Skessuhorn - 21.09.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 201614
Ágúst Smári Beaumont, ritari Pí-
rata á Vesturlandi, hefur sent fjöl-
miðlum tilkynningu þar sem sem
hann harmar það sem hann kall-
ar tvöfalt siðferði flokksins. „Pírat-
ar í Norðvesturkjördæmi sitja uppi
með lista til alþingiskosninga frá
stórhöfuðborgarsvæðinu. Smölun
er liðin, svo lengi sem að sá smali
sé þóknanlegur félagsmönnum að
sunnan,“ segir Ágúst. „Það er ól-
íðandi að við í Norðvesturkjör-
dæmi sem aðhyllumst nýja nálgun
og betri stjórnmál skulum þurfa að
sitja uppi með þennan lista óbreytt-
an,“ segir Ágúst. Forsöguna seg-
ir hann þá að Þórður G. Péturs-
son íþróttakennari var sakaður af
félagsmönnum um óæskilega smöl-
un með því að bjóða vini sína og
fjölskyldu velkomna í faðm Pírata,
en Þórður hafnaði eins og kunnugt
er í efsta sæti listans í fyrr prófkjör-
inu. „Þórður var aflífaður af Píröt-
um með óásættanlegum og niðr-
andi hætti, bæði á neti sem og í fjöl-
miðlum. Listinn var síðar felldur í
staðfestingakosningu sem Píratar
um allt land gátu staðfest eða hafn-
að. Eftir að ljóst var að listi Pírata í
kjördæminu væri felldur, var próf-
kjörið endurtekið og allir Píratar
um allt land fengu að taka þátt.
Úrslit síðara prófkjörs komu
félagsmönnum um allt land mjög
á óvart, en þar hafði frambjóðandi
sem áður hafði hafnað í 6. sæti á
lista Pírata í kjördæminu, lent í 2.
sæti, og hafði því hoppað um fjög-
ur sæti. Við nánari skoðun mátti sjá
að um smölun hefði verið að ræða,
sem síðan fékkst staðfest. Nú í dag,
sem þakka má fréttaumfjöllun lið-
innar viku, hafa margir stígið fram
og tjáð undrun sína á þessari nið-
urstöðu, ásamt því að fjöldi skráðra
Pírata hafa sett sig í samband við
mig og kvartað undan símtölum
Gunnars Ingibergs [Guðmunds-
sonar, innsk. blm.]. Þau símtöl voru
flest á þá leið, að fella bæri listann
og að kjósa bæri hann í efsta sæti
listans,“ segir Ágúst. „Með þessari
hegðun Gunnars og hans stuðn-
ingsmanna, sýna þeir prófkjöri Pí-
rata í kjördæminu lítilsvirðingu
og siðlaust atferði, sem við Píratar
viljum ekki vera þekkt fyrir,“ segir
Ágúst.
„Undanfarna daga hefur sá sem
þetta skrifað, leitað eftir útskýring-
um á þessu tvöfalda siðferði sem
Gunnar Ingiberg hefur viðhaft en
svör hafa ekki borist. Það er skýr
krafa undirritaðs, og margra félags-
manna í kjördæminu, að Gunnar
Ingiberg segi sig af lista Pírata án
tafar svo góð sátt náist um þann
annars frábæra lista sem Píratar
bjóða uppá í Norðvesturkjördæmi.
Tvöfalda siðgæði Pírata gengur
ekki upp. Það er ljóst að þeir sem
vilja mótmæla þessum vinnubrögð-
um Gunnars Ingibergs hafa þann
eina kost í stöðunni að strika hann
útaf lista verði hann áfram á lista,“
segir Ágúst að lokum í tilkynningu
sinni til fjölmiðla.
mm
Smölun þóknanleg félagsmönnum að sunnan
Ágúst og Birgitta Jónsdóttir kafteinn
Pírata. Ljósm. Píratar.
Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur, hafa hafið vinnu við
lagningu fráveitulagna og bygg-
ingu dælubrunns við Krókalón á
Akranesi. Tilgangurinn er að veita
frárennslinu áleiðis í nýja hreinsi-
stöð við Ægisbraut. Verið er að
byggja staðsteyptan, niðurgraf-
inn dælubrunn, neðan við Vestur-
götu 69 og leggja nýja yfirfallsút-
rás frá honum um 100 m út í sjó.
Samkvæmt upplýsingum frá Ólöfu
Snæhólm Baldursdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Veitna, er vinnan við
framkvæmdirnar á áætlun. „Búið er
að steypa upp dælubrunn og leggja
fráveitulögn vestan megin við
hann og unnið er við uppsetningu
á vél- og rafbúnaði í hreinsistöð-
inni við Ægisbraut. Næsta verk er
að halda áfram með fráveitulögnina
til austurs meðfram grjótvarnar-
garði og setja upp vél- og rafbúnað
í dælubrunninn,“ segir Ólöf. Fram-
kvæmdasvæðið er frá Krókatúni 20
að Vesturgötu 105, meðfram grjót-
garðinum í fjörunni. Áætlað er að
framkvæmdum við Krókalón ljúki
fyrir næstu áramót og að hreinsi-
stöðin við Ægisbraut verði tilbúin
til gangsetningar í lok desember.
grþ
Unnið að lagningu
fráveitulagna við Krókalón
Menn að störfum við lagningu fráveitulagna við Krókalón á Akranesi. Ljósm. jho.
Fyrirtækið Stykki ehf. í Stykkishólmi
hefur nú lokið við smíði á fyrstu
brúnni hér á landi sem smíðuð er
úr plasti. Um er að ræða 11,5 metra
langa og 1,5 metra breiða göngubrú
úr trefjastyrktum fjölleiðurum. Efn-
ið býður upp á mikla möguleika og
hefur verið nýtt í margt úti í hinum
stóra heimi, svo sem fyrir útsýnis-
palla, hjólastólarampa, flotbryggj-
ur, stiga og brýr fyrir bílaumferð svo
eitthvað sé nefnt. Starfsmenn Stykk-
is, þeir Álfgeir Marinósson og Þór-
arinn Sighvatsson, segja kosti við
plastbrúnna marga. Brúin er létt,
aðeins um 900 kíló og því auðveld
í flutningum. Hún þarf ekkert við-
hald og efnið í henni er mjög sterkt.
Þá telja þeir líkur á að brúm úr þessu
efni komi til með að fjölga á næstu
árum. Göngubrýr á borð við þessa
mætti t.d. hæglega festa utan á eldri
brýr þar sem nú er einungis er gert
ráð fyrir bílaumferð. Brúin bíður nú
flutninga en hún verður flutt með
þyrlu á Hverasvæðið í Reykjadal
ofan við Hveragerði. Þangað yrði
erfitt að koma öðrum farartækjum
án þess að vinna spjöll á náttúrunni
og því hentar plastbrúin afar vel við
þessar aðstæður, þar sem hana má
flytja í heilu lagi með þyrlu sökum
þess hve létt hún er.
jse
Fyrsta plastgöngubrúin
hérlendis
Þórarinn og Álfgeir á plastbrúnni.
Um þessar mundir er verið að ljúka
vegaframkvæmdum á Uxahryggja-
leið og bundið slitlag lagt á þá hluta
sem unnið hefur verið við á hluta
leiðarinnar sem tengir Borgarfjörð
og Suðurland um Þingvelli. „Við
erum að endurbyggja vegarkafla í
Lundarreykjadal frá Skarði og upp
að Brautartungu. Þetta eru 5,4 kíló-
metrar sem verið er að ljúka við
núna,“ segir Ingvi Árnason svæðis-
stjóri Vegagerðarinnar í Borgarnesi.
Hann segir undirbúning við verkið
hafa byrjað síðastliðið haust, þegar
skipt var um ræsi og fleira. „Svo fór
þetta ekki af stað fyrr en núna í sum-
ar af alvöru og þeir eru að ljúka við
þetta núna. Þessum kafla er þá lokið
en síðan eru fleiri kaflar á dagskrá.
En það er nú eins og við segjum,
það er ekki alveg hægt að segja til
um fjármögnun á þeim, vegaáætlun
er ekki alveg frágengin,“ segir Ingvi.
Hann segir þó að gert sé ráð fyrir
því að fljótlega verði hægt að hefjast
handa við neðsta kaflann, frá Borg-
arfjarðarbraut við Götuás og upp að
Gröf í Lundarreykjadal, sem er um
3,6 kílómetra kafli, og vonast til að
Vegagerðin geti boðið það verk út í
vetur. Eftir að því verki ljúki sé samt
sem áður stór hluti leiðarinnar eftir,
sem er samtals um sextíu kílómetra
löng. Síðan er eftir að endurgera
veginn alveg frá Brautartungu upp
að Þverfjalli og frá Þverfjalli yfir Ux-
ahryggi og upp að Kaldadalsvegi.
Ingvi segir að búið sé að vinna á
Suðursvæðinu, á Kaldadalsvegi frá
Ármannsfelli og alveg upp að Ux-
ahryggjavegi við Brunnavatn. Kom-
ið er bundið slitlag á meginhluta
kaflans þar, bara smávegis eftir Þing-
vallamegin. Meðfylgjandi mynd var
af þeim hluta framkvæmdanna og
tekin á sunnudaginn þegar yfirlögn
stóð yfir.
grþ
Malbikað á Uxahryggjaleið
og í Lundarreykjadal
Um síðustu helgi var verið að leggja klæðningu á Uxahryggjaveg. Ljósm. bhs.
Matvælastofnun vekur athygli á
breytingarreglugerð um merking-
ar búfjár sem tók gildi 19. ágúst
síðastliðinn. Í reglugerðinni er
gerð breyting á 6. gr. sem fjallar
um merkingar nautgripa. Hér eft-
ir er tekin upp skylda að merkja
alla kálfa, einnig þá sem slátrað
er innan 20 daga, með forprent-
uðu plötumerki í bæðu eyru. Ekki
er lengur leyfilegt að auðkenna þá
með númeri móður, sem var gef-
ið upp við slátrun. Kálfurinn þarf
að vera merktur með viðurkenndu
plötumerki áður en hann er fluttur
frá búinu í sláturhús.
Í öðru lagi eru gerðar breyting-
ar á merkingarreglugerðinni til
að styrkja framkvæmd á einstak-
lingsmerkingum búfjár og þá sér-
staklega hvað varðar örmerkingu
hrossa. Þannig er sett inn ákvæði
um að örmerki skulu viðurkennd
af Matvælastofnun og að söluaðilar
megi aðeins selja örmerki í hross til
aðila sem hafa leyfi til örmerkinga
hrossa. Þá skulu allir umráðamenn
búfjár og söluaðilar viðurkenndra
merkja fyrir búfé vera skráðir í
MARK, sem er miðlægt tölvukerfi
sem heldur utan um merkingar bú-
fjár, en MARK fluttist yfir til Mat-
vælastofnunar um síðustu áramót
þegar stjórnsýsluverkefni voru flutt
frá Bændasamtökum Íslands.
Að síðustu bætist við nýtt ákvæði
um að í MARK skuli skrá pöntun
og sölu einstaklingsmerkja til um-
ráðamanna búfjár og viðurkenndra
merkingarmanna og upplýsing-
ar um einstaklingsnúmer keyptra
merkja.
mm
Breyting á reglum um merkingar búfjár
Vel merktir kálfar.