Skessuhorn - 25.10.2017, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 20178
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 14. - 20. október
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 7.982 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 7.700
kg í einum róðri.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 12.381 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 12.381 kg í tveimur róðr-
um.
Grundarfjörður: 8 bátar.
Heildarlöndun: 203.673 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.059 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 7 bátar.
Heildarlöndun: 70.192 kg.
Mestur afli: Brynja SH:
14.200 kg í þremur róðrum.
Rif: 9 bátar.
Heildarlöndun: 63.791 kg.
Mestur afli: Stakkhamar SH:
24.744 kg í þremur löndun-
um.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 86.895 kg.
Mestur afli: Leynir SH:
32.109 kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
67.059 kg. 17. október.
2. Helgi SH - GRU:
47.616 kg. 16. október.
3. Steinunn SF - GRU:
42.905 kg. 19. október.
4. Farsæll SH - GRU:
41.570 kg. 16. október.
5. Esjar SH - RIF:
14.833 kg. 17. október.
-kgk
Hljóta gæða-
vottun í um-
hverfismálum
FAXAFLÓAHAFNIR:
Faxaflóahafnir hafa fyrst-
ar hafna hér á landi hlot-
ið vottun á umhverfisstjór-
nunarkerfi í samræmi við
alþjóðaumhverfisstaðalinn
ISO 14001. Kjarni staðals-
ins er að vinna að stöðug-
um umbótum til að draga
úr umhverfislegum áhrif-
um. „Með vottuninni sýn-
ir fyrirtækið ábyrgð á því
að minnka umhverfisá-
hrif með því að nota auð-
lindir skynsamlega, stuðla
að minnkun á útblæstri og
minnka umfang sorps en
farga því sem þarf á ábyrg-
an hátt,“ segir í vottun
Faxaflóahafna.
-mm
Tvö sveitar-
félög gætu
fengið
milljarð í arð
SV-LAND: Samkvæmt
fjárhagsspá sem stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur
samþykkti í síðustu viku er
gert ráð fyrir að fjárhag-
ur OR og dótturfélaganna
Veitna, Orku náttúrunn-
ar og Gagnaveitu Reykja-
víkur haldi áfram að styrkj-
ast á næstu árum. „Afkoma
mun batna þannig að gert
er ráð fyrir að tekjuskatt-
ur til ríkissjóðs á árunum
2018 til 2023 nemi tæp-
lega 21 milljarði króna og
að eigendum OR; Reykja-
víkurborg, Akraneskaup-
stað og Borgarbyggð, verði
greiddur um 15 milljarð-
ar króna í arð á árabilinu.“
Miðað við eignarhluti sína
þýðir þetta að Borgarbyggð
gæti fengið um 140 millj-
ónir króna á tímabilinu og
Akraneskaupstaður um 900
milljónir króna gangi þess-
ar áætlanir eftir. Stjórn OR
gerir ráð fyrir að verð fyrir
rafmagnsdreifingu Veitna
muni lækka á næstu vikum
en almennt er gert ráð fyr-
ir að verð á þjónustu fyr-
irtækjanna fylgi annarri
verðlagsþróun í landinu á
spátímabilinu. Þó eru gef-
in óljós fyrirheit um lækk-
un annarrar þjónustu sam-
kvæmt tilkynningu OR:
„Möguleikar á lækkun á
gjaldskrám verða kannað-
ir.“
-mm
Vegna bilunar í rannsóknaskip-
inu Bjarna Sæmundssyni hefur það
ekki komist af stað í rannsóknaleið-
angur sem hefjast átti í liðinni viku,
þar sem m.a. átti að kanna ástand
rækju og smásíldar, gera umhverf-
isrannsóknir í fjörðum og veiðar-
færatilraunir. „Í ljós kom að leki var
í einhverjum tanki skipsins og hafði
vatn komist í olíu. Eftir mikla vinnu
við leit að orsökum lekans kom í ljós
mikil tæring í leiðslum, veltitanki
og vinnuþilfari,“ segir í tilkynningu
frá Hafrannsóknastofnun.
Bjarni Sæmundsson er 47 ára
gamalt skip, smíðað í Þýskalandi
1970. Í september síðastliðnum
bilaði stjórntölva fyrir eina af vél-
um skipsins. Stýrisbúnaður og að-
alvélar voru endurnýjaðar 2004 og
reyndust varahlutir vera ófáanlegir,
en unnt var að gera við til bráða-
birgða. Sú bilun tafði loðnuleið-
angur sem átti að hefjast snemma
í september og fyrirséð var að tafir
yrðu einnig á næsta leiðangri skips-
ins. „Ljóst er að viðgerð á skipinu
mun taka vikur. Stofnunin hefur
þegar tekið skip á leigu til að sinna
rækjurannsóknum og hluta um-
hverfisrannsókna. Hægt er að mæla
síld fram eftir vetri og er stefnt að
því eftir áramót. Þetta þýðir við-
bótarkostnað vegna leigu skips og
kostnaðar við viðgerðina, auk ann-
ars óhagræðis,“ segir í frétt Hafró.
Þegar aðalvélar Bjarna Sæmunds-
sonar voru endurnýjaðar árið 2004
var fyrirhugað að gera skipið út í
10-12 ár til viðbótar. „Mjög brýnt
er að fá fram ákvörðun um nýtt
skip þar sem ekki er lengur hægt
að treysta á Bjarna. Fjármagni sem
varið er í viðgerðir á tæplega hálfr-
ar aldar gömlu skipi er ekki sérstak-
lega vel varið,“ segir í tilkynningu
frá Hafrannsóknastofnun.
mm
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson
má muna sinn fífil fegurri
Slökkviliði Grundarfjarðar barst
útkall um eld í útihúsum á bæn-
um Berserkseyri síðastliðinn mið-
vikudag. Kallaði það til aðstoð-
ar Slökkvilið Stykkishólms. Eldur
hafði komið upp í kaffistofu sem
staðsett er inni í vélageymslu á
bænum, en geymslan var áður fjár-
hús. Samkvæmt heimildum Skessu-
horns gekk slökkvistarf vel. Tjón
varð á tækjum og búnaði sem var í
húsinu. Ekki er föst búseta á bæn-
um og enginn í hættu þegar eldur-
inn kom upp.
tfk
Eldur í vélageymslu á bænum Berserkseyri
Lögreglunni á Vesturlandi var til-
kynnt um nokkur innbrot á Akra-
nesi fimmtudaginn 12. október síð-
astliðinn. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni hafði þá um nótt-
ina verið brotist inn í fimm bíla
og einn bílskúr þar í bæ og greipar
látnar sópa. Það helsta sem tekið var
ófrjálsri hendi var veski, fatnaður og
verkfæri, að sögn lögreglu. Rann-
sókn málsins stendur yfir. Lögregl-
an á Vesturlandi vill brýna fyrir fólki
að læsa bílum sínum og minnir á
að það sé ágæt regla að geyma þar
engin sýnileg verðmæti. Þó sökin sé
alltaf þjófanna þá eru líkurnar minni
á stuldi úr bílum ef þeir eru læstir.
kgk
Brotist inn í bíla á Akranesi
Í kvöld, miðvikudaginn 25. október,
munu þeir Arnór Vilbergsson org-
anisti Keflavíkurkirkju, Jón Bjarna-
son organisti í Skálholti, Sveinn
Arnar Sæmundsson organisti á Akra-
nesi og Viðar Guðmundsson organ-
isti Hólmavíkurkirkju og Reykholts-
kirkju koma saman og halda tón-
leika í Akraneskirkju. Þeir félagar
munu gefa tónleikagestum innsýn í
töfraveröld orgelsins og flutt verða
klassísk orgelverk en einnig dægur-
lög og kvikmyndatónlist og bætast
þá jafnvel fleiri hljóðfæri í hópinn.
Þeir félagar stíga einnig á stokk og
syngja örfá lög.
Tónleikarnir marka upphaf
menningarhátíðarinnar Vökudaga
á Akranesi og hefjast klukkan 20.
„Enginn aðgangseyrir og tilvalið
fyrir fjölskylduna að skella sér á
tónleika,“ segja organistarnir sem
hlakkar til að sjá sem flesta.
mm
Fjórir fræknir organistar á Akranesi