Skessuhorn - 25.10.2017, Qupperneq 16
16 ALÞINGISKOSNINGAR X-2017 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2017
Gylfi Ólafsson skipar oddvitasæt-
ið á lista Viðreisnar í Norðvestur-
kjördæmi fyrir komandi alþingis-
kosningar. Hver er maðurinn? „Ég
er 34 ára Ísfirðingur. Ég er lærð-
ur grunnskólakennari, hef unnið
í ferðaþjónustu og fór svo í hag-
fræði og síðar heilsuhagfræði sem
ég starfaði við í Svíþjóð og á Ís-
landi fram til kosninganna 2016.
Ég er kvæntur og faðir tveggja lít-
illa barna. Ég nota skíðagöngu til
að halda skrokknum í skikkan-
legu formi og hef mér það helst
til frægðar unnið að hafa unnið Ís-
landsmeistaratitil í skíðaskotfimi
25 ára og yngri. Það var frækilegur
sigur, einkum þegar litið er til þess
að þá hafði ég aldrei snert byssu
áður, en þeir tveir sem ég sigraði
höfðu gert það einu sinni hvor,“
segir Gylfi í samtali við Skessu-
horn.
Áherslu á efnahags- og
jafnréttismál
Aðspurður um helstu áherslumál
Viðreisnar á landsvísu segir Gylfi
þau vera efnahagsmál og jafnrétt-
ismál. „Í fyrsta lagi vil ég nefna ís-
lensku krónuna. Veik króna bitnar
á launafólki og neytendum en sterk
króna bitnar á útflutningsgreinum,
ekki síst nýsköpunarfyrirtækjum.
Verðtryggingin er bein afleiðing
þessa óstöðugleika, sem jafnframt
veldur því að vextir eru hér him-
inháir. Krónan er þannig bæði dýr
fyrir fólkið í landinu og fyrirtæk-
in í landinu,“ segir hann. „Í öðru
lagi eru það jafnréttismál. Við-
reisn beitir sér fyrir þjóðarsátt um
bætt kjör kvennastétta. Við settum
launajafnrétti á dagskrá stjórnmál-
anna með jafnlaunavottun og nú
viljum við beina kastljósinu að kjör-
um kvennastétta. Birtingarmynd-
ir jafnréttis eru margar. Kynbund-
ið ofbeldi er jafnréttismál, aðgengi
barna að leikskólum er það líka og
einnig réttur hinsegin fólks,“ segir
Gylfi. „Í þriðja lagi er það stjórn-
málamenningin, sem verður að
endurspegla ábyrgð og auðmýkt;
að lofa ekki því sem ekki er hægt
að standa við og að geta viðurkennt
mistök,“ bætir hann við.
„Bæta þarf nærþjónustu
úti á landi“
Hvað varðar málefni Vesturlands
segir Gylfi heilbrigðismálin vera
þar ofarlega á baugi. „Þar hefur
nýlega náðst góður áfangi í að nýtt
húsnæði dvalarheimilisins í Stykk-
ishólmi er komið á framkvæmda-
áætlun, en betur má ef duga skal.
Í stuttu máli þarf að bæta nærþjón-
ustu úti á landi, en einnig þarf að
auðvelda aðgengi landsbyggð-
arfólks að sérhæfðri þjónustu í
Reykjavík. Þar skiptir ferðakostn-
aður, uppihald og vinnutap miklu
en þessir þættir eru mun þyngri í
buddu landsbyggðarinnar,“ segir
Gylfi. „Sjávarútvegurinn og aðrar
útflutningsgreinar þurfa stöðugra
gengi og finna mjög fyrir dynt-
um krónunnar. Sérstaklega eru
minni og meðalstórar útgerðir við-
kvæmar fyrir tugprósenta sveifl-
um í tekjum og gjöldum. Á Vestur-
landi og Snæfellsnesi sérstaklega er
áberandi hve mjög svæðið byggir á
minni útgerðum. Og áfram þarf að
efla innviði, en á Vesturlandi eins
og á landinu öllu má það ekki ger-
ast með óhóflegum lántökum,“
segir hann.
Hvernig telur hann að þing-
sæti Norðvesturkjördæmis munnu
skiptast að loknum kosningum?
„Ég finn að málflutningur okk-
ar, vinnubrögð og mannval nýtur
meiri hylli með hverjum deginum.
Ég trúi því að Viðreisn fái kjörinn
mann og að staðan verði að öðru
leyti svo: A: 0, B:2, C:1, D:2, F:0,
M:0, S:1 og V:2,“ segir Gylfi Ólafs-
son að endingu. kgk
Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar:
„Krónan er bæði dýr fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu“
Gylfi Ólafsson, oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi.
Bergþór Ólason er oddviti Mið-
flokksins í Norðvesturkjördæmi
fyrir komandi alþingiskosningar.
Hver er maðurinn? „Ég er blanda
af Skagamanni og Borgnesingi,
með dassi af Hólmara og Húnvetn-
ingi í mér. Móðurfjölskyldan er frá
Akranesi en föðurfjölskyldan frá
Bálkastöðum í Hrútafirði,“ segir
Bergþór í samtali við Skessuhorn.
„Varðandi kostina, þá held ég að
ég geti sagt að ég sé duglegur og
fylginn mér en ætli helsti gallinn
sé ekki sá að hafa í gegnum tíðina
átt erfitt með að segja nei, sá ávani
er sem betur fer að rjátlast af mér,“
segir hann. „Ég var framkvæmda-
stjóri Loftorku í Borgarnesi til síð-
ustu áramóta, þegar við feðgarnir
seldum reksturinn þar. Áður en ég
kom að endurreisn Loftorku árið
2009 hafði ég meðal annars starf-
að á fjármálamarkaði og sem að-
stoðarmaður samgönguráðherra
2003-2006,“ bætir hann við.
Endurskipulagning
fjármálakerfisins
Hver eru helstu áherslumál Mið-
flokksins á landsvísu? „Helstu
áherslumálin eru endurskipulagn-
ing fjármálakerfisins, með áherslu
á að ná niður vöxtum. Byggða-
stefnan okkar, sem við köllum „Ís-
land allt“ er mikilvægur þáttur í
þeim áhersluatriðum sem við setj-
um á oddinn. Við ætlum okkur að
lækka tryggingagjald með sérstaka
áherslu á fyrstu 10 starfsmenn
í hverju fyrirtæki. Það er mikið
hagsmunamál fyrir atvinnulífið og
þar með heimilin í landinu,“ seg-
ir Bergþór. „Við hjá Miðflokkn-
um ætlum að ýta úr vör stórtæk-
um plönum hvað uppbyggingu
innviða varðar bæði út um landið
allt og líka hvað varðar tenging-
ar við höfuðborgarsvæðið, eins og
t.d. Sundabraut og breikkun veg-
arins um Kjalarnes og norður fyrir
Borgarnes,“ bætir hann við.
Spurður hver hann telji brýn-
ustu hagsmunamál íbúa á Vestur-
landi nefnir Bergþór einnig end-
urskipulagningu fjármálakerfis-
ins. „Lækkun vaxta er lykilatriði,
að hér takist að endurskipuleggja
fjármálakerfið þannig að það virki
vel fyrir heimilin og fyrirtækin í
landinu. Lækkun tryggingagjalds
er mikilvægt mál og þær áherslur
sem við leggjum í byggðamálum
eru sérstaklega hagfelldar þessu
kjördæmi,“ segir hann.
Bergþór kveðst ekki vilja setjast
í stól spámannsins og geta sér til
um mögulega skiptingu þingsæta
í Norðvesturkjördæmi. „Það er
hópur manna og kvenna á launum
við það, best að láta þau um spárn-
ar. Lykilatriðið er að á þing velj-
ist fólk sem er tilbúið að vinna af
festu fyrir kjördæmið,“ segir Berg-
þór Ólason að endingu.
kgk
Hjördís Heiða Ásmundsdóttir er 29
ára og skipar 2. sætið á lista Flokks
fólksins í Norðvesturkjördæmi fyr-
ir komandi alþingiskosningar. Hver
er konan? „Ég er 29 ára, móðir ynd-
islegrar stelpu á 13. ári sem er ljós
mitt og stolt. Ég er í sambúð og bý
í Borgarnesi. Ég hef búið síðastliðin
ár á Vesturlandi, fyrst í Grundarfirði
en síðastliðin fjögur ár í Borgarnesi.
Sambýlismaður minn er úr Borgar-
nesi og öll móðurættin hans er það-
an. Ég skipa 2. sæti á lista Flokks
fólksins í Norðvesturkjördæmi,“
segir Hjördís í samtali við Skessu-
horn.
„Ég var fullfrísk og orkumikið barn
og unglingur, var mikið í íþróttum
og æfði mikið. Ég varð ófrísk 16 ára,
en vegna mistaka í fæðingu hef ég
þurft að eiga við króníska verki síðan
ásamt krömpum, doða og máttleysi.
Ég hef síðastliðin ár þurft að not-
ast við hjólastól dagsdaglega,“ segir
Hjördís. „Ég hef mátt þola ýmislegt
þó ung sé og vil nýta þá reynslu mína
til góðs. Þrautagangan sem sjúkling-
ar þurfa að þræða mánuðum saman
til þess eins að fá þá þjónustu sem
þeir eiga rétt á samkvæmt lögum, er
ekki boðleg,“ bætir hún við.
En hver eru helstu stefnumál
Flokks fólksins á landsvísu og hver
telur hún vera brýnustu hagsmuna-
mál íbúa á Vesturlandi? „Við búum
í litlu en ríku landi, með gríðarlega
möguleika. Við erum fámenn þjóð
og ættum öll að geta lifað mann-
sæmandi lífi. Enginn á að þurfa að
draga eða jafnvel sleppa því að leita
sér lækninga, eða tannlækninga af
fjárhagslegum ástæðum og þurfa að
gera upp á milli að kaupa mat eða lyf.
Það hef ég upplifað á eigin skinni,“
segir Hjördís. „Ég brenn fyrir rétt-
læti í landinu og jöfnum tækifær-
um fyrir alla. Styrkjum grunnstoðir
landsins og innviði þess til muna,“
segir Hjördís að endingu.
kgk
Hjördís Heiða Ásmundsdóttir skipar
2. sætið á lista Flokks fólksins:
„Brenn fyrir réttlæti
í landinu og jöfnum
tækifærum fyrir alla“
Hjördís Heiða Ásmundsdóttir skipar annað sætið á lista Flokks fólksins.
Bergþór Ólason, oddviti Miðflokksins
„Lækkun vaxta er lykilatriði“
Bergþór Ólason er oddviti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.