Skessuhorn - 25.10.2017, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 201726
meira mér að skapi.
Við pabbi ræðum gjarnan þjóð-
félagsmál yfir kjötbollum á Háteigi
12 eða kaffibolla í beituskúr og geta
þær umræður orðið æði heitfengar
þar til karl faðir andvarpar af ör-
væntingu, fórnar höndum og spyr
almættið hvað honum eiginlega
hafi misfarist í uppeldinu, hann
sem sendi mig í Versló og allt til
þess að tryggja að ég kæmi örugg-
lega út réttum megin við miðju en
situr svo uppi með einhverja vinstri
sinnaða regnbogaknúspöndu sem
er aldrei er sammála honum í einu
né neinu!
Hann er samt, að ég held, þrátt
fyrir allt nokkuð ánægður með
mig, því þrátt fyrir íhaldshjartað þá
ber hann mikla virðingu fyrir kven-
þjóðinni og sér okkur sem æðri ver-
ur. Hann er til dæmis með nokkr-
ar myndir á veggjunum í beitu-
skúr af sterkum konum sem hann
hefur mætur á og þar á meðal eru
alveg nokkrar myndir af konum
sem tilheyra óvinaflokkum. Hann
er kannski ekki sammála þeim í
pólitík en sér í þeim verðuga og
harðduglega andstæðinga.
Um daginn sat ég í kaffibolla í
beituskúrnum hjá pabba þar sem
hann sagðist hafa fengið heimsókn
í skúrinn frá miðflokksframbjóð-
anda sem honum leist stórvel á og
væri jafnvel að hugsa um að kjósa.
Ég nánast signaði mig, hugsaði til
afa Olla heitins sem eflaust væri að
snúa sér tvöfalt við í gröfinni yfir
þessum litasvikum frumburðarins.
„Það er aldeilis hvað ein heimsókn
í beituskúrinn getur gert,“ hugsaði
ég með mér og ákvað að taka málin
í mínar hendur.
Ein af konunum harðduglegu
sem prýða vegginn í beituskúrn-
um er Katrín Jakobsdóttir. Það
eru meira að segja alveg nokkr-
ar myndir af henni. Pabbi hef-
ur alltaf dáðst að henni og stað-
festu hennar og hefur sérlega gam-
an að hnyttnum tilsvörum hennar
og hlær eiginlega mest þegar hún
stingur upp í hans eigin bláliða.
Hún er líka kona að mínu skapi og
sú fyrsta sem ég myndi handpikka í
mína ríkisstjórn, svo ég ákvað bara
að heyra í henni og spyrja hvort
það mætti ekki bjóða henni í kaffi
og pípu í beituskúr og hitta einn
heiðbláan sérvitring. Ef heimsókn
frá Katrínu myndi ekki snúa pabba
þá myndi ekkert gera það!
Ég verð að viðurkenna að ég
átti ekki endilega von á svari svona
akkúrat í miðri skyndikosninga-
baráttu en jú, Katrín var sko held-
ur betur til í þetta. Við Katrín og
Lísa, aðstoðarkonan hennar, mælt-
um okkur mót niðri við beituskúr á
björtum og brakandi ferskum laug-
ardagsmorgni. Þegar okkur bar að
garði glumdi beituskúr af áhrifa-
miklu atriði úr „The Wall,“ enda
djammar pabbi gjarnan yfir beitu-
bölunum.
Ég bankaði og gekk inn. „Pabbi
ég er komin með vinkonu mína
í heimsókn,“ sagði ég og Katrín
og Lísa komu inn. „Nei, ert þetta
þú!“ sagði pabbi eins og ekkert væri
eðlilegra en að Katrín væri komin
í heimsókn og rétti fram risastóran
beituhanskaklæddan hnefa svo hún
gæti klesst hann með sínum. Svo fór
hann að sýna henni allar myndirnar
af henni og hinum konunum og út-
skýrði að það væri nú bara þannig
að drottinn hefði lagt það á hann að
heillast sérstaklega að vinstrikonum
alveg frá því að hann fæddist og að
hann hefði þar af leiðandi gifst inn
í eina mestu kratafjölskyldu á Akra-
nesi fyrr og síðar.
Ég stóð álengdar og fylgdist
með þeim ræða málin, fagurgræn-
um og helbláum, og skemmti mér
konunglega. „Hvað eigið þið við
með að innkalla og endurúthluta,“
spurði pabbi sposkur og vitnaði þar
í fagurgrænan oddvita í NV kjör-
dæmi. Virkjanir komu líka til tals,
en pabbi tók þátt í að reisa nokkr-
ar þeirra og hann vill meina að þær
ættu að flokkast sem náttúruperlur
og setti Katrínu það fyrir að breyta
því sem fyrst. Þetta samtal var eigin-
lega allt saman frá upphafi til enda
alveg óborganlegt en fyndnast var
samt þegar kom að því að kveðja.
„Við verðum að spila útgöngumars
fyrir þig,“ sagði pabbi og gekk að
græjunum og stillti „Bring the Boys
Back Home“ í botn. Katrín tók sér
stöðu og gekk svo tignarlega út á
meðan pabbi þakkaði kærlega fyrir
skemmtilega heimsókn.
Við Katrín og Lísa fórum svo á
líflegan kosningafund á Kaupfélag-
inu, sá fyrsti sem ég hef farið á á
minni ævi. Þessir fundir eru kannski
svolítið barn síns tíma en ég verð að
segja að það eru samt ákveðin for-
réttindi í litla landinu okkar að geta
hitt alþingismennina okkar svona
í eigin persónu og geta rætt menn
og málefni auglitis til auglitis. Hvar
annars staðar væri það hægt?
Eftir fundinn skaust ég aftur í
beituskúr til pabba til að athuga
hvort hann væri ekki örugglega bú-
inn að ákveða að kjósa skynsam-
lega. Ég er ekki frá því að hann
hafi hnikast örlítið til, enda eins og
hann segir sjálfur, þá er hann meiri
náttúruverndarsinni en ég – vinstri-
kvendið sjálft. Hann var allavega
hæstánægður með heimsóknina og
bað mig í guðanna bænum að koma
sem oftast með stöllurnar í heim-
sókn en hann skammaði mig samt
fyrir að hafa ekki látið sig vita fyrir-
fram.
„Tinna, ef ég hefði fengið smá
fyrirvara þá hefði ég sótt bláar kart-
öflur í kartöflugeymslunna og sett í
körfu og gefið þeim með sér heim
í nesti.“
Tinna Steindórsdóttir
PISTILL
Varúð! Skýrar pólitískar yfirlýsingar
í allar áttir framundan. Lesist ekki af
pólitískt viðkvæmum (nema þeir séu
á sömu skoðun og undirrituð og aðrir
fjölskyldumeðlimir).
Ég hef áður skrifað um karl föð-
ur minn hér í Skessuhorn. Fleiri
hafa jafnvel skrifað um hann þar,
enda er maðurinn með eindæm-
um áhugaverður, einhvers konar
kynleg blanda af trillukarli, skraut-
fugli, kartöflubónda og blómakerl-
ingu, hokinn af reynslusögum af
sjó og landi og svona líka skemmti-
lega sérvitur. Algjörlega hlutlaust
mat. Ef hann væri sauður í sauða-
hjörð, þá væri hann einhyrningur,
margfrægur og sérstakur á meðal
sauða, og eins og hann þá myndu
pabbi og beituskúrinn sóma sér vel
á Byggðasafninu fyrir fólk til að
koma, skoða og fræðast.
Samt merkilegt nokk, þá hef ég
yfirleitt verið geimveran í fjölskyld-
unni. Ég er alin upp á íhaldsheim-
ili, bjó meðal annars við hliðina á
gamla Sjálfstæðishúsinu um tíma,
bláir arnarlímmiðar skreyttu her-
bergisveggi og pennaveski, og allir
aðrir en bláir vissu bara ekki bet-
ur þó það væri ágætis fólk. Nema
Framsóknarmenn. Afi minn Olli
mátti ekkert grænt sjá án þess að
blóta hressilega ofan í skyrtukrag-
ann. En samt áttum við góða ná-
granna og marga vini í Framsókn,
undantekningin sannar regluna
ekki satt? Mamma er víst komin
af einni mestu kratafjölskyldu sem
uppi hefur verið á Akranesi sam-
kvæmt föður mínum, en ég varð
nú aldrei jafn vör við þann væng í
mínu uppeldi. Þegar pabbi fór að
gera hosur sínar bláar fyrir móður
minni á Háholti 12 í gamla daga þá
var hann spurður hvurn árann hann
væri að gera þarna. Pabbi útskýrði
að þetta væri bara eins og með
Kristniboðana, hann færi auðvitað
þangað sem neyðin væri stærst.
Þessi flókni samruni tveggja
fjölskyldna á öndverðum meiði
útskýrir sennilega af hverju í mér
slær einhvers konar regnbogalit-
að jafnréttishjarta sem bara get-
ur ekki samsamað sig nógu mikið
með íhaldinu til að kjósa þá - en
ekki endilega með hinum heldur.
Mér finnst eiginlega bara flestir
flokkar hafa eitthvað til síns máls
og helst af öllu vildi ég bara hand-
pikka fólk úr flokkunum sem mér
líst vel á, sem ég myndi treysta til
þess að forgangsraða vel og ráðast
í verkin. Persónukosningar væru
Rjúpnaveiðitímabilið hefst næst-
komandi föstudag. Munu veiði-
dagar verða tólf og skiptast á fjór-
ar helgar á tímabilinu 27. október
til 19. nóvember. Leyfileg heild-
arveiði á rjúpum er um 57.000
rjúpur og miðað við fjölda veiði-
manna síðasta ár, gera það 5-6
fugla á hvern veiðimann. Sölubann
á er rjúpum. Stjórnvöld hafa það
sem meginstefnu að nýting rjúpn-
astofnsins skuli vera sjálfbær. Því
skulu rjúpnaveiðimenn stunda hóf-
lega veiði og eingöngu skjóta rjúpu
til eigin nota.
Veiðimenn eru sérstaklega beðn-
ir um að gera hvað þeir geta til að
særa ekki fugl umfram það sem þeir
veiða m.a. með því að ljúka veiðum
áður en tekur að rökkva. Veiði-
verndarsvæði er á suðvesturlandi,
líkt og undanfarin ár. Þá eru veiði-
menn hvattir til góðrar umgengi
um landið. Loks eru þeir hvattir til
að fara eftir öllum reglum varðandi
öryggi þeirra á ferðum.
Öryggið á oddinn
Mikilvægt er að hafa eftirfarandi
atriði að leiðarljósi:
Kynna sér færð og veðurspá •
áður en haldið er í veiðiferð.
Öryggi er fólgið í því að vera •
ekki einn á ferð.
Skilja ferðaáætlun eftir hjá að-•
standendum. Þar þarf að koma
fram hvert á að fara, hvaða leið
á að velja, hverjir verða með í
för, hvenær heimkoma er áætl-
uð og hvaða búnaður er með
í för.
Hafa fjarskiptatæki með í för •
og gæta að hleðslu rafhlaða.
Hlaða 112 snjallsímaforritinu •
niður ef síminn býður upp á
það.
Hafa kort og áttavita meðferð-•
is og kunna að nota það.
Hafa farartækið í lagi og gæta •
þess að það sé á vetrardekkj-
um.
Hafa nauðsynlegustu verkfæri •
og viðgerðarbúnað fyrir bílinn
með ásamt skóflu og teygjus-
potta.
Vanda val á fatnaði. Klæðast •
nokkrum lögum og skjólgóð-
um utanyfirfatnaði í áberandi
lit.
Velja vatnshelda grófbotna skó •
sem styðja vel við ökkla.
Taka orkuríkt nesti með, vökva •
og neyðarnesti.
Hafa byssu ekki hlaðna í bíln-•
um og hafa öryggið ávallt á á
göngu með byssuna.
Gæta að því að fleiri rjúpna-•
veiðimenn geta verið á svæð-
inu.
Hafa þekkingu á skyndihjálp •
og sjúkragögn meðferðis.
Festa allan farangur niður. •
mm
Rjúpnaveiðitímabilið
að hefjast
Þegar Katrín hitti pabba í beituskúrnum
Greinarhöfundur í beituskúrsheimsókninni ásamt Steindóri föður sínum og Katrínu Jakobsdóttur.
Meðal veggskreytinga í skúrnum hjá helbláum íhaldskarlinum er þessi úrklippa af
Katrínu gróðursetja tré.