Skessuhorn - 04.01.2017, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2017 9
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
1246. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 10. janúar
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að
hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn •
7. janúar kl. 10.30.
B• jört framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn
9. janúar kl. 20.00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhú• sinu, 1. hæð, Stillholti 16-18,
laugardaginn 7. janúar kl. 11.00.
Frjálsir með Framsókn í Haralda• rhúsi, Vesturgötu 32, kjallara,
gengið inn frá palli, mánudaginn 9. janúar kl. 20.00.
Bæjarstjórnarfundur
Atvinnutekjur á árinu 2015 námu
rúmlega 980 milljörðum króna og
voru að raunvirði ríflega einu pró-
senti hærri en árið 2008. Á sama
tímabili fjölgaði íbúum landsins
um rúm fimm prósent. Þessar upp-
lýsingar er að finna í skýrslu sem
Byggðastofnun hefur tekið sam-
an um atvinnutekjur 2008-2015
eftir atvinnugreinum og lands-
svæðum. Mest hækkuðu atvinnu-
tekjur á Suðurnesjum og Suður-
landi en einnig nokkuð á Norður-
landi eystra. Þær stóðu hins vegar
nánast í stað á Vesturlandi og höf-
uðborgarsvæðinu en drógust saman
á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra
og Austurlandi.
Atvinnutekjur á Vesturlandi
námu 44,2 milljörðum króna á árinu
2015 og höfðu að raunvirði auk-
ist um 0,2% frá því 2008. Á sama
tíma fjölgaði íbúum landshlutans
um 1,3%. Þessar tölur segja hins
vegar ekki mikið til um þróunina
innan landshlutans, sem var mjög
mismunandi eftir sveitarfélögum.
Á suðurhluta svæðisins, Akranesi og
Hvalfjarðarsveit, lækkuðu atvinnu-
tekjur um 3,7% en íbúum fjölgaði
um 6,3%, mest á Akranesi. Í Borg-
arbyggð, Skorradalshreppi og Dala-
byggð drógust atvinnutekjurnar
saman um 8,7% og íbúum fækkaði
um 4%. Atvinnutekjur jukust hins
vegar nokkuð í sveitarfélögunum
fjórum á Snæfellsnesi, eða um 2,3%,
á meðan íbúum fækkaði um 1,6%.
Meðalatvinnutekjur á Vesturlandi
voru rétt undir landsmeðaltali á síð-
asta ári og höfðu hækkað lítið eitt frá
2008. Hæstar voru þær á Akranesi
og í Hvalfjarðarsveit árið 2015, eða
5% yfir landsmeðaltali. Á Snæfells-
nesi voru þær rétt yfir landsmeðal-
tali og höfðu hækkað nokkuð frá
árinu 2008. Á svæði sem inniheld-
ur Borgarbyggð, Skorradalshrepp
og Dalabyggð voru þær hins veg-
ar 83% af landsmeðaltali og höfðu
lækkað frá því 2008, að því er segir
í skýrslunni.
Nánar má lesa um atvinnutekjur
á Vesturlandi sem og annars staðar í
skýrslunni sem birt er í heild sinni á
vef Byggðastofnunar.
kgk
Atvinnutekjur á Vesturlandi nánast
staðið í stað frá 2008
Fyrir áramótin var stofnaður söfn-
unarreikningur þar sem Íslendingar
geta lagt frændum sínum Færeying-
um lið eftir tjón sem varð í hamfara-
veðri um jólin. Facebooksíða söfn-
unarinnar heitir: „Færeyingar og
Íslendingar eru frændur.“ Þá hef-
ur verið opnaður söfnunarreikning-
ur í Sparisjóði Strandamanna fyrir
landssöfnunina (sjá mynd með upp-
lýsingum).
„Það sem knýr okkur og fylgjend-
ur síðunnar áfram er sú staðreynd að
Færeyingar hafa alltaf verið boðnir
og búnir til að styðja rausnarlega
við okkur á erfiðleikatímum. Marg-
ir muna líka eftir því hvernig þeir
studdu íslenska landsliðið á EM í
Frakklandi síðastliðið sumar eins og
þar færu þeirra menn. Okkur langar
öllum til að sýna Færeyingum sama
bróður- og systurþel og þeir hafa
sýnt okkur,“ segja þær Addy Stein-
ars og Rakel Sigurgeirsdóttir sem
standa fyrir söfnuninni.
Í gær höfðu um fjórar milljónir
króna borist inn á söfnunarreikn-
inginn, en þá bárust skilaboð frá rík-
isstjórninni í Færeyjum þess efnis að
hún myndi ekki veita styrk eða gjöf-
um viðtöku. Mannvirki í eyjunum
hefðu verið tryggð. Forsvarskonur
söfnunarinnar hyggjast þrátt fyrir
það ljúka henni eins og til stóð og
afhenda björgunarsveitum ytra pen-
ingana sem safnast. mm
Færeyingar og Íslendingar
eru frændur
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
7
Flugeldasýning í boði Borgarbyggðar, Björgunarsveitarinnar Brákar, Borgarnesi
og Björgunarsveitarinnar Heiðars, Varmalandi
Flugeldasýning, fjöldasöngur, jólasveinar, heitt súkkulaði,
smákökur og gleði
Ekki er leylegt að koma með eigin ugelda á svæðið
ÞRETTÁNDAGLEÐI 2017
verður haldin í Englendingavík í Borgarnesi
föstudaginn 6. janúar kl. 20:00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
LJ
Ó
SM
YN
D
: G
U
Ð
R
Ú
N
J
Ó
N
SD
Ó
TT
IR
Útsalan er hafin
30-50% afsláttur