Skessuhorn - 04.01.2017, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 20176
Stækkun vígð og
tekin í notkun
STYKKISH: Nýr hluti
Stykkishólmskirkjugarðs hef-
ur verið vígður og tekinn í
notkun, en eldri hluti garðs-
ins er fullnýttur. Í eldri hluta
Stykkishólmskirkjugarðs eru
692 þekktar grafir, sú elsta frá
árinu 1921, en gert er ráð fyr-
ir því að í nýja hluta garðsins
geti rúmast allt að 300 grafir.
Stykkishólmspósturinn greinir
frá. Þá er einnig gert ráð fyrir
áframhaldandi stækkun garðs-
ins til austurs og yrði sú við-
bót svipuð að stærð og sú sem
nú hefur verið tekin í notk-
un. Mun þó ekki koma frek-
ari stækkunar garðsins í náinni
framtíð. Ljósberi eldri hluta
Stykkishólmskirkjugarðs er
Guðríður Sveinsdóttir, fædd
1835 og dáin 1921 en ljós-
beri nýja hlutans er Þorvald-
ur Ólafsson, sem jarðsunginn
var frá Stykkishólmskirkju 16.
desember síðastliðinn. Í frétt
Skessuhorns frá 2007 segir um
undirbúning þessarar stækk-
unar garðsins að hönnuður
væri Pétur Jónsson landslags-
arkitekt og að það væri Stykk-
ishólmsbær ásamt söfnuði
Stykkishólmssóknar sem sæu
um framkvæmdir.
-kgk
Kveikt í gámi
BORGARNES: Síðastliðið
sunnudagskvöld fékk Slökkvi-
lið Borgarbyggðar útkall
vegna elds í gámi við Nettó
í Borgarnesi. Að sögn Bjarna
Þorsteinssonar slökkviliðs-
stjóra var um pressugám að
ræða með pappa og tóku
slökkviliðsmenn gáminn upp
á bíl, óku með hann í sorp-
móttökuna við Sólbakka og
slökktu eldinn þar. Gekk það
verk vel fyrir sig. Bjarni seg-
ir að sést hafi til strákpjakka
sem grunaðir eru um að hafa
kveikt í innihaldi gámsins.
-mm
Engey væntanleg
í lok janúar
AKRANES: HB Grandi mun að
óbreyttu taka á móti Engey RE
91 í Tyrklandi á föstudaginn. Af-
hending hefur dregist nokkuð en
skipið er það fyrsta af þrem tog-
urum sem félagið er með í smíð-
um hjá skipasmíðastöðinni Ce-
liktrans. Seinni skipin tvö verða
afhent síðar á þessu ári, það fyrra
í vor og það seinna næsta haust.
Siglingin til Íslands tekur um 12
daga og mun Engey koma við í
Reykjavík á leið sinni til Akra-
ness. Á Akranesi mun Skaginn
hf. setja vinnslubúnað og kara-
flutningskerfi í skipið. Áætlað-
ur verktími er níu vikur og ætti
Engey því að geta farið á veiðar í
lok mars. -mm
Átta sinnum
undir áhrifum
fíkniefna
VESTURLAND: Á milli jóla
og nýárs var ungur maður stöðv-
aður í akstri á Akranesi, grun-
aður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Reyndist hann vera
sviptur ökuréttindum og einn-
ig fundust fíkniefni í bifreiðinni.
Að sögn lögreglu var þetta í átt-
unda skiptið sem þessi maður er
stöðvaður undir áhrifum fíkni-
efna og sjö sinnum áður hefur
hann verið kærður fyrir að aka
sviptur ökuleyfi. Á gamlársdag
stöðvuðu lögreglumenn í Borg-
arnesi svo för ökumanns sem
reyndist allnokkuð við skál. Blés
2,10 prómill í forprófi. Hann var
handtekinn og færður til blóð-
sýnatöku. -mm
Styrkja Hesta-
mannafélagið
AKRANES: Akraneskaupstað
barst nýverið erindi frá Hesta-
mannafélaginu Dreyra þar sem
óskað var eftir styrk til lokafrá-
gangs við keppnisvöll félags-
ins við Æðarodda. Fyrir nokkr-
um árum var ákveðið að breyta
keppnisvellinum þar sem hann
var ólöglegur sem keppnisvöll-
ur og erfiður yfirferðar í blautu
veðri. Eftir framkvæmdir á vell-
inum kom í ljós að aðstæður
voru ekki góðar á vellinum og
aftur þurfti að fara í lagfæring-
ar í ágúst sl. Tókust þær vel og
er völlurinn með betri völlum
á landinu í dag. Bæjarráð Akra-
neskaupstaðar hefur samþykkt
að styrkja Hestamannafélagið
Dreyra um 700 þúsund krónur
til lokafrágangs við keppnisvöll-
inn. -grþ
Nýr safnstjóri
HVANNEYRI:
Nú um áramót-
in varð sú breyt-
ing að Bjarni
Guðmundsson
lét af daglegri
stjórn Landbún-
aðarsafns Íslands
á Hvanneyri og
við tók Ragnhildur Helga Jóns-
dóttir frá Ausu. Bjarni hefur ver-
ið verkefnisstjóri safnsins frá upp-
hafi og þar áður yfir Búvélasafn-
inu, undanfara þess. Ragnhild-
ur Helga hefur sömuleiðis starf-
að að safninu um nokkurra ára
skeið, einkum við móttöku gesta
og annarri fræðslu. -mm
Rúta með 43 ferðamönnum, auk
fararstjóra og bílstjóra, valt á Snæ-
fellsnesvegi skammt frá Urriðaá
á Mýrum um klukkan 17 síðast-
liðinn fimmtudag. Flestir sem í
rútunni voru sluppu án meiðsla.
Fimm voru þó fluttir til læknis-
skoðunar, flestir með minnihátt-
ar meiðsli og enginn var alvar-
lega slasaður. Rauði krossinn var
fenginn til að opna fjöldahjálpar-
stöð og var það gert á Akranesi.
Fólkinu var ekið í húsnæði Björg-
unarfélags Akraness þar sem rætt
var við það, gefið kaffi og hressing
meðan beðið var eftir annarri rútu
frá Reykjavík til að sækja það.
Ferðafólkið var á vegum Kynn-
isferða. Það hafði keypt skoðunar-
ferð um morguninn og verið safn-
að af hótelum í Reykjavík. Hópur-
inn var að koma úr dagsferð um
Snæfellsnes þegar óhappið átti sér
stað. Helga Guðmundsson farar-
stjóri gat í samtali við blaðamann
Skessuhorns ekki sagt til um hvað
olli því að rútan fór útaf og valt
á hliðina. Veður hafi verið skap-
legt og engin hálka. Bíllinn var
á lítilli ferð, vegkantur lágur og
hafnaði rútan á hliðinni á frem-
ur mjúkri jörð. Allir sem í rút-
unni voru höfðu auk þess öryggis-
beltin spennt. Öll þessi atriði hafi
blessunarlega orðið til þess að fáir
slösuðust og fólkið var að sögn
Helga ótrúlega rólegt. „Ég byrja
á að hringja í 112 og láta vita um
óhappið. Eftir það tek ég ákvörð-
un um að láta fólkið bíða inni í
bílnum uns hjálp barst. Þetta ger-
ist stutt frá Borgarnesi þannig að
við þurftum ekki að bíða lengi.
Við náum að opna hurð rútunnar
sem sneri upp og síðan er okkur
hjálpað að lyfta fólki upp og út úr
bílnum,“ segir Helgi.
Ferðafólkið er af ólíku þjóðerni,
flestir þó Asíubúar frá Kína og
Suður-Kóreu. Blaðamaður ræddi
við tvo farþega sem báðir voru
ótrúlega yfirvegaðir þrátt fyrir
það sem á undan hafði gengið og
þakklátt fyrir alla þá aðstoð sem
það fékk. mm
Rúta með 45 manns fór á hliðina
Frá vettvangi óhappsins. Símamynd: iss.
Fólkið var að láta vita af sér þegar þessi mynd var tekin í húsnæði Björgunar-
félags Akraness.
Helgi Guðmundsson fararstjóri (t.h.) á tali við Heiðar Sveinsson
hjá Akranesdeild RKÍ.
Lögregla tekur skýrslu af farþegum.