Skessuhorn - 25.10.2017, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 201712
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Skothlífar
í veiðina
Skothlífar með umhverfishljóðnema
fyrir veiðimanninn, henta vel til að
liggja upp að byssu skeftinu.
Möguleiki á tengingu fyrir mp3.
Verð: 24.775 kr.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, bend-
ir á í nýjum pistli að heildareign-
ir íslensku lífeyrissjóðanna séu nú
3.738 milljarðar króna. Þar af eru
2.882 milljarðar inni í íslensku
hagkerfi. „Eins og allir vita þá
er ávöxtunarviðmið íslensku líf-
eyrissjóðanna 3,5%. Það er ljóst
að þetta ávöxtunarviðmið er m.a.
ástæðan fyrir því að við þurfum
að búa hér við mjög hátt vaxta-
stig og verðtryggingu,“ segir Vil-
hjálmur og heldur áfram: „Til að
standa undir 3,5% raunávöxtun
sem lífeyrissjóðirnir fara í raun
fram á þarf íslenskur almenning-
ur, heimili og fyrirtæki, að greiða
yfir 100 milljarða á ári hverju til
að standa undir þessu ávöxtunar-
viðmiði sjóðanna.“ Slíkri ávöxt-
unarkröfu sé ekki hægt annað en
velta út í verðlagið í formi hærri
álagningar sem því nemur. Vil-
hjálmur bendir á að þessi upphæð
slagi í sömu upphæð og aflaverð-
mæti allra íslenskra skipa var árið
2016, en það var 133 milljarð-
ar. „Það er morgunljóst í mínum
huga að þau stjórnvöld sem taka
við stjórnartaumunum eftir kosn-
ingar verða að láta það verða eitt
af sínum fyrstu verkum að stinga
rækilega á það graftarkýli sem ís-
lensku lífeyrissjóðirnir eru í ís-
lensku samfélagi.“
Og Vilhjálmur heldur áfram:
„Hvaða vitglóra er í því að við
séum með tæpa 3.000 milljarða
inni í íslensku hagkerfi sem leið-
ir til þess að vextir eru miklu
hærri fyrir vikið og hlutabréfa-
bólan þenst út eins og enginn væri
morgundagurinn, vegna þess að
sjóðirnir gera lítið annað en að
kaupa og selja af hvorum öðrum?
Af hverju halda menn að norski
olíusjóðurinn fjárfesti nánast ein-
göngu utan Noregs? Nei, snill-
ingarnir sem stjórna lífeyrissjóð-
unum á Íslandi eru ekkert að fara
eftir Norðmönnum enda eru ís-
lensku lífeyrissjóðirnir með 77%
af heildareignum sjóðsfélaga sinna
til ávöxtunar í íslensku hagkerfi
sem lendir af fullum þunga á ís-
lenskum heimilum og fyrirtækjum
til ávöxtunar. Galið og þessu þarf
að breyta eins og skot.“ Bend-
ir hann á að íslensku lífeyrissjóð-
irnir, sem stjórnað er af Samtök-
um atvinnulífsins og verkalýðs-
hreyfingunni, eiga uppundir 50%
af öllum hlutabréfum í Kauphöll-
inni.
mm
Lífeyrissjóðum gert að afla jafn mikilla
vaxtatekna og verðmæti sjávaraflans er
Framundan er fyrirlestur þjóð-
minjavarðar, Margrétar Hall-
grímsdóttur, um höfuðsafn okkar
Íslendinga, hlutverk þess og sögu.
Margrét flytur fyrirlesturinn í
Bókhlöðu Snorrastofu í Reyk-
holti, þriðjudaginn 31. október
næstkomandi kl. 20:30.
Þjóðminjasafn Íslands var stofn-
að árið 1863 á tímum sjálfstæðis-
baráttu Íslendinga. Frá þeim tíma
hefur stofnunin mótast með sam-
félaginu og leggur nú áherslu á
víðsýni og hið þjóðlega í alþjóð-
legu samhengi. Margrét kynnir
bók sína, Þjóðminjar og stiklar á
stóru í sögu samfélagsþróunar og
hlutverks höfuðsafns þá og nú.
Sjónum verður beint að hlutverki
stofnunarinnar á sviði þjóðminja-
vörslu, varðveislu, rannsókna og
miðlunar. Margrét fléttar inn í
fyrirlestur sinn frásögn af forn-
leifarannsókninni í Viðey á árun-
um 1987-1995, en Þjóðminjasafni
Íslands er ætlað að varðveita gögn
og jarðfundna gripi allra fornleifa-
rannsókna á Íslandi. Í Viðey átti
Snorri Sturluson sín spor þegar
hann stóð ásamt Þorvaldi Gissur-
arsyni að stofnun klausturs þar.
Margrét Hallgrímsdóttir hefur
helgað starfsferil sinn rannsókn-
um og minjavörslu. Hún stjórn-
aði fornleifarannsókn í Viðey, sem
fram fór á árunum 1987-1995, var
borgarminjavörður 1989 -2000 og
síðan þjóðminjavörður. Hún sótti
víðtæka menntun sína til Háskóla
Íslands og Stokkhólmsháskóla og
hefur ritað um málefni þjóðminja-
vörslu og fornleifarannsókna og
látið víða til sín taka á þeim vett-
vangi.
Fyrirlesturinn hefst að venju
kl. 20:30 þar sem boðið er til um-
ræðna og kaffiveitinga. Aðgangur
er kr. 500. -fréttatilkynning
Þjóðminjar og Þjóðminjasafn
á fyrirlestri í Snorrastofu
Margrét Hallgrímsdóttir.
Mótorhjólaatriði í tónlistarmynd-
band með nýju lagi bandaríska tón-
listarmannsins Elliot Moss var tek-
ið upp í Hvalfjarðargöngum að-
fararnótt síðasta fimmtudags. Kvik-
myndagerðarmenn nýttu sér tæki-
færið þegar göngin voru lokuð
vegna árlegs viðhalds og þrifa og
sviðsettu dramatíska mótorhjóla-
ferð sem endaði miður vel. El-
liot Moss er 24 ára lagahöfundur,
söngvari og hljóðfæraleikari í New
York og býsna þekktur meðal ann-
ars í Bandaríkjunum. Alla vega nógu
þekktur til að heill her kvikmynda-
tökufólks var staddur hér á landi til
að taka upp myndbandið.
Sjálft mótorhjólið sem notað
var í upptökunum er Honda, kjör-
gripur af árgerð 1975, í eigu Guð-
mundar Steinþórssonar frá Ólafsvík.
Guðmundur, sem býr í Reykjavík, á
nokkur mótorhjól til viðbótar við
Honduna. Hann var að sjálfsögðu á
vettvangi og aðstoðaði tökufólkið.
mm/ Ljósm. Spölur.
Tónlistarmyndband tekin
upp í Hvalfjarðargöngum
Parið sem lék
í atriðinu í
göngunum.
Guðmundur Stein-
þórsson eigandi
Hondunnar var
kvikmyndatökufólki
innan handar.