Skessuhorn - 24.08.2016, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201618
LEIKSKÓLAR
Akrasel á Akranesi
Leikskólinn Akrasel á Akranesi var opnaður fyrst fyrir átta
árum, þann 8. ágúst 2008. Um er að ræða sex deilda leikskóla
fyrir börn á aldrinum tveggja til fimm ára. Opnað var eftir
sumarfrí á afmælisdegi leikskólans og er von á að börnin verði
138 talsins á þessu skólaári. „Það útskrifuðust 48 börn í vor
og nú koma inn 35 ný börn sem tilheyra yngsta aldursflokk-
inum ásamt nokkrum eldri börnum. Yngstu börnin eru núna
á tveimur deildum. Við erum að taka seinni hópinn í aðlög-
un núna og í þessari viku eiga öll börn að vera orðin aðlög-
uð,“ segir Guðrún Bragadóttir aðstoðarleikskólastjóri og sér-
kennslustjóri Akrasels. Á Akraseli er notuð þátttökuaðlögun
og segir Guðrún það ganga vel. Aðlögunin tekur ekki langan
tíma, en foreldrar eru með börnum sínum allan tímann í að-
lögun. „Það var stór hópur foreldra hjá okkur í síðustu viku
að aðlaga börnin og mikið fjör og gaman. Fyrsta daginn eru
þau í tvo og hálfan tíma með foreldrum og svo næstu tvo daga
eru foreldrar með börnunum allan daginn og taka fullan þátt
í daglega lífinu okkar,“ segir hún. Í vetur eru 36 starfsmenn á
Akraseli í 30 stöðugildum og eru 70% þeirra fagmenntaðir.
Akrasel er Grænfánaleikskóli og eru einkunnarorð skólans
náttúra, næring og nærvera. Mikið er unnið með jóga í leik-
skólanum sem og íþróttir. „Við vorum til dæmis með mjög
skemmtilega nýbreytni í fyrra að ósk foreldra. Í stað föndur-
dags fyrir jólin var boðið upp á jógastund með barni og for-
eldri. Það var mjög mikil ánægja með þetta og því verður
þetta endurtekið í vetur. Að róa okkur niður í þessum jólaæs-
ingi. Við vinnum með umhverfismenntunina og svo erum við
ótrúlega heppin að vera með íþróttafræðing sem sér um elstu
börnin og þau börn sem þurfa sérstaklega örvun á því sviði,“
segir Guðrún. Hún bætir því við að til standi að gera starf-
ið í skólanum sýnilegra fyrir gesti leikskólans. „Við ætlum að
taka myndir af starfinu og setja á veggina. Við eigum eftir að
útfæra það betur en þarna verður starfið á deildunum sýni-
legra og það er oft besta endurmatið, að hafa þetta á mynd.“
Að sögn Guðrúnar er framundan á Akraseli að halda áfram
því góða starfi sem þar er unnið. „Á hverri deild eru ferðadag-
ar, þá er farið út fyrir leikskólann, í gönguferð, hjólatúr og oft
unnin ákveðin verkefni í hverri ferð sem er svo haldið áfram
með í leikskólanum. Starfsfólkið er ótrúlega jákvætt og dug-
legt að fara út fyrir boxið. Þau eru skapandi, hugmyndarík og
lausnamiðuð. Ég er mjög ánægð að tilheyra þessum hópi,“
segir Guðrún Bragadóttir aðstoðarleikskólastjóri.
Garðasel á Akranesi
Leikskólinn Garðasel á Akranesi er þriggja deilda leikskóli
sem hefur verið starfræktur frá árinu 1991. Skólinn opnaði 8.
ágúst eftir sumarfrí og í ár eru 78 börn, líkt og í fyrra. Leik-
skólinn er fullmannaður og þar eru 23 starfsmenn í 20 stöðu-
gildum. „Í vor útskrifuðum við 15 börn og núna eru 18 ný
að koma inn á yngstu deildina,“ segir Ingunn Ríkharðsdóttir
leikskólastjóri. Aðlögun yngstu barnanna er lokið en í Garða-
seli er notað þátttökuaðlögun, þar sem foreldrar koma með
börnunum í leikskólann fyrstu dagana.
Garðasel er heilsuleikskóli og þar er lögð áhersla á hreyf-
ingu, næringu og gæði í samskiptum. Boðið er upp á mat sem
er að mestu unnin frá grunni og börnin fá skipulagða hreyf-
istund í hverri viku og fara einnig í jóga, dans og útinám.
„Í vetur verður verkefnið Vinátta frá Barnaheillum innleitt í
skólastarfið og í september verður námskeiði fyrir alla starf-
menn og þannig verður Garðasel Vináttu-leikskóli. Verkefnið
fellur vel aðferðum Uppeldis til ábyrgðar þar sem áherslan er
á gæði í samskiptum og finna leiðir til að leysa mál á jákvæðan
og uppbyggjandi hátt, “ segir Ingunn að lokum.
Teigasel á Akranesi
Leikskólinn Teigasel á Akranesi var opnaður eftir sumarlokun
8. ágúst síðastliðinn. Teigasel er minnsti leikskólinn á Akra-
nesi og þar eru þrjár deildir. Í ár eru 72 börn á aldrinum 2
- 5 ára skráð á leikskólann, sem er sami fjöldi og undanfarin
ár. Að sögn Margrétar Þóru Jónsdóttur leikskólastjóra byrjaði
aðlögun í síðustu viku og hefur hún gengið vel. „Við byrjuð-
um að aðlaga 13 börn og klárum aðlögun í lok ágúst. Hér er
notast við þátttökuaðlögun, sem mér finnst mjög góð aðlög-
unaraðferð. Foreldrarnir eru með börnunum í leik og starfi
í þrjá daga, svæfa þau til dæmis og skipta á þeim. Þau kynn-
ast rútínunni vel og mér finnst þeir verða öruggari og börnin
líka,“ segir hún.
Margrét Þóra segir sömu áherslur vera á leikskólanum og
undanfarin ár. Þar er unnið með stærðfræði á öllum deildum
og málörvunarefnið Lubbi finnur málbein. Lögð er áhersla á
vinnu með lífsleikni hjá öllum börnum og stuðst við námsefn-
ið Stig af stigi á elstu deild. Þá er einnig unnið með snemm-
tæka íhlutun í málörvun. Alls eru 19 starfsmenn á Teigaseli.
„Það hefur verið svolítið um mannabreytingar og nýir starfs-
menn eru komnir inn. Mér finnst haustið fara mjög vel af
stað. Starfsfólk, börn og foreldrar eru glaðir að byrja aftur og
komast í þessa góðu rútínu. Við höldum svo áfram okkar pró-
grammi, eins og var í fyrra,“ segir Margrét Þóra.
Vallarsel á Akranesi
Leikskólinn Vallarsel er sex deilda leikskóli á Akranesi. Alls
eru 140 börn skráð á leikskólann og þar ef eru 30 tvítyngt. Að
sögn Brynhildar Bjargar Jónsdóttur leikskólastjóra útskrifuð-
ust 36 börn síðastliðið vor og nú byrja 33 börn sem fædd eru
2014, ásamt nokkrum í öðrum árgöngum. Hún segir óveru-
legar mannabreytingar hafa verið undanfarið og leikskólinn
er fullmannaður, en alls starfa þar 35 í rúmlega 33 stöðugild-
um.
Á Vallarseli er aðaláherslan lögð á tónlist en frjálsum leik
einnig gert hátt undir höfði, sem og útiveru. „Við sinnum
skipulagðri hreyfingu og listasmiðjuvinnu mjög vel og not-
um mikið af verðlausu efni. Við erum með lífsleiknivinnu og
könnunarleik og tökum þátt í öflugu starfi í verkefninu Brú-
um bilið. Við erum með öflugt starf í kringum tvítyngd börn
og búið er að taka inn málörvunarverkefni um Lubba, sem
fellur vel að starfinu okkar,“ segir Brynhildur Björg. Vor-
ið 2015 fékk leikskólinn myndarlegan styrk til tveggja ára,
til að vinna að þróun og uppfærslu á allri málörvun tengdri
tvítyngdum börnum. „Nú er að hefjast seinna skólaárið og
búið er að vinna mjög mikið í að þróa þessa vinnu og afmarka.
Næsta skólaár verður keyrt áfram á þetta verkefni þar til því
lýkur svo næsta vor. Það mun vera í algjörum forgangi hjá
okkur og ekkert nýtt tekið inn á meðan.“
Leikskólinn Andabær á Hvanneyri
Leikskólinn Andabær er staðsettur á Hvanneyri í Borgarfirði.
Þar munu 36 börn hefja skólaárið en að sögn Sigurðar Sigur-
jónssonar leikskólastjóra er gert ráð fyrir að þeim fjölgi þegar
líður á skólaárið. „Það útskrifuðust fimm börn hjá okkur í vor
sem fara í Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri og Grunn-
skólann í Borgarnesi. Tvö börn eru að hefja aðlögun núna
í ágúst,“ segir Sigurður. Leikskólinn er þriggja deilda, fyrir
börn á aldrinum 18 mánaða til sex ára. Þetta skólaár munu 18
starfsmenn í tæplega 13 stöðugildum starfa við skólann. Sig-
urður segir einhverjar mannabreytingar hafa orðið milli ára
og að ráðningum sé ekki lokið.
Leikskólinn Andabær tekur þátt í leiðtogaverkefninu Leið-
toginn í mér og að sögn Sigurðar ýtir verkefnið undir leið-
Samantekt um starf leikskólanna á Vesturlandi
Fyrr í ágústmánuði voru allir leikskólar á Vesturlandi opnaðir að nýju eftir sumarlokanir.
Nýir nemendur hafa nú flestir stigið sín fyrstu skref á sínu fyrsta skólastigi, aðlögun að hefjast
eða henni jafnvel að ljúka og hefðbundið skólastarf að fara í gang. Skessuhorn heyrði
í stjórnendum allra leikskólanna og fékk helstu upplýsingar frá hverjum og einum.
Börn af Akraseli í hjólatúr.
Börn af leikskólanum Garðaseli að leik.
Börn í þátttökuaðlögun á Teigaseli á Akranesi.
Það er oft mikið fjör í útiveru á Vallarseli.
Unnið með opinn efnivið á leikskólanum Andabæ.