Skessuhorn


Skessuhorn - 22.03.2017, Qupperneq 31

Skessuhorn - 22.03.2017, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 31 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Snæfell tryggði sér á föstudag deild- armeistaratitil Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með góðum útisigri á botnliði Grindavíkur. Eft- ir erfiða byrjun náðu Snæfellskonur yfirhöndinni í öðrum fjórðungi og héldu forystunni allt til loka. Þær sigruðu með tólf stigum, 65-77. Grindavík byrjaði leikinn af mikl- um krafti og komst í 15-4 um miðj- an fyrsta leikhluta. Snæfellskonur létu góða byrjun heimaliðsins ekki slá sig út af laginu en komu sér þess í stað hægt og sígandi inn í leikinn að nýju. Áður en upphafsfjórðung- urinn var úti höfðu þær minnkað muninn í þrjú stig, 22-19. Grinda- vík hélt naumu forskoti fram und- ir miðjan annan leikhluta. Þá komst Snæfell yfir og leiddi með fimm stigum í hálfleik, 37-42. Eftir hléið réðu Snæfellskonur ferðinni. Þær juku forskotið í ellefu stig um miðjan þriðja leikhluta en Grindavíkurkonur voru hvergi á því að leggja árar í bát. Þær tóku rispu seint í leikhlutanum og minnkuðu muninn í fjögur stig en Snæfell átti lokaorðið og leiddi með sex stigum fyrir lokafjórðunginn, 51-57. Í upp- hafi hans tók Grindavíkurliðið aft- ur góðan sprett. Þær gáfu Snæfelli ekkert eftir og minnkuðu muninn í þrjú stig en komust ekki nær. Snæ- fell svaraði fyrir sig og náði tökum á leiknum. Það sem eftir lifði bættu þær jafnt og þétt stigum á töfluna og munurinn jókst í takt við það. Snæfell sigraði, 65-77 og tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn og heimaleikjarétt í úrslitakeppn- inni. Aaryn Ellenberg var stigahæst leikmanna Snæfells með 32 stig. Þar að auki gaf hún sex stoðsendingar, tók fimm fráköst og stal boltanum fimm sinnum. Berglind Gunnars- dóttir kom henni næst með 26 stig og tók fimm fráköst. Sigurinn á Grindavík tryggði Snæfellskonum sem fyrr segir deildarmeistaratitilinn. Þær hafa 44 stig á toppi deildarinnar þegar ein umferð er eftir, tveimur stigum fyrir ofan Keflavík sem situr í öðru sæti. Toppliðin tvö mættust í lokaumferð deildarinnar í gærkvöldi, þriðju- daginn 21. mars. Keflavík gat ekki komist upp fyrir Snæfell, jafnvel með sigri í lokaleiknum, því Snæfell hafði unnið allar þrjár viðureignir liðanna í deildinni hingað til. Loka- umferð deildarinnar var hins vegar ekki hafin þegar Skessuhorn fór í prentun, en umfjöllun um leikinn má lesa á www.skessuhorn.is. En þar sem lokaumferð deildar- innar hefur ekki áhrif á sætaskipan efstu liða mætir Snæfell Stjörnunni í úrslitakeppninni um Íslandsmeist- aratitilinn. Úrslitakeppnin hefst hefst 28. mars næstkomandi og Snæfell á þar heimaleikjarétt, bæði í fyrstu umferð og sömuleiðis ef liðið kemst alla leið í úrslitarimmuna. kgk Snæfell tryggði sér deildarmeistaratitilinn Deildarmeistarar Snæfells. Ljósm. karfan.is. Skallagrímur tók á móti Njarð- vík í næstsíðustu umferð Dom- ino‘s deildar kvenna í körfuknatt- leik á föstudag. Skallagrímur lék án Tavelyn Tillman, sem var frá vegna meiðsla og Njarðvíkingar hafa þegar sent Cameron Tyson- Thomas heim, eins og körfuknatt- leiksáhugamenn þekkja. Nokkuð jafnræði var með liðunum lungann úr leiknum og það var ekki fyrr en í lokafjórðungnum að Skalla- grímskonur náðu að slíta sig frá gestunum og sigla sigrinum heim. Þær höfðu að lokum 13 stiga sigur, 69-56 eftir stórgóðan lokasprett. Njarðvíkurliðið mætti ákveð- ið til leiks og hafði yfirhöndina í fyrsta leikhluta. Skallagrímskon- ur voru þó aldrei langt undan og forysta gestanna aðeins tvö stig eftir upphafsfjórðunginn, 15-17. Snemma í öðrum leikhluta sneru Skallagrímskonur taflinu sér í vil. Þær komust nokkrum stigum yfir og héldu forskotinu allt til hálf- leiks, en þá leiddu þær með sex stigum, 36-30. Njarðvík jafnaði metin strax í upphafi síðari hálfleiks og hleypti mikilli spennu í leikinn. Jafnt var á öllum tölum næstu mínútur og liðin fylgdust að í öllum sínum að- gerðum, bæði staðráðin í því að gefa ekkert eftir. En Skallagríms- konur áttu lokaorðið í þriðja leik- hluta, skoruðu tvær góðar körfur og komust fimm stigum yfir fyrir lokafjórðunginn, 49-44. Njarðvík reyndi að svara fyrir sig snemma í fjórða leikhluta. Þær minnkuðu muninn í tvö stig en Skallagrímur stóðst áhlaupið. Um miðjan leik- hlutann tóku Skallagrímskonur síðan öll völd á vellinum, náðu tíu stiga forskoti og lögðu grunn að sigri sínum. Þær léku vel á loka- mínútunum og hleyptu gestunum ekki inn í leikinn að nýju. Lokatöl- ur í Borgarnesi voru 69-56, Skalla- grími í vil. Kristrún Sigurjónsdóttir átti stórleik í liði Skallagríms. Hún skoraði 29 stig og tók fimm frá- köst. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir kom henni næst með tólf stig en aðrar höfðu minna. Með sigrinum tryggði Skalla- grímsliðið sér endanlega þriðja sætið í deildinni. Liðið hefur 38 stig þegar einn leikur er eftir, tveimur stigum meira en Stjarn- an í sætinu fyrir neðan. Því er ljóst að Skallagrímur mætir Kefla- vík í fyrri umferð úrslitakeppn- innar um Íslandsmeistaratitilinn, en úrslitakeppnin hefst 28. mars næstkomandi. En í millitíðinni fer fram lokaleikur deildarinnar. Í gærkvöldi mætti Skallagrímur liði Vals á útivelli í lokaleik deild- arinnar. Sá leikur var ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í prentun en lesendum er bent á umfjöllun um leikinn á www.skessuhorn.is. kgk Skallagrímur kláraði Njarðvík í lokafjórðungnum Kristrún Sigurjónsdóttir lék einn besta leik sinn í vetur þegar Skallagrímur lagði Njarðvík. Ljósm. Skallagrímur/ Ómar Örn. Meistaraflokkur UMFG í blaki kvenna varð um helgina Íslands- meistari í greininni eftir síð- ustu mótaröðina sem haldin var í Garðabæ. Keppnisfyrirkomulagið í 4. deild er þannig að leikið er á þremur helgarmótum. Lið Grund- arfjarðar hafnaði í efsta sæti með 34 stig eftir mótin þrjú. Til að mynda vann liðið allar hrinur sínar um helgina og sýndu stelpurnar góð tilþrif í íþróttahúsi Stjörnunnar. Nokkur endurnýjun er í gangi í blakinu í Grundarfirði og mik- ið af ungum og efnilegum stelp- um að stíga sín fyrstu skref í meist- araflokki. Liðið stefnir á þátttöku í þriðjudeild á næsta ári og von- ast Anna María Reynisdóttir, for- sprakki liðsins, eftir að halda sama mannskap fyrir næsta tímabil. tfk UMFG Íslandsmeistarar í 4. deild Síðastliðinn laugardag fór fram Nes- mót í skotfimi í húsnæði Skotfélags Vesturlands í Brákarey. Um var að ræða einvígi milli Akraness og Borg- arness í loftskambyssuskotfimi þar sem skotið var fimm skotum á átta skífur eða 40 skotum samtals á hvern keppenda og tímamörk voru 50 mínútur. Keppendur voru „parað- ir“ saman eftir niðurstöðu „sænska“ mótsins sem haldið var fyrr í vetur og settir á braut hlið við hlið. Um útsláttarkeppni var að ræða þar sem einn vinningur er í boði fyrir hverjar tvær brautir. Til að stytta keppendum stundir meðan á móti stóð voru leikin nokk- ur létt og skemmtileg lög. Var það mál manna að Elías Kristjansson og Berglind Björgvinsdóttur hefði tekist með miklum ágætum að setja saman lagalista sem flestir þoldu (illa). En sennilega þurfa þau að endurskoða lagavalið fyrir næsta mót þar sem tónlistin lagðist vel í Borgnesingana sem höfðu sigur á mótinu með fimm vinningum gegn engum. En mót- ið fór vel fram og ljóst að framhald verður því að í mótslok var hugur í Skagamönnum að ná fram hefndum. Ólafur K Kristjánsson sá um móts- stjórn og dómgæslu og gerði það með mikilli prýði. Mikil gróska er í starfsemi Skot- vest. Þriðja og fjórða umferð kvöld- mótaraðarinnar í „Silhouette“ er í fullum gangi. Vesturlandsmótið í loftgreinum verður haldið 26. apríl og fyrirhugað er að halda mót fyrir 9 mm skammbyssur. Æfingar standa því á fullu yfir og opið er á mánu- dögum og fimmtudögum kl. 8:00 og 10:00-14:00 á laugardögum í inniað- stöðu Skotvest í Brákarey. Alltaf er heitt á könnunni og áhugasamir vel- komnir. ebm Fréttir frá Skotfélagi Vesturlands Íslandsmeistaramótaröðinni í klifri lauk nýverið í Klifurhúsinu í Reykja- vík. Eins og áður fjölmenntu ÍA klifrarar á lokamótið og stóðu sig með prýði. Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var hún í öðru sæti og þurfti því að klifra vel til að verja sitt sæti. Hún lauk keppni með 147 stig- um sem nægði henni í annað sætið á mótinu á eftir Gabríelu Einarsdótt- ur sem hefur haldið forystu frá byrj- un mótaraðarinnar. Þar með hef- ur Brimrún Eir tryggt Klifurfélagi ÍA annað sæti í keppni um Íslands- meistaratitilinn og þátttökurétt á Bikarmeistaramóti Íslands sem hald- ið verður í apríl, en sex efstu kepp- endurnir fá þátttökurétt á því móti. þs Brimrún Eir tryggði sér silfur á Íslandsmeistaramóti

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.