Skessuhorn - 22.11.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 47. tbl. 20. árg. 22. nóvember 2017 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
Besta bankaappið
á Íslandi
Samkvæmt könnun MMR
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
GJAFABRÉF
www.landnam.is - landnam@landnam.is
Sími: 437 1600
Bráðskemmtileg
jólagjöf!
SEM Á ENGA SÍNA LÍKA
Rúta með 15 manns fór útaf Snæ-
fellsnesvegi og valt á hliðina skammt
frá afleggjaranum að Kálfárvöll-
um í Staðarsveit á sjötta tímanum á
sunnudaginn. Alls þurfti að flytja tíu
undir læknishendur, þrjá með þyrlu
Landhelgisgæslunnar til Reykjavík-
ur og sjö með sjúkrabílum á Akra-
nes. Enginn mun þó hafa slasast al-
varlega. Rútan er skráð erlendis en
henni ók íslenskur ökumaður. Aðrir
í bílnum voru erlendir ferðamenn í
dagsferð frá Reykjavík.
Aðstæður voru fremur erfiðar á vett-
vangi slyssins; hvasst, töluverð hálka
og snjór. Fjölmennt lið viðbragðs-
aðila var sent á staðinn, bæði frá
Borgarnesi en flestir af Snæfells-
nesi. Þar með taldar björgunarsveit-
ir, heilbrigðisstarfsfólk, lögregla og
sjúkraflutningabílar, ásamt Slökkvi-
liði Snæfellsbæjar og þyrlu Gæslunn-
ar. Aðgerðir á vettvangi gengu vel
þrátt fyrir erfiðar aðstæður eins og
fyrr segir. Þó fauk sjúkrabíll út í kant
þrátt fyrir að vera á góðum dekkjum,
slík var hálkan og mikill hliðarvind-
ur á veginn. Hluti fólksins úr rút-
unni var í fyrstu fluttur að Lýsuhóli
þar sem fjöldahjálparstöð var komið
upp. Þá var aðgerðastjórn almanna-
varna á Vesturlandi virkjuð á Akra-
nesi og einnig fjöldahjálparstöðin í
Skógarhlíð í Reykjavík.
Lögregla lokaði veginum um tíma
vegna slyssins en hann var opnað-
ur um tveimur tímum eftir, strax og
aðgerðum á vettvangi lauk.
mm/ Ljósm. Alfons Finnsson
Rútuslys við slæmar aðstæður í Staðarsveitinni
Veðurstofan spáir köldu veðri út þessa viku með frosti inn til landsins. Víðáttumikil hæð hefur hreiðrað um sig yfir Grænlandi
og lægðirnar fara í halarófu framhjá langt fyrir sunnan land. Við slíkar aðstæður er viðvarandi köld norðaustanátt alla
vikuna með éljagangi fyrir norðan og austan, en lengst af björtu veðri sunnan heiða. Stórhríð hefur nú geisað á norðanverðu
landinu með tilheyrandi röskun á færð. Um næstu helgi er því spáð að dragi úr vindi og éljagangi.
Þessa fallegu vetrarmynd tók Þórunn Reykdal í Hálsasveit síðastliðinn laugardag. Sólin rétt náði að teigja
geisla sína yfir hálsinn og lýsa upp ískristallana í snjónum sem fest hafði á girðingunni.
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu-
kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni,
náði sínum besta árangri á ferlinum
á Evrópumótaröðinni um helgina
þegar hún endaði í þriðja sæti á Sa-
nya Ladies Open. Jafnframt er þetta
besti árangur íslenskra kylfinga frá
upphafi. Mótinu lauk aðfararnótt
sunnudags að íslenskum tíma. Með
árangrinum færðist Valdís upp um
fjölmörg sæti á stigalista mótarað-
arinnar og er hún jafnframt búin að
tryggja sér keppnisrétt á mótaröð-
inni á næsta ári. Hún er nú komin
upp í 50. sæti stigalistans á Evrópu-
mótaröðinni með 24.458 stig.
Til að setja þennan árangur í
samhengi við aðra kylfinga, þá er
þetta fjórði besti árangur nýliða á
þessu tímabili en alls eru 22 kylf-
ingar að leika á mótaröðinni í fyrsta
sinn. Lokamót tímabilsins hjá Val-
dísi Þóru fer fram dagana 6.-9. des-
ember nk.
mm/kylfingur.is
Frábær árangur
Valdísar Þóru í Kína