Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Qupperneq 25

Skessuhorn - 22.03.2017, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 25 Skessuhorn greindi frá því í nóv- embermánuði að fyrirhuguð væri stækkun á húsnæði verslunarinn- ar Hólabúða á Reykhólum. Búð- in verður lengt um þrjá metra og svo breikkuð um 4,8 metra til aust- urs. Framkvæmdir hófust form- lega í gær, þriðjudaginn 21. mars, þegar Brynjólfur Smárason verk- taki mætti á gröfunni og byrjaði að grafa fyrir stækkuninni. „Reyndar var byrjað að smíða einingarnar í stækkunina í síðustu viku. Þær eru smíðaðar í áhaldahúsinu hérna við hliðina á okkur,“ segir Reynir Þór Róbertsson, sem rekur Hólabúð ásamt Ásu Fossdal eiginkonu sinni. „Þegar þær eru tilbúnar og leng- ingin á versluninni tilbúin, munum við færa þangað vörur af lagern- um, sem nú er staðsettur hér aust- an megin við húsið. Þá verður hægt að hefjast handa við að grafa aust- anmegin, steypta sökkul og síðan geta einingarnar risið hver á fætur annarri,“ bætir hann við. „Þá get- um við farið að opna veitingastað,“ segir Reynir ánægður, en gert er ráð fyrir veitingastað austan megin við núverandi húsnæði Hólabúðar. Til þess að það sé mögulegt þarf að færa lagerinn, eins og Reynir lýsti hér að ofan. Hann segir mikið fagnaðarefni að hægt verði að opna veitingastað á Reykhólum. „Það er mjög ánægjulegt og veitir ekki af því hér yfir sumartímann. Þetta er eitt- hvað sem vantar á Reykhóla,“ segir hann og bætir því við að þau hjón- in hafi vonast til að geta bætt veit- ingasölu við reksturinn frá því þau opnuðu Hólabúðina fyrir rétt tæp- um tveimur árum síðan. Þá hafði, sem kunnugt er, engin verslun ver- ið á Reykhólum um þriggja mánaða skeið. „Þetta var alltaf stefnan og í upphafi ætluðum við að gefa okk- ur fimm ár til að opna veitingastað. En nú er þetta að gerast, þegar að- eins fimm daga vantar í að Hóla- búð verði tveggja ára gömul,“ segir hann ánægður. Hráefni úr héraði Aðspurður segir Reynir að stefnt sé að því að hægt verði að ljúka fram- kvæmdum sem fyrst svo veitinga- sala geti hafist fyrir sumarið. Sam- hliða stækkuninni hyggjast Reyn- ir og Ása einnig taka verslunina í gegn að innan, skipta út hillum og innréttingum. „Við stefnum að því að hér verði allt tilbúið í endann maí eða byrjun júní, þannig að við getum byrjað fyrir sumarið. Það er allt kapp lagt á það að ná háanna- tímanum,“ segir hann. Reynir segir að stefnan sé að bjóða alltaf upp á hlaðborð í hádeg- inu og rétti af matseðli á kvöldin. „Það verður mikill metnaður lagð- ur í kvöldverðarseðilinn og reynt að vera með sem flest hráefni úr héraði. Til dæmis verðum við með selkjöt, á þeim árstíma sem það er hægt. Eftir því sem við best vitum verðum við eini veitingastaðurinn á landinu sem mun bjóða upp á sel. Ærkjöt verður á matseðlinum og við munum nýta okkur sveppi úr Gufudalssveitinni, á þeim tíma sem það er hægt og síðan auðvitað berin sem eru hér allt í kringum okkur, skelfiskinn frá Króksfjarðarnesi og svo mætti lengi telja,“ segir hann. Eftirvæntingin leynir sér ekki í rödd Reynis, enda segir hann framundan töluverðar breytingar á rekstrinum. „Við munum spila þetta eftir eyranu fyrst um sinn en ég tel víst að við komum til með að þurfa að bæta við starfsfólki. Að opna veitignastað verður stór breyting fyrir okkur og á eftir að styrkja stoðir rekstursins til fram- tíðar,“ segir Reynir Þór Róberts- son að lokum. kgk Hafist var handa við að grafa fyrir stækkun Hólabúðar í gær. Ljósm. Hólabúð. Stækkun Hólabúðar á Reykhólum er hafin Skessuhorn greindi frá því í des- ember síðastliðnum að sjúkraflutn- ingamenn á Akranesi finna sér ým- islegt skemmtilegt að bardúsa á vöktum þegar blessunarlega er lít- ið að gera í vinnunni. Fannar Sól- bjartsson skoraði á vinnufélaga sinn, Skarphéðinn Magnússon, að safna hári í þrjá mánuði. Þar sem Skarpi er sköllóttur, og hársöfnun því ekki hans sterkasta hlið, ákvað hann að gangast við áskoruninni ef fengjust eitt þúsund læk á mynd sem Fann- ar birti af honum á Facebook-síðu sinni. Frændi Skarpa og vinnufé- lagi, Sigurður Már Sigmarsson, lof- aði því jafnframt að taka þátt í upp- átækinu með því að láta raka af sér hárið að þremur mánuðum liðnum og sýna frænda sínum þannig sam- stöðu. Skemmst er frá því að segja að „lækin“ þúsund fengust og vel rúm- lega það. Á fimmtudaginn síðasta var síðan komið að skuldadögum. Skarpi hafði safnað hári undan- farna þrjá mánuði en hefur lítt orðið ágengt. Siggi skoraðist ekki undan sínum hluta samkomulagsins og var færður í stólinn hjá Helenu Steins- dóttur á Hársnyrtistofunni Hár- stúdíó á Akranesi. „Það er smá fiðr- ingur í maganum, ég viðurkenni það alveg,“ sagði Siggi þegar hann settist í stólinn. Því næst dró Helena upp rakvélina og hófst handa. Rakaði hún allt hár af kollinum á Sigga svo ekkert varð eftir nema kragi á hlið- unum og hnakka. „Þetta kemur bara vel út, þetta er bara smart,“ sagði Siggi þegar fór að móta fyrir skall- anum og félagar hans tóku í sama streng. Því næst veltu þeir því fyrir sér hvort ekki ætti að taka af skegg- inu líka, eins og þeir höfðu rætt um fyrir heimsókina á hárgreiðslu- stofuna. „Eigum við að taka skegg- ið líka,“ spurði Siggi og félagarnir hvöttu hann til þess. „Já, gerum það bara, prófum það. Þetta er hvort eð er farið til helvítis,“ sagði Siggi þá og Helena dró upp rakvélina á nýjan leik og hófst handa við að raka af efri vör hans. „Já, þetta verður ekki betra sé ég,“ sagði Siggi eftir að raksturinn hófst og uppskar við það hlátur við- staddra. „Jæja, Skarpi, þá er ég næstum því orðinn eins og þú,“ mælti Siggi síðan þegar hann reis upp úr stóln- um að klippingu og rakstri loknum. Stilltu þeir félagar sér síðan upp til myndatöku, þökkuðu Helenu fyr- ir hárskurð og rakstur og héldu á braut, léttir í lundu. kgk Sigurður Már skoraðist ekki undan áskorun: „Þetta kemur bara vel út“ Frændurnir Sigurður Már Sigmarsson og Skarphéðinn Magnússon eftir að hár og skegg þess fyrrnefnda fékk að fjúka að hluta. Það var þokkalega létt yfir Sigga þegar hann settist í stólinn. Hann viðurkenndi þó að vera með nokkurn fiðring í maganum. Helena byrjuð að raka Sigga og farið að glitta í skallann. „Þetta er bara smart,“ sagði Siggi þegar hárið var fokið af kol- linum. „Þetta verður ekki betra sé ég,“ sagði Siggi þegar skeggið var óðum að hverfa líka.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.