Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2016 19
LEIKSKÓLAR
togahæfileika nemenda og starfsfólks og þroskar samskipta-
hæfni. „Leikskólinn er líka grænfánaleikskóli og hefur flaggað
grænfána Landverndar síðustu ellefu ár. Andabær er heilsu-
leikskóli síðan 2013 og vinnur eftir Heilsustefnu samtaka
heilsuleikskóla.“ Einkunnarorð leikskólans eru Leikur - Gleði
- Vinátta og hugmyndafræði leikskólans byggir á því að virkja
barnið með því að bjóða upp á opinn efnivið og að nemend-
ur læri m.a. af eigin reynslu. „Með því að bjóða upp á opinn
efnivið, hvetjum við barnið til gagnrýnnar hugsunar og örv-
um um leið sköpunar- og leikgleði þess og eflum hugmynda-
flug barnsins. Opinn efniviður býður ekki upp á tilbúnar, fyr-
irfram ákveðnar lausnir, heldur er hægt að nota hann aftur og
aftur á nýjan og ólíkan hátt,“ segir Sigurður.
Hnoðraból í Reykholtsdal
Leikskólinn Hnoðraból var opnaður 4. ágúst síðastliðinn
eftir sumarleyfi. Hnoðraból er tveggja deilda leikskóli og
að sögn Sjafnar Vilhjálmsdóttur leikskólastjóra eru 19 börn
skráð í leikskólann fyrir komandi vetur. „Við gætum mögu-
lega bætt við fleiri börnum en það er tæpt. Húsnæðið býður
bara ekki upp á það. Það er verið að skoða lausnir á húsnæð-
ismálum fyrir okkur og sveitarfélagið hefur verið boðið og
búið með að finna farsæla lausn á því,“ segir Sjöfn. Við leik-
skólann eru sjö starfsmenn, ekki allir í fullu starfi, og hefur
aðeins verið hreyfing í starfsmannahópnum frá áramótum
en nú er það allt orðið stöðugt að sögn Sjafnar.
Á Hnoðrabóli er mikið unnið með nærumhverfið og það
sem árstíðarnar bjóða upp á og núna þegar farið er inn í
haustið verður mikið um útiveru og gönguferðir. „Við erum
grænfána leikskóli og höfum verið að vinna með leiðtoga-
fræði og það verður haldið áfram með það í vetur. Í leiðtoga-
fræðinni þarf að vera einn leiðtogadagur á hverjum vetri. Við
ætlum að hafa þann dag á þrjátíu ára afmælisdegi leikskólans,
sem verður 20. október næstkomandi. Þá verður foreldrum
og öðrum gestum úr nærsamfélaginu boðið í heimsókn til
að gleðjast með okkur. Börnin skipuleggja það, bjóða, taka
á móti og sjá um allt tengt deginum, þau verða leiðtogarn-
ir,“ segir Sjöfn.
Hraunborg á Bifröst
Leikskólinn Hraunborg er eini leikskólinn á Vesturlandi sem
rekinn er af Hjallastefnunni. Að sögn Báru Tómasdóttur leik-
skólastjóra eru 32 börn skráð í leikskólann núna, þar af átta
sem eru að koma ný inn. Þar sem leikskólinn er staðsett-
ur í háskólasamfélaginu á Bifröst er mikið um að börn séu
að koma ný inn á öllum aldri og miklar sveiflur geta verið á
barnafjölda. Á Hraunborg starfa tíu manns. Leikskólinn vinn-
ur eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar sem byggir á jafn-
rétti og velferð kynjanna.
Venjulega eru kynjaskiptir kjarnar á Hraunborg en vegna
þess hve fá börn eru núna var ákveðið að hafa kynjabland-
aða kjarna þennan skólavetur, yngri kjarna og eldri kjarna.
„Hjallastefnunni er ætlað að mæta hverju barni eins og það
er og virða og viðurkenna ólíkar þarfir aldurshópa, kynja og
einstaklinga. Skólanum ber einnig að virða valfrelsi og ólík-
an áhuga barna og hlúa á víðfeðman hátt að velgengni allra.
Börn eru eins misjöfn eins og þau eru mörg – einstök hvert
og eitt. Öll hafa þau skýr einstaklingseinkenni, sérstaka hæfni
og áhuga og sterkan vilja. Það er grundvallaratriði fyrir far-
sæld þeirra að skólinn hlúi að þeim á þeirra eigin forsendum
og forðist að gera sömu kröfur til allra og steypa alla í sama
mót,“ segir Bára. Hún segir Hjallastefnuleikskóla þar af leið-
andi leita allra leiða í skipulagi sínu og starfsháttum til að hafa
fjölbreytileg verkefni og valkosti fyrir hendi. „Hjallastefnu-
kennarar fagna fjölbreytileikanum innan barnahópsins og
telja ekki eftir sér að stíga skrefinu lengra til að mæta hverju
barni; minnugir þess að skólinn er til vegna barna en ekki
börnin vegna skólans. Þannig snýst allt um reynslu og nám
nemandans en ekki kennslu kennarans og því breyta Hjalla-
stefnukennarar starfsháttum sínum eftir aldri, þroska og getu
„sinna barna“ hverju sinni,“ segir Bára að endingu.
Klettaborg í Borgarnesi
Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi verður fullsetinn í vetur
með 65 börn á þremur deildum. „Aðlögun er í fullum gangi
núna og frá júní og fram á haustið byrja 15 ný börn hjá okkur á
aldrinum 14 mánaða til fimm ára,“ segir Steinunn Baldursdóttir
leikskólastjóri. Við leikskólann eru 20 starfsmenn og er rúmlega
helmingur þeirra faglærðu og margir sem hafa mikla reynslu.
„Hjá okkur hefur verið mikill stöðugleiki í starfsmannahaldinu
undanfarin ár. Þrír fastráðnir leiðbeinendur hættu hjá okkur í
sumar en vel gekk að ráða í þeirra stað,“ segir Steinunn.
Í Klettaborg er fyrst og fremst lögð áhersla á einstaklings-
miðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsueflingu og
eru einkunnarorð leikskólans; Sjálfstæði, virðing og gleði. „Við
viljum í samvinnu við heimilin sjá sjálfstæðan, hamingjusaman,
skapandi og agaðan einstakling með jákvæða sjálfsmynd, sem
tjáir tilfinningar sínar, virðir skoðanir og tekur tillit til annarra,“
segir Steinunn og bætir því við að framundan í vetur er stefnt
á að auka hópastarf og notkun spjaldtölvu í skólastarfinu á öll-
um deildum.
Ugluklettur í Borgarnesi
Börn og starfsmenn á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi
komu til starfa eftir sumarfrí fimmtudaginn 4. ágúst og eru
þessa dagana tólf ný börn að koma inn, sum að taka sín fyrstu
skref í leikskólagöngunni en önnur ekki. Í voru útskrifuðust
ellefu börn sem eru að hefja grunnskólagöngu. Að sögn Krist-
Hyrjarhöfði 8 110 Reykjavík
sími: 577-1090
Við
Önnumst
Á Hnoðrabóli er mikil útiveru og farið í gönguferðir.
Kátir krakkar á Hjallastefnuleikskólanum Hraunborg á Bifröst.
Mikið fjör í útiveru í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi.
Börn af leikskólanum Uglukletti í fjöruferð.
Á hjóladegi á Akraseli
á Akranesi í gær.
Ljósm. ki.