Skessuhorn - 24.08.2016, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 201634
„Hvernig finnst
þér sumarið búið að vera?“
Spurning
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi)
Högni Bæringsson:
„Bara mjög gott.“
Gissur Tryggvason:
„Bara fínt, veðrið milt og gott.“
Aleksandra Sicinska:
„Sumarið er búið að vera mjög
notalegt. Ekki of heitt og veðrið
kemur stöðugt á óvart.“
Brynja Reynisdóttir:
„Gott. Veðrið er búið að vera
gott og ég fór í skemmtilegt
sumarfrí.“
Gunnlaugur Valdimarsson:
„Sumarið er búið að vera alveg
dásamlegt. Hlýtt og notalegt og
úrkomulítið.“
Baráttan var æsispennandi um
fyrsta sætið á Íslandsmóti Félags
áhugafólks um íþróttir aldraðra
(FÁÍA) í pútti 60 ára og eldri. Mót-
ið fór fram í Reykjanesbæ síðast-
liðinn fimmtudag. Fjórir keppend-
ur voru þar jafnir í karlaflokki á 66
höggum og réðust úrslit í bráða-
bana. Eftir bráðabanann lá fyrir
að Aðalbergur Þórarinsson hafði
tryggt sér fyrsta sætið, Hafsteinn
Guðnason varð annar og Ingi-
mundur Ingimundarson í Borgar-
nesi þriðji. Í kvennaflokki var Ey-
dís Eyjólfsdóttir í fyrsta sæti, Álf-
heiður Einarsdóttir í öðru sæti en
Jytta Juul í Borgarfirði þriðja.
Metþátttaka var á Íslandsmótinu
enda blíðskaparveður. Til leiks
voru skráðir 94 keppendur frá ell-
efu félögum og komu sumir langt
að. Allar félagsmiðstöðvar eða aðr-
ir staðir um allt land þar sem aldr-
aðir æfa pútt gátu sent keppend-
ur eða lið á mótið. Flestir kepp-
enda eru gamlar kempur úr ung-
mennafélagshreyfingunni. Kepp-
endur voru á ýmsum aldri og var
sá elsti 95 ára. Mótið var keppni á
milli einstaklinga, karla og kvenna,
en einnig var boðið upp á liða-
keppni og voru fjórir í hverju liði.
Púttklúbbur Suðurnesja átti veg
og vanda að mótahaldinu í sam-
starfi við FÁÍA.
mm
Borgfirðingar í þriðja sæti í púttkeppni FÁÍA
Efstu þrír í karlaflokki. Efstu þrjár í kvennaflokki.
Eins og fram kom í Skessuhorni ætl-
ar KSÍ að greiða 453 milljónir krón-
ur af EM tekjum sínum til aðildar-
félaga sambandsins. KSÍ setti það
skilyrði að peningunum yrði aðeins
varið í knattspyrnutengda starfsemi
félaganna. Töluverð umræða hefur
skapast um hvernig nýta skuli fjár-
munina og hafa margir gagnrýnt KSÍ
fyrir að fara ekki að ráðum Lars Lag-
erbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfara
Ísland, en hann sagði að best væri að
skylda félögin til þess að nota fjár-
munina í uppeldisstarf. Félögin hafa
fæst gefið út hvernig peningurinn
skuli vera nýttur. Skagamenn fengu
einna hæstu upphæðina frá KSÍ, eða
17 milljónir króna. ÍA birti strax í
kjölfarið tilkynningu þar sem félagið
kveðst ætla að nýta alla fjármunina í
uppeldisstarf félagsins. „Iðkendur í
Knattspyrnufélagi ÍA eru nú um 530
talsins á breiðu aldursbili og er starf-
semin í miklum blóma eins og mörg
undanfarin ár. Skagamenn gera mikl-
ar kröfur um að eiga knattspyrnulið
í fremstu röð á Íslandi og krafan er
einnig rík um að byggja á heima-
mönnum þar sem öflugt barna og
unglingastarf er undirstaðan.
Á grundvelli framangreinds og
þeirrar stefnu sem Knattspyrnufélag
ÍA starfar eftir ákvað stjórn félagsins
þann 11. ágúst síðastliðinn að svo-
kölluðu EM framlagi frá KSÍ yrði
ekki varið til rekstrar heldur í sér-
stök framfaraverkefni á næstu árum.
Framlagið er samtals um 17 milljón-
ir króna. Vinnuhópur innan félagsins
vinnur að tillögugerð í þessum efn-
um.
Knattspyrnufélag ÍA ætlar að virða
uppruna EM fjármuna og beina
þeim í verkefni sem eru til þess fall-
inn að efla yngri iðkenndur og með
því auka líkurnar á því að enn fleiri
afreksmenn skili sér úr því góða
starfi sem fram fer hjá félaginu,” seg-
ir Magnús Guðmundsson formaður
Knattspyrnufélags ÍA í tilkynningu
sem birt var á vef félagsins.
bþb
ÍA ætlar að nýta EM
framlagið í uppeldisstarfið
Vænn lax veiddist í Hólmkelsá á
norðanverðu Snæfellsnesi nú á
dögunum. Laxinn var 77 senti-
metra langur, nýgenginn og veidd-
ist fyrir neðan gömlu brúna. Það
var Lúðvík Ver Smárason sem
landaði þessum fallega fiski. Veið-
in í ánni hefur verið góð undan-
farin sumur og hefur verið að gefa
um og yfir 50 fiska á sumri. Verð-
ur sumarið í ár ekki nein undan-
tekning. Nú hafa veiðst allt upp í
20 punda fiskar í ánni. Stangveiði-
félag Jöklara er með ána á leigu og
eru félagar í því um 40. Ekki eru
allir að nýta sín leyfi og hefur nýt-
ingin verið í kringum 30%.
þa
Vænn fiskur úr Hólmkelsá
Víkingur Ó. mætti liði liði Skín-
anda í þrettándu umferð A- rið-
ils í fyrstu deild kvenna í fótbolta
fimmtudaginn 18. ágúst síðastlið-
inn. Leiknum lauk með 2-0 sigri
Víkings en mörkin skoruðu þær
Freydís Bjarnadóttir og Samira Su-
leman. Með sigrinum tryggði Vík-
ingur sér þriðja sæti A-riðils og þar
með umspilsrétt um sæti í úrvals-
deild kvenna að ári.
Fyrirkomulagið í fyrstu deild
kvenna er svoleiðis að spilað er í
þremur riðlum og komast efstu tvö
sætin í öllum riðlum beint í umspil
um sæti í úrvalsdeild; auk þeirra
fara tvö af þremur stigahæstu liðum
í þriðja sæti einnig í umspil. Það er
orðið ljóst að Víkingur mun spila
um sæti í úrvalsdeild.
Næsti leikur Víkings er gegn ÍR
á morgun klukkan 18:00 á heima-
velli. ÍR er í öðru sæti, tveimur stig-
um fyrir ofan Víking. Leikurinn er
lokaleikur riðilsins og því spilað
upp á hvort liðið lendir í öðru sæti.
Ef Víkingur vinnur leikinn mæta
þær liði Sindra á Hornafirði í átta
liða úrslitum en ef þær tapa mæta
þær liði Grindavíkur. bþb
Víkingur Ó. spilar um
laust sæti í úrvalsdeild
Nú um helgina náðist samkomu-
lag milli Körfuknattleiksfélags
ÍA og Bandaríkjamannsins Derek
Dan Shouse um að Derek muni
leika með félaginu á komandi leik-
tíð. Derek er 22ja ára bakvörður
sem er 185 cm á hæð og getur leyst
stöðu leikstjórnanda og skotbakv-
arðar. Derek er að stíga sín fyrstu
spor sem leikmaður utan Banda-
ríkjanna en til gamans má geta
að hann er sonur Danny Shouse
sem gerði garðinn frægan með
liði Njarðvíkur og Ármanns hér
á árum áður. Samkvæmt Jóni Þór
Þórðarsyni, þjálfara ÍA, eru vonir
ÍA þær að Derek geti hjálpað lið-
inu að skila inn stigum utan af velli
en ekki að hann skori hundrað stig
í leik líkt og faðir hans gerði í leik
með Ármanni gegn Skallagrími
árið 1979.
ÍA hefur leik í fyrstu deildinni 6.
október gegn FSu á útivelli. Þjálf-
araskipti urðu hjá ÍA í sumar en
þeir Fannar Helgason og Áskell
Jónsson létu af störfum sem þjálf-
arar en munu þó spila áfram fyrir
liðið. Við liðinu tók Skagamaður-
inn Jón Þór Þórðarson og honum
til aðstoðar verður Stefán Jóhann
Hreinsson sem lék á árum áður
með Tindastól og Þór Akureyri.
bþb
Skagamenn semja við
nýjan Bandaríkjamann