurál hef- ur og hefur verið mikil gæfa fyrir okkur í Skipavík. Við sigldum því nokkuð lygnan sjó í gegnum krepp- una,“ segir hann. „Byggingahluti fyrirtækisins, sem komið var á fót árið 1998 og varð strax stór hluti af rekstrinum, dróst aðeins saman í hruninu. Fór úr 25 starfsmönnum niður í átta. En síðustu tvö ár hefur þessi hluti fyrirtækisins vaxið jafnt „Þetta er alltaf rekið á sömu gömlu góðu kennitölunni“ Rætt við Sævar Harðarson, framkvæmdastjóra Skipavíkur í Stykkishólmi og þétt að nýju,“ segir Sævar. Almennt séð segir framkvæmda- stjórinn að rekstur Skipavíkur hafi gengið vel, þótt sveiflur hafi auðvit- að verið í rekstrinum. „Hér er ein- faldlega þjónusta sem þarf að vera til staðar á hverju svæði fyrir sig. Það er ekki mikið af stórum verktakafyr- irtækjum á Snæfellsnesi fyrir utan okkur og við erum einir af þeim fáu sem aldrei hafa farið á haus- inn,“ segir Sævar ánægður. „Þetta er alltaf rekið á sömu gömlu, góðu kennitölunni,“ bætir hann við létt- ur í bragði. Íhuga plastbátasmíði Aðspurður um framtíðaráform fyr- irtækisins segir Sævar að mestu óbreyttan rekstur í kortunum. Stærsta einstöku verkefnin eru í byggingadeildinni; Amtsbókasafn- ið, eins og áður segir, en einn- ig hyggist fyrirtækið reisa nokkra sumarbústaði utan við Stykkis- hólm. „Við eigum ennþá fimm lóð- ir og ætlum að ljúka við þá vinnu á næstu tveimur árum eða svo,“ seg- ir hann. „Hvað varðar skipasmíðina þá erum við um þessar mundir að huga að plastbátasmíði fyrir Nor- egsmarkað. Við keyptum platsbáta- mót og einn skrokk af Skaganum á Akranesi og erum að klára skrokk- inn. Hins vegar er gengi norsku krónunnar óhagstætt um þessar mundir svo við bíðum bara færis,“ segir Sævar að lokum. kgk Sævar Harðarson, framkvæmdastjóri Skipavíkur. Gunnbjörn Guðmundsson og Halldór Jóhann Kristjánsson við skipsskrúfu í vélsmiðju Skipavíkur. Byrjað er að moka fyrir grunni nýs Amtsbókasafns í Stykkishólmi. Bygging þess er stærsta einstaka verkefni Skipavíkur um þessar mundir. Áætlað er að verkinu verði lokið haustið 2017.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.