Skessuhorn - 25.10.2017, Síða 18
18 ALÞINGISKOSNINGAR X-2017 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2017
Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþing-
ismaður frá Suðureyri við Súganda-
fjörð, skipar oddvitasætið á lista
Vinstri hreyfingarinnar græns fram-
boðs í Norðvesturkjördæmi fyrir
komandi alþingiskosningar. Hver
er konan? „Ég er alþýðukona sem
er sveitastelpa í mér og vil reyna að
leggja mitt af mörkum til þess að
gera samfélagið réttlátara og betra
fyrir almenning í landinu,“ segir
Lilja í samtali við Skessuhorn. „Ég
er alin upp í sjávarþorpi og sveit og
hef haft það að leiðarljósi að fylgja
eftir minni sannfæringu, hlusta á
aðra og ég vil vera sanngjörn. Ég er
þrjósk og fylgin mér og gefst ekki
upp fyrr en í fulla hnefana og ég get
verið skemmtileg þegar vel liggur á
mér,“ bætir hún við.
„Alhliða uppbygging
innviða“
Að sögn Lilju eru innviðir stóra
áherslumál hennar flokks á lands-
vísu. „Vinstri græn leggja áherslu
á að farið verði í alhliða uppbygg-
ingu innviða landsins, velferðar-
kerfið verði eflt og tryggja verður
að allir búi við mannsæmandi kjör.
Tryggja verður húsnæðisframboð á
viðráðlegum kjörum um allt land,
að búið verði betur að öldruðum og
öryrkjum og barnafólki og fæðing-
arorlofið verði lengt í 12 mánuði,“
segir hún. „Við leggjum áherslu á
öflugt heilbrigðis- og menntakerfi
og rannsóknir og nýsköpun. Við
viljum að útfærsla á stjórn fiskveiða
stýrist af hagsmunum allra byggða
í landinu og hafi að leiðarljósi sátt,
byggðafestu og atvinnuöryggi. Efla
þarf strandveiðar og skapa þarf for-
sendur í kerfinu fyrir nýliðun.
Vinstri græn vilja standa vörð um
öflugan, innlendan og sjálfbæran
landbúnað, matvælaframleiðslu og
matvælaiðnað á grundvelli þeirrar
stefnu sem flokkurinn hefur mótað.
Um leið og nýtt þing og ný ríkis-
stjórn tekur til starfa þarf að ráðast
í aðgerðir vegna þess bráðavanda
sem steðjar að sauðfjárræktinni og
þar með byggð á stórum svæðum.“
„Vesturland hefur mikla
framtíðarmöguleika“
En hver telur hún vera brýnustu
hagsmunamál íbúa á Vesturlandi?
„Það þarf að efla Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands og löggæsluna og
styrkja og standa vörð um fram-
haldsmenntun og verknámið og
háskólana á svæðinu,“ segir Lilja.
„Hvalfjarðargöng verði gjald-
frjáls á næsta ári. Mikilvægt er að
hraða vegaframkvæmdum og koma
bundnu slitlagi á héraðs- og tengi-
vegi. Einbreiðum brúm verði út-
rýmt og brýnt er að breikka Vest-
urlandsveg,“ segir hún. „Mikilvægt
er að efla ferðaþjónustu og að aukin
innviðauppbygging verði í kring-
um náttúruperlur. Snæfellsjökuls-
þjóðgarður verði efldur og rann-
sóknir auknar á lífríki Breiðafjarðar
í gegnum Náttúrustofa Vesturlands
og Hafró. Mikilvægt er að stuðla
að nægu framboði á húsnæði á við-
ráðanlegu verði og að styrkja stoðir
fjölbreytts atvinnulífs. Ljúka verð-
ur uppbyggingu háhraðatenginga
og að þriggja fasa rafmagn standi
til boða í sveitum. Brýnt er að
jafna orkukostnað. Vesturland hef-
ur mikla framtíðarmöguleika í upp-
byggingu og byggja verður á styrk-
leikum svæðisins með heimamönn-
um,“ bætir Lilja við.
Aðspurð um úrslit kosninganna
spáir Lilja því að Vinstri græn fái
þrjá þingmenn kjörna í Norðvest-
urkjördæmi, Sjálfstæðisflokkur tvo
en Framsóknarflokkur, Píratar og
Samfylkingin einn þingmann hver
flokkur.
kgk
Lilja Rafney Magnúsdóttir, oddviti Vinstri grænna:
„Leggjum áherslu á innviði, eflingu
velferðarkerfis og mannsæmandi kjör“
„Ég var skírður Guðjón Svarfdal
Brjánsson og er alþingismaður þeg-
ar þetta er skrifað,“ segir Guðjón.
Hann skipar efsta sætið á lista Sam-
fylkingarinnar í Norðvesturkjör-
dæmi fyrir komandi alþingiskosn-
ingar. „Ég lauk stúdentsprófi frá
MA, félagsráðgjafanámi frá Sosi-
alhøgskolen í Stavanger, Noregi,
stundaði um eins árs skeið stjórn-
unarnám á öldrunarsviði í Flórída
og lauk mastersnámi í lýðheilsu-
fræðum (MPH) við Nordiska hög-
skolan for folhälsovetenskap í
Gautaborg. Ég hef búið á lands-
byggðinni mestan hluta ævinnar og
um það bil helming þess tíma á því
landsvæði sem nú heitir NV-kjör-
dæmi og þekki því vel til og hagi
fólks almennt. Ég er kvæntur eð-
alkonunni Dýrfinnu Torfadótt-
ur gullsmið. Synirnir eru tveir og
barnabörnin fimm,“ segir hann.
„Ég hef marga galla eins og kon-
an getur eflaust vitnað um. Ég er
líklega ekki góður í neinu, hef þó
notið þess að vinna með öðru fólki
og skapa liðsheildir á vinnustað,
virkja fólk og ýta undir styrkleika.
Síðan hef ég gríðarlegan áhuga á ís-
lenskri tungu en framtíð hennar er
áhyggjuefni. Það er ótrúlega gam-
an að hnoðast með texta og nýta
sveigjanleika málsins. Ég er arfas-
lakur í stærðfræði og að fara með
tölur. Mitt mottó er að leita lausna,
afgreiða mál, reyna að vera glaður
og geðprúður.“
Áhersla á velferðarmálin
Hver eru helstu áherslumál Sam-
fylkingarinnar á landsvísu fyrir
komandi kosningar? „Það eru vel-
ferðarmálin almennt sem fráfar-
andi ríkisstjórn vanrækti því mið-
ur þrátt fyrir hástemmd loforð
og ákall almennings. Átak í heil-
brigðisþjónustu, málefni barna-
fjölskyldna, öryrkja og aldraðra.
Uppbygging menntamála, jafn-
rétti kynjanna, styrking löggæslu
að ógleymdum samgöngumálum
sem er eitt helsta jafnréttismál
byggðanna. Ég get nefnt fleiri at-
riði en aukinn jöfnuður, bættur
hagur láglaunafólks brennur mikið
á mér og að stuðla að stöðugleika,
ekki bara í þágu þeirra sem best
eru settir í samfélaginu, en þeir
hafa setið í öndvegi í ranni ríkis-
stjórnar á undanförnum árum,“
segir Guðjón.
Hvað varðar brýnustu hags-
munamál íbúa á Vesturlandi seg-
ir Guðjón að þau séu að stærstum
hluta þau sömu og landsmanna
allra. „Það má segja að það séu öll
þau sem að ofan eru talin,“ segir
hann en setur samgöngumál þó
m.a. á oddinn. „Við þurfum að
bæta samgöngurnar í öllu kjör-
dæminu, aðstæður eru mjög mis-
munandi þó. Hvalfjarðargöng-
in verða gjaldfrjáls á næsta ári og
þá tekur við nýr kafli. Kjalarnes-
ið þarf að byggja upp sem dæmi.
Við þurfum að hafa alla anga úti
hvað varðar fjölbreytta atvinnu-
starfsemi og gæta að því að bæði
kyn og fjölskyldufólk fái tækifæri
til starfa. Umhverfismálin eru
mér líka hugleikin og í þeim felast
margar áskoranir á næstu árum,“
segir hann.
„Guð láti gott á vita“
Beðinn um að spá fyrir um úrslit
kosninganna stendur ekki á svör-
um. „Hér legg ég spilin á borð-
ið og birti mína villtustu drauma,“
segir hann. „Sviðsmyndin lítur þá
svona út. Tveir kjördæmakjörn-
ir þingmenn fyrir Samfylkingu og
einn uppbótarþingmaður. Einn
þingmaður Framsóknar, einn þing-
maður frá íhaldinu, tveir frá VG og
einn Pírati. Guð láti gott á vita,“
segir Guðjón að endingu.
kgk
Lilja Rafney Magnúsdóttir er oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í
Norðvesturkjördæmi.
Guðjón S. Brjánsson, oddviti Samfylkingarinnar:
„Fráfarandi ríkisstjórn vanrækti velferðarmálin“
Guðjón S. Brjánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Járniðnaðarmaður
Óskum eftir járniðnaðarmanni eða manni
vönum véla- og járnsmíði í fullt starf.
Upplýsingar veitir Björn á netfanginu
bjorn@stalsmidjan.is eða
í síma 660-3537.
Atvinna á Grundartanga
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7