Skessuhorn - 22.03.2017, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 19
Reiðhöllin í Borgarnesi
Laugardagurinn 25. mars kl: 20:00
Ræktunarbú - Afkvæmasýningar
Stóðhestar - Hryssur
Kynning á stóðhesavali HrossVest 2017
Ræktunarbú Vesturlands 2016
Kræsingar verða með heita súpu í hléi
Miðasala í forsölu hjá
Líflandi í Borgarnesi
Miðaverð 2.500 kr
Ræktunarsýning
Vesturlands 2017
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Árshátíð Snæfellsbæjar var haldin
um síðustu helgi í Félagsheimilinu
Klifi. Veislustjórar kvöldsins voru
Selma Björnsdóttir og Jón Jósep
Snæbjörnsson, eða Jónsi í Svörtum
fötum. Stjórnuðu þau borðhaldi
af mikilli snilld. Þau tóku lagið
á milli rétta, slógu á létta strengi
ásamt því að kynna skemmtiatriði
sem starfsmenn hina ýmsu stofn-
ana bæjarins höfðu lagt mikla
vinnu í og voru stórglæsileg. Mat-
urinn var frá Galito á Akranesi og
nutu árshátíðargestir hans. Dregn-
ir voru út happdrættisvinningar
og vöktu þeir lukku eins og allt-
af. Kvöldinu lauk svo með dans-
leik þar sem hljómsveitin í Svört-
um fötum og Selma Björns sáu um
fjörið og var dansgólfið vel nýtt og
mikið stuð.
þa
Vel heppnuð árshátíð
Snæfellsbæjar
Í síðustu viku voru Írskir vetrar-
dagar haldnir í annað sinn á Akra-
nesi. Markmiðið með hátíðinni er
að efla þekkingu og tengsl Akur-
nesinga við írska arfleifð sína sem
og að kynna hana fyrir gestum. Á
föstudagsmorgun fór írska tónlist-
arkonan Elaine Ní Cuana í heim-
sókn á leikskóla kaupstaðarins þar
sem hún lék írsk lög og kynnti um
leið írsk hljóðfæri; flautu, hörpu,
trommu og sekkjapípu. Börnin og
leikskólakennararnir voru áhuga-
samir um þessi framandi hljóð-
færi og í lok heimsóknar var sýnt
tónlistarmyndband við írska lagið
Amhrán Na Farraige sem útleggst
sem Söngurinn við sjóinn. Mynd-
bandið er unnið úr teiknimynd-
inni Song of the sea sem er jafn-
framt írsk.
Sýningin Keltnesk arfleifð á
Vesturlandi var opnuð í Guðnýj-
arstofu á Byggðasafninu í Görð-
um síðdegis á föstudaginn. Er hún
bæði á íslensku og á ensku. Meðal
efnistaka í sýningunni er umfjöll-
un um kelta og hverjir þeir voru,
ástæður þess að þeir flúðu land og
námu land á Íslandi, tengsl milli
keltneskra tungumála og íslensku,
keltnesk kristni, Donald Trump og
fleira. Þá voru útgáfutónleikar Slit-
inna strengja haldnir í Tónbergi
bæði á föstudags- og laugardags-
kvöld en sveitin er Bæjarlistamaður
Akraness 2016. Meðal annarra við-
burða má nefna ljósmyndasýningu
Kristjönu Halldórsdóttur. Sýning-
in ber heitið Gamli Skaginn og er
í Café Kaja að Kirkjubraut 54. Þá
var leikritið Ronja Ræningjadóttir
í sýningum í Bíóhöllinni á Akra-
nesi en það er nemendafélag Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
sem sýnir. Þá voru jafnframt við-
burðir á skemmtistöðum bæjarins
um helgina.
mm/emg
Írskir vetrardagar haldnir á Akranesi
Elaine Ní Cuana heimsótti leikskóla bæjarins og kynnti fyrir börnum og starfsfólki
írsk hljóðfæri.
Frá heimsókn írsku tónlistarkonunnar á leikskólan Vallarseli.