Skessuhorn - 22.11.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201718
Hið árlega einmenningsmót í boccia
fyrir eldri borgara fór fram í íþrótta-
húsinu á Vesturgötu á Akranesi
sunnudaginn 19. nóvember. Íþrótta-
nefndir eldri borgara í Borgarfirði
og Akranesi standa að mótinu. Til
leiks mættu 15 konur og 31 karl
frá Reykjanesbæ, Kópavogi, Akra-
nesi, Borgarbyggð, Grundarfirði,
Hvammstanga og Húsavík.
Í kvennaflokki bar Margrét
Hjálmarsdóttir Gjábakka í Kópa-
vogi sigur úr býtum í viðureign
við Rögnu Guðvarðardóttur Glóð
Kópavogi 4:3 í úrslitaleik um fyrsta
sætið. Guðbjörg Lárusdóttir í
Reykjanesbæ vann Eddu Elíasdótt-
ur Akranesi 4:3 um þriðja sætið.
Í karlaflokki vann Valur Thorodd-
sen Þórhall Teitsson 4:3 í keppni um
fyrsta sætið. Þeir eru báðir úr Borg-
arbyggð. En þetta var í fyrsta sinn
sem Valur tekur þátt í þessu móti.
Guðmundur Magnússon frá Húsa-
vík vann Hrólf Guðmundsson frá
Gjábaka í Kópavogi 8:2 í keppni um
þriðja sætið.
Næsta bocciamót eldri borgara er
tvímenningur í Mosfellsbæ í febrú-
ar.
ii/ Ljósm. Baldur Á. Magnússon.
Einmenningsmót
í boccia
Fyrirtækin Hópferðabílar Svans
Kristófers og Íslenska Gámafélag-
ið í Snæfellsbæ skrifuðu á dögun-
um undir samning við Landsbjörgu
vegna verkefnisins „Vertu snjall
undir stýri.“ Einnig undirrituðu
bílstjórar þessara sömu fyrirtækja,
ásamt bílstjórum Íslenska Gáma-
félagsins í Stykkishólmi, undir
þátttöku í verkefninu. Verkefnið
Vertu snjall undir stýri fór af stað í
haust og hafa nú þegar 16 fyrirtæki
á landinu meldað sig til þátttöku.
Markmið þess er að breyta við-
horfi fólks til snjalltækjanotkunar
við akstur og snúa þannig við þeirri
óheillaþróun sem átt hefur sér stað
við notkun snjalltækja í umferðinni.
Þegar fyrirtæki ákveður að taka þátt
í verkefninu skrifar það undir sam-
félagslega yfirlýsingu við Lands-
björg og í kjölfarið merkja fyrir-
tækin bíla sína með skilaboðum til
samfélagsins um snjalltækja notkun
í umferðinni.
Einn af mikilvægustu þáttum
verkefnisins er að Landsbjörg ásamt
fulltrúa Samgöngustofu heimsækja
fyrirtækin og fræða bílstjóra og
starfsfólk um þær afleiðingar sem
þessi áhættuhegðun getur haft í för
með sér. Verkefnið hefur fengið
mjög góðar viðtökur og segjast full-
trúar Landsbjargar og Samgöngu-
stofa það vera rétt að byrja. Stendur
til að fara um allt land og heimsækja
þau fyrirtæki sem vilja taka þátt í að
snúa við þeirri skelfilegu þróun að
ökutækið sé orðið griðastaður hins
snjalltækja-elskandi ökumanns.
Miklu máli skiptir að byrja á því að
horfa í eigin barm og spyrja sjálf-
an sig þeirra mikilvægu spurningar:
„Er ég fyrirmynd míns fyrirtækis?
Er ég fyrirmynd barnanna minn?
Er ég að stofna sjálfum mér og öðr-
um í hættu með því að stunda þessa
áhættuhegðun við akstur?“
Vonandi tekst með þessu verk-
efni að breyta viðhorfi fólks um
notkun snjalltækja í umferðinni
því áberandi er orðið hversu mörg-
um þykir sjálfsagt að lesa og skrifa
smáskilaboð, tölvupósta og jafnvel
horfa á myndefni í snjalltæki sínu
við akstur. Þetta hefur aukið slysa-
hættu verulega í umferðinni og
samkvæmt upplýsingum frá Amer-
íku og Evrópu má rekja 25% allra
umferðaslysa til snjalltækjanotkun-
ar og má klárlega heimfæra það til
Íslands.
þa
Ætla að verða snjallir undir stýri
Um þessar mundir er verið að leggja
lokahönd á opnun matarsmiðju sem
verður til húsa á Sólbakka í Borgar-
nesi í húsnæði sem Eðalfiskur var
síðast. Eru það Ljómalind og Sam-
tök sveitarfélaga á Vesturlandi sem
standa að matarsmiðjunni. Hefur
Sigurbjörg Kristmundsdóttir, versl-
unarstjóri í Ljómalind, unnið hörð-
um höndum undanfarnar vikur við
að gera aðstöðuna klára fyrir opnun,
sem verður vonandi á allra næstu
vikum. Lítilsháttar forskot var tek-
ið á opnunina nú á mánudaginn 20.
nóvember, þegar Óli Þór Hilmars-
son hélt þar námskeið á vegum Sí-
menntunarmiðstöðvarinnar á Vest-
urlandi í söltun og reykingu mat-
væla. „Okkur þykir frábært að geta
nýtt þessa aðstöðu svona, eins og
fyrir þetta námskeið, og vonandi
verða þau fleiri,“ segir Sigurbjörg í
samtali við Skessuhorn.
Aðstaðan í matarsmiðjunni er
mjög góð og vel búin, en þar er að
finna öll helstu tæki til framleiðslu
á eigin matvælum. „Við erum með
flest sem þarf; pökkunarvél, pyl-
susprautu, hakkavél, farsvél og önn-
ur slík tæki. Einhver tæki gæti þó
vantað en þá er hægt að fá þau leigð
og vonandi með tíð og tíma bætast
fleiri tæki við hjá okkur. Við munum
alltaf reyna eftir fremsta megni að
uppfylla þarfir fólks hvað þetta varð-
ar og hjálpa viðkomandi að nálgast
þann búnað sem þarf,“ segir Sigur-
björg.
Matarsmiðjan er opin öllum Vest-
lendingum sem vilja vinna matvæli
og þurfa til þess annað hvort sam-
þykkt eldhús eða áhöld og tæki sem
þar eru að finna. „Þeir sem ætla að
framleiða matvöru til sölu þurfa að
vinna hana í samþykktu eldhúsi og
geta þá gert það hér í matarsmiðj-
unni. Einnig getur fólk nýtt aðstöð-
una til að vinna matvæli til einka-
neyslu, þó ekki sé ætlunin að selja
vöruna. Til að mynda er hægt að
nýta búnaðinn sem við erum með,“
segir Sigurbjörg. Aðspurð hvenær
matarsmiðjan verði opnuð segir hún
það ekki liggja fyrir. „Við munum
auglýsa það vel þegar þar að kem-
ur og geta áhugasamir þá sett sig í
samband við mig til að bóka tíma.
Leigutími er alveg frjáls, allt frá því
að leigja hálfan dag í mun lengri
tíma. Ekki er alveg ljóst hvert leigu-
verð verður en við stefnum á að hafa
það í lágmarki og að það verði á færi
allra að borga,“ segir Sigurbjörg.
arg
Matarsmiðja að verða að veruleika í Borgarnesi
Sigurbjörg Kristmundsdóttir verslunarstjóri í Ljómalind hefur undanfarið unnið
hörðum höndum að opnun matarsmiðju í Borgarnesi.
Vinnsluherbergi í matarsmiðjunni í Borgarnesi.
Pökkunarherbergi í matarsmiðjunni í Borgarnesi.
Óli Þór Hilmarsson kom frá Matís og
kenndi fólki að salta og reykja mat.
Ljósm. Sigurbjörg Kristmundsdóttir.
Fyrsta námskeiðið var haldið í matarsmiðjunni í Borgarnesi á mánudaginn, 20.
nóvember.