Skessuhorn - 03.05.2017, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 20172
Átakinu Hreinsum Ísland var hrundið af
stað af Landvernd á Degi umhverfisins 25.
apríl sl. Þetta árið er sérstaklega vakin at-
hygli á hættum sem fylgja plastmengun í
hafi. Átakið stendur til 7. maí og eru Vest-
lendingar og landsmenn allir hvattir til að
leggja sitt af mörkum við hreinsun nátt-
úrunnar. Sérstök athygli er vakin á Strand-
hreinsunardeginum á Snæfellsnesi næst-
komandi laugardag.
Hægur vindur, víða léttskýjað og hiti
á bilinu 13 til 20 stig næstu þrjá daga;
fimmtudag, föstudag og laugardag. Hlýj-
ast inn til landsins en sums staðar sval-
ara í þokulofti við sjávarsíðuna. Hæg suð-
vestanátt á föstudag, skýjað við vestur-
strönd landsins en annars yfirleitt léttskýj-
að. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast inn til sveita fyrir
norðan. Á mánudag er útlit fyrir vestanátt
með vætu á köflum og kólnandi veðri.
„Ætlar þú að fylgjast með fótboltanum
í sumar,“ var spurningin sem borin var
upp á vef Skessuhorns í liðinni viku. „Nei,
örugglega ekki“ sögðu flestir, eða 46%. „Já,
tvímælalaust“ sögðu 25% og 23% sögðu
„já, af og til“. „Veit það ekki“ sögðu fæst-
ir, eða 5%.
Í næstu viku er spurt:
„Hvernig finnst þér að
salernisrúllan eigi að snúa?“
Dalakonan Christine Sarah Arndt, eða
Stína eins og hún er kölluð, ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur. Hún
hefur skráð sig til keppni í Mongol Derby,
einhverri erfiðustu og líkast til hættuleg-
ustu kappreiðum heims sem fram fer í
ágúst næstkomandi.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Ráðnar í stöður
skólastjóra
HVALFJ.SV: Á fundi sveit-
arstjórnar Hvalfjarðarsveitar
25. apríl síðastliðinn var sam-
þykkt að ráða Eyrúnu Jónu
Reynisdóttur í stöðu skóla-
stjóra leikskólasviðs Leik- og
grunnskóla Hvalfjarðarsveitar,
Skýjaborg, frá og með 1. ágúst
2017 og Sigríði Láru Guð-
mundsdóttur í stöðu skóla-
stjóra grunnskólasviðs Leik-
og grunnskóla Hvalfjarðar-
sveitar, Heiðarskóla, frá og
með 1. ágúst 2017.
-mm
Stofnmat og
ráðgjöf vegna
rækju
SNÆFELLNES: Hafrann-
sóknastofnun hefur gefið út
ráðleggingar um að leyfð-
ar verði veiðar á 698 tonn-
um af rækju við Snæfellsnes á
tímabilinu frá 1. maí 2017 til
15. mars 2018. „Stofnvísitala
rækju við Snæfellsnes var und-
ir meðallagi og mældist minna
af rækju í Breiðafirði en und-
anfarin þrjú ár. Lítið var af
fiski á slóðinni,“ segir í til-
kynningu frá Hafró.
-mm
Tveir sviptir
ökuleyfi
VESTURLAND: Á mánu-
dagskvöld var ökumaður sem
leið átti um Vesturlandsveg
stöðvaður á 150 km/klst. Var
ökumanninum gerð grein fyr-
ir því að sektin fyrir brot hans
væri 130 þúsund krónur, einn
mánuður í ökuleyfissviptingu
og þrír punktar í ökuferilsskrá.
Fyrir helgi var annar ökumað-
ur stöðvaður fyrir að aka á 148
km/klst í umdæmi Lögregl-
unnar á Vesturlandi og á hann
von á sömu refsingu. Fram
kemur í dagbók lögreglunn-
ar að 43 aðrir ökumenn voru
stöðvaðir fyrir að aka of geyst
um vegi umdæmisins síðustu
vikuna. Tvö minniháttar um-
ferðaróhöpp urðu í embættinu
og sluppu ökumenn og farþeg-
ar án meiðsla. Einn ökumaður
var stöðvaður fyrir að aka ölv-
aður og annar fyrir að aka und-
ir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Reyndist sá síðarnefndi einnig
vera sviptur ökuréttindum og
með lítilræði af fíkniefnum í
vörslu sinni.
-kgk
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Um þessar mundir er í undibúningi
ferðaþjónustuverkefni sem byggir á
sagnaarfi sögualdarinnar í Dölum.
Verkefnið er ekki fullmótað enn
sem komið er, en áætlað er að það
muni fela í sér sögualdarsýningu
sem sett verður upp í Leifsbúð í
Búðardal. Fjármögnun verkefnisins
er í fullum gangi. Til dæmis fékkst
styrkur til verkefnisins að verðmæti
ein milljón króna þegar úthlutað
var úr Uppbyggingarsjóði Vestur-
lands í síðasta mánuði. Þessa dag-
ana og vikurnar standa yfir viðræð-
ur við fjárfesta.
„Verið er að ræða um þessar
mundir við hugsanlega fjárfesta og
unnið að endurgerð áætlana í sam-
ráði við þá,“ segir Sveinn Pálsson,
sveitarstjóri Dalabyggðar, í samtali
við Skessuhorn. „Við erum þokka-
lega bjartsýn á þetta verkefni eins
og staðan er núna en þó er ekk-
ert í höfn,“ segir Sveinn. Hann
kveðst ekki geta greint nánar frá
verkefninu að svo stöddu þar sem
engu hafi verið slegið föstu um
umfang þess eða hvernig það mun
endanlega líta út. „Áætlanirnar
hafa breyst nokkuð ört undanfarn-
ar vikur, í samráði við hugmyndir
hugsanlegra fjárfesta. Því get ég
ekki sagt til um hvað mun endan-
lega felast í þessu, enn sem komið
er. Við eigum von á að funda með
fjárfestum hér í Búðardal fljótlega
og vonandi munu línurnar skýrast
frekar að þeim fundi loknum,“ seg-
ir Sveinn Pálsson að lokum.
kgk
Undirbúa ferðaþjónustuverkefni
tengt söguöldinni
Áætlað er að verkefnið muni fela í sér sögualdarsýningu í Leifsbúð í Búðardal.
Ljósm. úr safni/ sm.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
sjávarútvegsráðherra hefur ákveð-
ið að fjölga veiðidögum á grá-
sleppu á yfirstandandi vertíð um
tíu daga. Í stað 36 daga vertíð verð-
ur veiðitímabilið 46 dagar. Reglu-
gerð þar að lútandi verður gef-
in út miðvikudaginn 3. maí. Þetta
er gert vegna óvenjulega dræmr-
ar veiði við strendur landsins. 157
veiðileyfum var úthlutað í vor og
geta menn veitt allt að 6355 tonn á
vertíðinni samkvæmt veiðiráðgjöf
Hafró. Sú ráðgjöf verður óbreytt
þótt veiðidögum verður fjölgað.
Þar sem fjölgun veiðidaga var til-
kynnt seint höfðu nokkrir gráslep-
pusjómenn þegar tekið upp netin
og stefna á strandveiðar.
Kristján Helgason er einn af
þeim sem gert hefur út á grá-
sleppuveiðar í vor. Hann rær einn
á báti sínum Karli Magnúsi SH
frá Ólafsvík. Að sögn Kristjáns
er þessi vertíð eins slæm og þær
gerast verstar orðið; stöðug ótíð
og brælur og hefur það haldist í
hendur við dræma veiði. Hann
kveðst þó ætla að halda ótrauður
áfram í þeirri von að rætist úr með
veður og aflabrögð. Þess má geta
að þegar fréttaritari Skessuhorns
ræddi við Kristján á kajanum síð-
asta sunnudag, var hann ekki bú-
inn að frétta um fjölgun veiði-
daga.
mm/af
Ráðherra bætir tíu dögum við grásleppuvertíðina
Kristján Helgason var að koma með hálft tonn af grásleppu til hafnar í Ólafsvík þegar rætt var við hann á föstudaginn.