Skessuhorn - 25.10.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 201722
Stefnumót matarframleiðenda og
veitingasala á Vesturlandi fór fram
síðastliðinn fimmtudag í Hjálm-
akletti í Borgarnesi. Mannamótið
var skipulagt af Matarauði Vest-
urlands, verkefni sem stutt er af
Sóknaráætlun Vesturlands. Það
var Signý Óskarsdóttir verkefn-
isstjóri sem skipulagði og stýrði
samkomunni ásamt verkefnis-
stjórn. Þessi samkoma var fyrst og
fremst hugsuð til að efla tengsl-
anet þeirra sem framleiða og vinna
með mat úr vestlensku hráefni. Í
upphafi var boðið upp á nokkra
örfyrirlestra og gestir sögðu með-
al annars frá matartengdri ferða-
þjónustu á Vesturlandi og nýsköp-
un. Meðal þátttakenda var Land-
búnaðarháskóli Íslands, Matís og
Ljómalind. Þá voru dekkuð borð
þar sem framleiðendur í lands-
hlutanum kynntu það sem þeir eru
að framleiða og selja. Veitingarnar
voru í senn fjölbreyttar, snyrtilega
fram bornar og góðar og greini-
legt að nýsköpun er mikil innan
greinarinnar.
mm/ Ljósm. mm & bg.
Matarframleiðendur af Vesturlandi komu saman
Jón Guðmundsson garðyrkjumaður á Akranesi á spjalli við Signýju
Óskarsdóttur verkefnisstjóra Matarauðs Vesturlands.
Ljósm. bgTveir matgæðingar. Magnús í Kræsingum og Keli Vert í Langaholti.
Álfheiður Marinósdóttir heldur býflugur sér til gamans í Bjargslandi
í Borgarnesi. Á Stefnumóti kynnti hún þrjár gerðir hunangs, úr
búum sem staðsett eru á þremur mismunandi stöðum; í Borgar-
nesi og á Hvanneyri. Glöggt mátti finna bragðmun milli þeirra en
hunangið endurspeglaði þann gróður sem flugurnar sækjast í.
Systkinin Halldóra Lóa og Helgi Eyleifur Þorvaldsbörn eru að hefja undirbúning
ísframleiðslu í Brekkukoti sem verður seldur undir vöruheitinu Laufey.
Á bás Landnámsseturs Íslands var í boði grafið ærfile, glettilega gott. Áslaug
Þorvaldsdóttir, Erla Gunnlaugsdóttir og Svava Svavarsdóttir.
Jóhanna á Háafelli segir Ragnhildi Sigurðardóttur frá geitaafurðunum. Þarna sýndi hún meðal annars geitaosta.
Ýmislegt góðgæti frá Langaholti.
Fremst er reykt rauðspretta á rúg-
brauði með eggi. Ljósm. bg.
Gómsætar snittur frá Sif í Helgafellssveit. Framsetning var glæsileg. Hér er birkireyktur og grafinn silungur úr Skorradal.
Ljósm. bg
Um fimmtíu stóðu að kynningum á Stefnumótinu, en auk þess komu margir við og fengu smakk af því besta sem í boði er.Hulda og Ingibjörg heimasætur í Skorradal kynntu reyktan og grafinn silung.