Skessuhorn - 03.05.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Pepsi deild karla í knattspyrnu hófst
á sunnudag með þremur leikjum. Á
Akranesi tók ÍA á móti Íslandsmeist-
urum FH í upphafsleik mótsins og
urðu Skagamenn að játa sig sigraða í
fjörugum leik, 2-4.
FH-ingar byrjuðu af krafti, fengu
dauðafæri eftir aðeins þrjár mínútur
eftir laglegt þríhyrningaspil í víta-
teig Skagamarnna en skotið fór yfir.
Gestirnir voru mun sterkari í byrj-
un leiks og komust yfir á 15. mínútu
þegar Steven Lennon skoraði beint
úr aukaspyrnu af 25 metra færi. Bolt-
inn hafði viðkomu í varnarveggnum
áður en hann söng í netinu.
Gestirnir voru áfram sterkari og
það var gegn gangi leiksins þegar ÍA
jafnaði eftir hálftíma leik. Eftir fyrir-
gjöf frá hægri fór Gunnar Nielsen,
markvörður FH-inga, í skógarhlaup
og boltinn barst út í teiginn á Albert
Hafsteinsson. Albert valdi þann kost
að senda hann fyrir á Tryggva Hrafn
Haraldsson sem skallaði hann auð-
veldla í netið og staðan 1-1.
Þremur mínútum síðar áttu FH-
ingar skelfilega sendingu til baka og
Albert náði boltanum. Viðstöðulaust
sendi hann snyrtilega sendingu inn
fyrir vörn FH-inga á Tryggva sem
vippaði boltanum yfir markvörðinn
og kom ÍA yfir, 2-1.
Aðeins tveimur mínútum eftir að
ÍA komst yfir jöfnuðu Íslandsmeist-
ararnir. Halldór Orri Björnsson átti
sendingu fyrir markið sem varnar-
menn ÍA skölluðu frá. Boltinn féll
fyrir fætur áðurnefnds Steven Len-
non vinstra megin í teignum og
hann smellti honum viðstöðulaust
í markhornið fjær og staðan jöfn til
hálfleiks, 2-2.
Síðari hálfleikur byrjaði fremur
rólega en fjörið átti eftir að halda
áfram. Liðin fengu sitt hvort dauða-
færið áður en næsta mark kom. Og
það var FH-inga. Eftir laglega sókn
átti Jonathan Hendrickx frábæra
fyrirgjöf frá hægri sem Kristján
Flóki Finnbogason skallaði af krafti
í slána og inn. Gestirnir voru sterk-
ara lið vallarins það sem eftir lifði og
komust í 2-4 á 78. mínútu eftir góð-
an samleik. Atli Guðnason var með
boltann fyrir utan teig Skagamanna,
renndi honum til hægri í teiginn á
nafna sinn Atla Viðar Björnsson sem
þurfti ekkert að gera en senda hann
fyrir markið á galopinn Steven Len-
non sem innsiglaði þrennuna og 2-4
sigur FH-inga.
Næst leikur ÍA gegn Val mánu-
daginn 8. maí. Sá leikur fer einnig
fram á Akranesi og hefst kl. 19:15.
kgk
Skagamenn töpuðu í fjörugum leik
Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði
bæði mörk Skagamanna.
Ljósm. gbh.
Fyrir leik var gullaldarliðs ÍA minnst með stuttri tölu og síðan mínútu þögn. Í fram-
haldinu var Ármann Smári Björnsson heiðraður. Hann var fyrirliði ÍA síðustu ár en
þurfti að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla fyrir sumarið.
Fyrstu leikir Pepsi deildar karla í
knattspyrnu þetta sumarið voru leikn-
ir á sunnudag. Víkingur Ó. mætti Val
á Valsvellinum í Reykjavík. Róðurinn
var þungur fyrir Ólsara stærstan hluta
leiksins og urðu þeir að lokum að sætta
sig við tap, 2-0.
Valsmenn byrjuðu leikinn af mikl-
um krafti og gerðu sig líklega strax
í upphafi en náðu ekki að gera sér
mat úr færum sínum. Valsarar fengu
dauðafæri á 32. mínútu þegar Kristinn
Ingi Halldórsson komst einn í gegn en
skot hans yfir markið. Skömmu síðar
átti Einar Karl Ingvarsson þrumuskot
sem small í þverslánni og stuttu fyrir
hálfleik björguðu Ólsarar á marklínu
eftir hornspyrnu. Leikmenn Víkings
máttu prísa sig sæla að vera ekki und-
ir í hléinu því heimamenn voru mun
sterkari í fyrri hálfleik á meðan Vík-
ingar fundu ekki fjölina sína.
Leikmenn Víkings voru líflegri
í upphafi síðari hálfleiks. Þeir náðu
hættulegri sókn þegar Alfreð Már
Hjaltalín gaf fyrir á Alonson Sanchez
sem náði að snúa í teignum en varnar-
maður Vals komst fyrir hann og bjarg-
aði í horn. Næstu færi áttu Valsarar,
meðal annars þrumuskot sem Christi-
an Martinez varði glæsilega í horn.
En eitthvað varð undan að láta og
á 65. mínútu komst Valur yfir. Löng
sending meðfram jörðinni frá hægri
rataði inn í teiginn. Sóknarmaður Vals
missti af boltanum en truflaði Christi-
an í markinu og Dion Acoff þurfti ekk-
ert annað að gera á fjærstönginni en
að stýra boltanum í netið. Eftir mark-
ið róaðist leikurinn aðeins. Víkingar
skiptu inn á og breyttu leikskipulag-
inu lítillega til að reyna að hleypa lífi í
sóknarleikinn. Það bar hins vegar ekki
árangur. Guðmundur Steinn Haf-
steinsson átti ágætan skalla að marki
eftir fyrirgjöf Emir Dokara en olli
markverði Vals engum vandræðum.
Á 85. mínútu innsigluðu Valsmenn
síðan sigurinn. Þeir geystust upp í
skyndisókn eftir hornspyrnu Víkings.
Sveinn Aron Guðjohnsen átti góðan
sprett, lagði boltann á Nikolaj Hansen
sem skaut í stöng en náði frákastinu
sjálfur og skoraði. Skömmu síðar voru
Víkingar hársbreidd frá því að minnka
muninn þegar Guðmundur Steinn
átti góðan skalla sem small í stönginni.
En allt kom fyrir ekki og Valur hafði
sigur, 2-0.
Næsti leikur Víkings fer fram
sunnudaginn 7. maí þegar liðið mæt-
ir KR á Ólafsvíkurvelli. Hefst hann kl.
19:15.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Víkingar fundu sig ekki gegn Val
Keflavík varð á miðvikudag Ís-
landsmeistari í körfuknattleik
kvenna eftir sigur á Snæfelli í
fjórða leik liðanna í úrslitaviður-
eigninni. Keflavík hafði yfirhönd-
ina frá fyrstu mínútu og gaf aldrei
færi á sér. Þær sigruðu að lokum
70-50 og viðureignina þar með
3-1. Það voru því Keflvíkingar sem
lyftu Íslandsmeistarabikarnum að
leik loknum.
Gangur leiksins
Keflavík átti algjöra draumabyrj-
un í leiknum. Liðið setti tvo þrista
í jafn mörgum skotum og komst í
16-4 forystu þegar upphafsfjórð-
ungurinn var hálfnaður. Keflavík-
urkonur voru ákveðnari, sóttu fast
á körfuna og spiluðu þétta vörn í
fyrsta leikhluta og fyrir vikið leiddu
þær 28-16 að honum loknum.
Jafnræði var með liðunum í öðr-
um leikhluta en Snæfelli gekk illa
að höggva í forskot Keflavíkurliðs-
ins. Ellefu stigum munaði í hálf-
leik, Keflavík leiddi 42-31.
Þriðji leikhluti var keimlíkur öðr-
um og jafnt á með liðunum. Snæ-
felli tókst ekki að minnka muninn
að ráði en á sama tíma náði Keflavík
aldrei að stinga af. Forskot heima-
liðsins var átta stig fyrir fjórða og
síðasta leikhlutann, 55-47. Eygðu
Snæfellskonur því enn möguleika á
sigri fyrir lokafjórðunginn, þurftu
aðeins níu stiga sveiflu í leiknum til
að ná forystu.
Spennustigið í leiknum var orð-
ið ansi hátt og taugar leikmanna
þandar til hins ýtrasta. Hvorugt
lið setti stig á töfluna fyrstu þrjár
mínúturnar í fjórða leikhluta en
eftir það tóku Keflavíkurkonur að
bæta við forskotið hægt og sígandi.
Snæfell átti afar erfitt uppdráttar í
lokafjórðungnum og tókst ekki að
skora stig gegn ógnarsterkri vörn
Keflavíkur fyrr en tvær mínútur
lifðu leiks. Þá var forskot Keflavík-
ur að nálgast 20 stig. Úrslit leiksins
ráðin voru ráðin og ljóst að Snæfell
næði ekki að knýja fram oddaleik.
Keflavík sigraði, 70-50 og tryggði
sér þar með Íslandsmeistaratitil-
inn.
Snæfell hitti illa
Jafnt var á með liðunum í flest-
um tölfræðiþáttum en skotnýting
Keflavíkur var mun betri í leiknum.
Liðið hitti úr 42% allra skota sinna
en Snæfell var aðeins með 27%
skotnýtingu og það vegur þungt í
leik sem þessum. Gefur það jafn-
framt vísbendingu um afar góðan
varnarleik nýkrýndra Íslandsmeist-
ara.
Hvað varðar tölfræði einstakra
leikmanna var Aaryn Ellenberg
stigahæst í liði Snæfells með 20 stig
og tók hún 9 fráköst að auki. Bryn-
dís Guðmundsdóttir var með 9 stig
og 9 fráköst og Berglind Gunnars-
dóttir með 8 stig og 5 fráköst en
aðrar höfðu minna.
Ariana Moorer fór mikinn í liði
Keflavíkur með 29 stig, 19 fráköst
og 5 stoðsendingar. Thelma Dís
Ágústsdóttir var með 13 stig, tók 7
fráköst og 5 stoðsendingar og Em-
ilía Ósk Gunnarsdóttir var með 12
stig.
Stolt af liðinu
Þrátt fyrir tap getur Snæfell vel
við unað. Liðið var að leika í
fjórða skiptið í röð í úrslitum og
er sannkallað stórveldi í íslenskum
kvennakörfuknattleik, en Snæfell
hafði sem kunnugt er hampað Ís-
landsmeistaratitlinum þrjú ár í röð
fyrir leikinn á miðvikudag. Titill-
inn varð ekki þeirra þetta árið og
öllu keppnisfólki svíður tapið. „Ég
er ofboðslega svekktur að hafa tap-
að, ég er mikill keppnismaður og
við erum öll miklir keppnismenn,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálf-
ari Snæfells, í samtali við karfan.is
eftir leik. „En ég er ótrúlega stolt-
ur af liðinu og því sem við gerðum.
Við náðum erfiðasta titlinum, náð-
um að verða deildarmeistarar og
mér finnst þetta þrekvirki miðað
við hvernig hlutirnir
eru hjá okkur. Þetta
er erfiðasti veturinn,
mikið búið að ganga
á og liðið ekki geng-
ið heilt til skógar en
ég er ógeðslega stolt-
ur af hvað stelpurnar
eru búnar að leggja á
sig og fórna sér fyrir
Snæfell. Ég get ekki
hrósað mínu fólki
nógu vel,“ bætti hann
við. Hann sagði að
liðið þyrfti aðeins að fá að jafna sig
en síðan yrði farið að leggja drög
að næsta vetri. „Ég ætla að grenja
eftir nokkra daga, en svo hefst bara
undirbúningur fyrir næsta tíma-
bil,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyr-
irliði Snæfells, hrósaði Keflavíkur-
liðinu fyrir góðan leik. „Þær eiga
hrós skilið, þær gerðu ótrúlega vel
og stoppuðu okkur í öllum okk-
ar aðgerðum á meðan við höfð-
um engin svör,“ sagði hún og kvast
stolt af Snæfelli. „Ég er rosa stolt
af okkar liði. Við vorum að spila í
úrslitum fjórða árið í röð og það
tekur það enginn af okkur,“ sagði
Gunnhildur. kgk/ Ljósm. þe.
Snæfell missti af titlinum
Gunnhildur Gunnarsdóttir í lokaleik Íslandsmótsins
síðasta miðvikudag.
Snæfellskonur voru svekktar með tapið þegar þær tóku á móti silfurverðlaun-
unum.