Skessuhorn - 22.03.2017, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 20176
Vesturlandsliðin
gætu mæst í
úrslitum
VESTURLAND: Síðasta um-
ferð Domino‘s deildar kvenna
í körfuknattleik fór fram í gær,
þriðjudaginn 21. mars. Loka-
leikir mótsins voru ekki hafnir
þegar Skessuhorn fór í prentun
en úrslit gærdagsins gátu engu
breytt um stöðu efstu fjögurra
liða deildarinnar. Snæfell fagnaði
deildarmeistaratitlinum og hóf
því bikar á loft. Keflavík hafnaði
í öðru sæti, Skallagrímur í þriðja
og Stjarnan í því fjórða. Þar með
er ljóst hvaða lið mætast í fyrri
umferð úrslitakeppninnar um Ís-
landsmeistaratitilinn. Hún hefst
þriðjudaginn 28. mars nk. og
þar mæta ríkjandi Íslandsmeist-
arar Snæfells liði Stjörnunnar
en Skallagrímur mætir Keflavík.
Snæfell og Keflavík hafa heima-
leikjarétt í fyrri umferð úrslita-
keppninnar. Fyrstu leikir í und-
anúrslitum munu því fara fram
í Stykkishólmi annars vegar og
Keflavík hins vegar, þriðjudag-
inn 21. mars næstkomandi. Það
lið sem fyrr sigrar þrjá leiki fer
áfram í úrslitaviðureignina. Fari
svo að Snæfell og Skallagrím-
ur beri sigurorð af andstæðing-
um sínum í fyrri umferð úrslita-
keppninnar munu Vesturlands-
liðin tvö mætast í úrslitaeinvíg-
inu um Íslandsmeistarabikarinn.
-kgk
Skóflan lýkur við
Vesturgötuna
AKRANES: Nýverið voru opn-
uð hjá skipulags- og umhverfis-
ráði Akraneskaupstaðar tilboð í
yfirlögn Vesturgötu á Akranesi. Í
verkinu felast jarðvegsskipti, nýj-
ar lagnir og yfirborðsfrágangur.
Verkkaupar eru Akraneskaup-
staður, Veitur og Míla. Fjög-
ur tilboð bárust í verkið og var
ákveðið að ganga til samninga
við lægstbjóðanda sem er Skófl-
an hf. Tilboð Skóflunnar hljóð-
aði upp á rétt tæpar 190 millj-
ónir króna og er hlutur bæjar-
ins 115,2 milljónir af þeirri upp-
hæð, en Míla og Veitur greiða
hinn hlutann. Kostnaðaráætl-
un hljóðaði upp á 210 milljón-
ir króna. Hæsta tilboð sem barst
var 274 milljónir. Samkvæmt
samningi sem undirritaður var
í gær á verkinu að vera lokið 5.
ágúst 2017. Meðfylgjandi mynd
var tekin við undirritun samn-
inganna í gær. -mm/Ljósm. sas
Ekki kjallari und-
ir fimleikahúsi
AKRANES: Ekki verður gert
ráð fyrir kjallara undir nýju fim-
leikahúsi sem til stendur að
byggja við Vesturgötu á Akra-
nesi. Bæjarráð Akraneskaupstað-
ar svaraði á síðasta fundi sínum
fyrirspurn frá Hnefaleikafélagi
Akraness þar sem félagið falað-
ist eftir afnotum af kjallara und-
ir fimleikahúsinu ef til kemur að
það verði byggt. Bæjarráð svar-
aði erindi félagsins með þeim
hætti að ekki standi til að byggja
kjallararými undir húsinu. -mm
Í dag, miðvikudaginn 22. mars, eru
150 ár síðan Borgarnes varð lög-
giltur verslunarstaður og forsend-
ur urðu þar fyrir myndun þétt-
býlis. Síðan hefur staðurinn þjón-
að sem miðstöð verslunar- og þjón-
ustu í Borgarfirði og sem þjónustu-
bær í þjóðbraut landsmanna. Á 150
ára afmælinu eru íbúar Borgarness
1954 talsins og stefnir því óðum
í að þeir rjúfi 2000 íbúa múrinn í
fyrsta skipti í sögunni.
Borgarnes varð sjálfstætt sveitar-
félag með stofnun Borgarneshrepps
árið 1913 en hafði fram að því til-
heyrt Borgarhreppi. Árið 1987 fékk
Borgarneshreppur bæjarréttindi og
hét eftir það Borgarnesbær. Bær-
inn sameinaðist síðan nærliggjandi
sveitahreppunum í þremur lotum,
1994, 1998 og loks 2006, undir
merkjum Borgarbyggðar.
Fjölbreyttir viðburðir
Að sögn Gunnlaugs Júlíussonar
sveitarstjóra Borgarbyggðar er mik-
il tilhlökkun út af tímamótunum
og verður ýmislegt gert að því til-
efni. „Hátíðarfundur sveitarstjórn-
ar verður haldinn á afmælisdaginn í
Kaupangi, elsta húsinu í bænum, og
hefst hann klukkan 15:00. Að hon-
um loknum verður tekin skóflu-
stunga að nýrri viðbyggingu Grunn-
skólans í Borgarnesi. Klukkan 17:00
verður síðan opnuð ljósmyndasýn-
ing í Safnahúsi Borgarfjarðar sem
ber heitið „Tíminn í gegnum lins-
una“. Þar kemur sjónarhorn á sögu
Borgarness fram í gegnum linsu
fjögurra ljósmyndara úr Borgarnesi.
Síðast en ekki síst verður forsölu á
tveggja binda verki um sögu Borg-
arness hleypt af stokkunum þennan
dag. Það eru félagar í Umf. Skalla-
grími sem munu sjá um hana en
munu þeir m.a. ganga í hús í bæn-
um og taka á móti pöntunum,“ segir
Gunnlaugur, en frekari upplýsingar
um forsöluna má sjá í auglýsingu í
blaðinu.
„Sveitarfélagið mun síðan standa
fyrir stórri afmælishátíð í Hjálma-
kletti laugardaginn 29. apríl næst-
komandi þar sem öllum íbúm Borg-
arness verður boðið til samsætis.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Ís-
lands mun taka þátt í hátíðinni og
verður honum afhent fyrsta eintak-
ið af bókinni góðu. Í framhaldinu
verða önnur eintök afhent. Dagskrá
hátíðarinnar verður nánar auglýst
síðar,“ segir Gunnlaugur.
Spurður um framtíð bæjarins og
héraðsins alls er Gunnlaugur bjart-
sýnn. „Hér hefur verið byggt upp
mjög gott samfélag og ekki annað
að sjá en að það þroskist í rétta átt
áfram. Íbúum fer fjölgandi og eftir-
spurn eftir húsnæði fer vaxandi. Fyr-
ir Borgarnes og Borgarbyggð eru
því spennandi tímar framundan.“
Tíminn í gegnum
linsuna
Eins og getið var um hér að ofan
verður opnuð ljósmyndasýning í
Safnahúsi Borgarfjarðar í dag og
hefur hún hlotið heitið „Tíminn
gegnum linsuna“. Þar verða sýnd-
ar ljósmyndir sem fjórir ljósmynd-
arar hafa tekið í Borgarnesi á 20.
öld. Val á ljósmyndum og textagerð
er í höndum sagnfræðingsins Heið-
ars Lind Hanssonar sem er annar
tveggja höfunda að Sögu Borgar-
ness sem kemur út í næsta mánuði.
Guðrún Jónsdóttir forstöðumað-
ur Safnahússins segir að sýningin
sé ekki síst til komin vegna þess að
þegar verið er að skrifa slíka byggða-
sögu er aldrei hægt að fjalla um allt
það efni sem ákjósanlegt væri að
hafa í bókinni. „Á sýningunni má sjá
um 50 ljósmyndir ásamt undirliggj-
andi texta, sem ekki komust í bók-
ina en hefðu vel verið þess verðug-
ar,“ segir Guðrún.
Sýningarhönnun annast Heiður
Hörn Hjartardóttir. Myndhöfund-
ar á sýningunni eru fjórir, þeir Frið-
rik Þorvaldsson, Einar Ingimundar-
son, Júlíus Axelsson og Theodór Kr.
Þórðarson. Sýningin verður opn-
uð kl. 17.00 og verður húsið opið
til 19.00 í dag, eftir það verður hún
opin alla virka daga 13.00 – 18.00.
Frá 1. maí verður opið alla daga
vikunnar, nánar kynnt á heimasíðu
Safnahúss: www.safnahus.is.
mm
Borgarnes fagnar 150 ára afmæli í dag
Fyrsta byggðin í lok 19. aldar, en myndin er tekin um 1890.
Ljósm. varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands, myndhöfundur: Sigfús Eymundsson.
Horft yfir Dílatanga í Borgarnesi. Ljósm. hlh.