Skessuhorn - 03.05.2017, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 20176
Skagamenn mæta
Hafnfirðingum
RUV: Síðastliðið föstudagkvöld
varð ljóst hvaða fjögur sveitarfé-
lög keppa í undanúrslitum Út-
svars, spurningakeppni RUV í
sjónvarpinu. Jafnframt var dreg-
ið um hvaða lið etja kappi. Akra-
nes keppir næstkomandi föstu-
dag, þann 5. maí, við Hafnar-
fjörð í fyrri undanúrslitaþætt-
inum. Í þeim síðari mætast lið
Fjarðabyggðar og Grindavík.
Sigurvegarar í þessum tveimur
viðureignum keppa loks til úr-
slita. -mm
Þunga-
takmarkanir á
hálendisvegum
LANDIÐ: Þegar frost er að
fara úr jörð getur jarðvegur orð-
ið býsna gljúpur og viðkvæmur.
Þetta á m.a. við um lélega mal-
arvegi og frumstæða slóða líkt
og víða eru á hálendinu. Akst-
ur er þá bannaður til að koma í
veg fyrir skemmdir, bæði á veg-
unum sjálfum og landi og gróðri
sem geta skemmst illa ef ekið er
út fyrir veg. Akstursbann hefur
nú verið sett á fáeina vegi eins
og sjá má á færðarkorti Vega-
gerðarinnar. Til dæmis er ás-
þungi takmarkaður við tvö tonn
á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldu-
dals og Dynjandisheiðar en sjö
tonn á Vestfjarðavegi (60) milli
Flókalundar og Þingeyrar. Þá
eru ýmsir fjallvegir lokaðir, t.d.
yfir Kaldadal. -mm
Tillaga um
takmarkanir í
ferðaþjónustu
DALIR: Á síðasta fundi sveitar-
stjórnar Dalabyggðar var lögð
fram tilllaga sem Svavar Garð-
arsson sendi sveitarstjórn með
tölvupósti með ósk um að hún
yrði borin upp á fundinum. Til-
lagan var svohljóðandi: ,,Vegna
viðvarandi skorts á íbúðarhús-
næði í Búðardal, verði til tveggja
ára í senn ekki veitt leyfi fyrir út-
leigu íbúðarhúsnæðis til rekst-
urs ferðaþjónustu nema á sama
tíma sé heimilishald í íbúðinni
og um væri að ræða útleigu auka
herbergja.“ Niðurstaða sveitar-
stjórnar var sú að skipa vinnu-
hóp til að skoða tillögu Svav-
ars, meðal annars með tilliti til
lögmætis slíkra takmarkana en
einnig þörf. Hópnum er ætlað
að skila áliti sínu fyrir júnífund
sveitarstjórnar. -kgk
Óvissa um
orlofsuppbót
LANDIÐ: Alþýðusamband Ís-
lands lýsir yfir miklum áhyggj-
um af þeirri óvissu sem uppi
er um orlofsuppbót almanna-
trygginga til lífeyrisþega. „Venj-
an er að ráðherra gefi út reglu-
gerð um áramót um orlofs-
og desemberuppbót á kom-
andi ári. Reglugerðin fyrir árið
2017 hefur enn ekki verið und-
irrituð. Þessi óvissa fyrir eldri
borgara og öryrkja er algjörlega
óþolandi og ráðherra verður að
kippa þessu í liðinn strax,“ segir
í tilkynningu frá ASÍ.
-mm
Gísli Karel
tímabundið yfir
skipulagssvið
BORGARBYGGÐ: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggð-
ar 27. apríl sl. var ákveðið að
ganga til samninga við Gísla
Karel Halldórsson, verkfræð-
ing og forstöðumann skrif-
stofu Verkís í Borgarnesi,
um að taka tímabundið við
stöðu sviðsstjóra umhverfis-
og skipulagssviðs í Borgar-
byggð. Um er að ræða hluta-
starf sem mun standa yfir í átta
mánuði eða fram til næstu ára-
móta. Einnig var samþykkt að
Verkís kæmi þar til viðbótar
með sérfræðiþekkingu í 20%
starfshlutfall sem mun fyrst og
fremst nýtast við vinnslu og
úrlausn verkefna sem tengj-
ast skipulags- og byggingar-
málum.
-mm
Vorhreinsun
í gangi
AKRANES: Akraneskaup-
staður beinir þeim tilmælum
til íbúa að taka höndum sam-
an um vorhreinsun í bæjar-
félaginu og gera það hreint og
snyrtilegt. Sérstakt átak í þá
veru stendur yfir frá 29. apríl
til og með 7. maí. „Bæjarbú-
ar, ungir sem aldnir, eru hvatt-
ir til að fagna vori og taka þátt
í hreinsun og fegrun lóða og
umhverfis í þágu allra bæjar-
búa,“ segir í auglýsingu. Gám-
ar verða settir á ákveðna staði
á þessum tíma og geta íbúar
og fyrirtæki skilað þar endur-
gjaldlaust því sem tínt verð-
ur upp. Ætlast er til að sorp
sé flokkað og verða gámar
merktir með viðeigandi flokk-
unarmerkjum. Aldraðir og ör-
yrkjar geta óskað eftir að fá að-
stoð við að sækja staka, þunga
eða stóra hluti. Allar nánari
upplýsingar er að finna á akra-
nes.is.
-mm
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og
auðlindaráðherra, afhenti á föstu-
daginn umhverfisverðlaunin Kuð-
unginn fyrir framúrskarandi starf
að umhverfismálum á síðasta ári.
Það var Endurvinnslan sem hlaut
verðlaunin. Við sama tækifæri voru
nemendur í Ártúnsskóla í Reykja-
vík og Lýsuhólsskóla - Grunnskóla
Snæfellsbæjar útnefndir Varðliðar
umhverfisins.
Framúrskarandi
verkefni
Nemendur í Lýsuhólsskóla settu á
síðasta ári upp sýningu í Salthúsinu
á sjávarbakkanum í Malarrifi í sam-
vinnu við þjóðgarðinn Snæfells-
jökul. Nemendur öfluðu upplýs-
inga um staðinn með viðtölum og
settu þær fram á fjölbreyttan hátt,
svo sem á sérbúnum flettispjöldum,
á skiltum úr dagblaðapappa í formi
saltfisks og í sérstöku fugla-minn-
isspili fyrir yngstu sýningargest-
ina. Fróðleikur um Lóndranga, álfa
og tröll var útlistaður með mynd-
rænum hætti og náttúruleg efni
nýtt eins og hægt var, efni endur-
unnið og endurnýtt og t.a.m. voru
hillur undir sýningargripi smíð-
aðar úr flutningsbrettum. Í sér-
stöku framhaldsverkefni greindu
nemendur gestabók sýningarinn-
ar út frá heimalöndum gesta og
settu fram niðurstöðurnar í súluriti
og á heimskorti með ferðaleiðum
gestanna auk þess sem unnin voru
kynningarspjöld um lönd og menn-
ingu gestanna. Segir í umsögn val-
nefndar að um sé að ræða; „fram-
úrskarandi verkefni þar sem börn-
in rannsökuðu eigin átthaga út frá
umhverfi, sögu og menningu og
komu sinni sýn á umhverfið á fram-
færi við gesti frá öllum heimshorn-
um með skapandi hætti.“
Viðurkenningarnar til Ártúns-
skóla, Endurvinnslunnar og Lýsu-
hólsskóla voru afhentar á hátíðarat-
höfn sem haldin var á föstudaginn í
Hannesarholti í Reykjavík.
mm
Lýsuhólsskóli útnefndur
Varðliði umhverfisins
Nemendur Ártúnsskóla til vinstri og Lýsuhólsskóla til hægri, ásamt kennurum. Ráðherra er fyrir miðri mynd.
Svipmyndir úr verðlaunasýningunni í Malarrifi.