Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2017, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 22.11.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201724 Árlega er boðað til uppskeruhá- tíðar ferðaþjónustu á Vesturlandi, þar sem ferðaþjónustufólk í lands- hlutanum hittist, fræðist, kynnist og gerir sér glaðan dag. Dagskráin var skipulögð af Markaðsstofu Vestur- lands og sóttu hana ferðaþjónar víða úr landshlutanum. Að þessu sinni var farið vestur í Dali á uppskeruhá- tíð, en dagskráin hófst þó á málstofu á Bifröst. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vest- urlands, hélt þar stutt erindi áður en Margrét Björk Björnsdóttir, ráðgjafi hjá SSV þróun og ráðgjöf, kynnti Áfangastaðaáætlun DMP á Vestur- landi. Næst tók til máls Daði Guðjóns- son frá Íslandsstofu og kynnti niður- stöður markhópagreiningar fyrir ís- lenska ferðaþjónustu. Hann gat ekki verið á staðnum en tók tæknina í sína þjónustu og flutti erindið í gegnum Skype. Daði sagði að markhóp- agreiningin væri einn liður í því að auka arðsemi í íslenskri ferðaþjón- ustu, minnka árstíðasveiflur, stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið og stuðla að verndun nátt- úru og menningar Íslands. „Grein- ingar sem þessar skila betri tölum sem hægt er að nýta til að stunda skilvirkari markaðssetningu,“ sagði hann. Tikkar í flest box Markhópagreiningin var gerð með könnun sem náði til 14 þúsund manns í Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Sviss og Danmörku. Markhóparn- ir hafa verið greindir út frá lífshátt- um, persónugerð og hvernig þeir mæta þörfum og markmiðum ís- lenskrar ferðaþjónustu. Þeim voru gefin nöfnin lífsglaði heimsborgar- inn, sjálfstæði landkönnuðurinn og makindalegi menningarvitinn. Daði sagði hópana um margt líka. „Allir hóparnir þrír eiga það sameiginlegt að vera með tekjur yfir meðallagi, ferðast oft, sækja í menningu, leita stöðugt eftir nýjum upplifunum og áfangastöðum, vilja tengjast heima- mönnum og bera virðingu fyrir um- hverfinu,“ sagði hann en tók fram að þeir hefðu einnig sín sérkenni þó hóparnir væru heilt yfir líkir. Fyrsti hópurinn, lífsglaði heimsborgar- inn, er fjölmennastur, eða um 36% á hverju markaðssvæði sem kannað var. „Þessi hópur tikkar í flest box ís- lenskrar ferðaþjónustu,“ sagði Daði og fór því næst nánar út í skiptingu hópanna á hverju markaðssvæði fyr- ir sig. Þá sagði hann stuttlega frá nýrri vegferð í markaðssetningu á vegum Íslandsstofu undir yfirskriftinni „Ís- land frá A til Ö“. Liður í þeirri her- ferð er til að mynda erfiðasta kar- íókílag í heimi, sungið af Steinda jr. á ensku en með íslenskum orðum inn á milli. Hefur lagið vakið töluvert mikla athygli hérlendis sem erlend- is. Liður í þessari sömu markaðsher- ferð eru stutt myndbönd og kynn- ingar á netinu fyrir hvern landshluta fyrir sig. Þar er unnið með 32 orð sem eiga að vekja áhuga ferðalanga á hverjum landshluta. „Þessi saman- tekt og herferð er ekki hugsuð sem handbók fyrir ferðamenn heldur til að vekja áhuga og forvitni á hverju svæði,“ sagði Daði. Ferðamönnum fjölgað mikið Næstur tók til máls Rögnvaldur Guðmundsson, eigandi fyrirtæk- isins Rannsóknir og ráðgjöf ferða- þjónustunnar og formaður Ólafs- dalsfélagsins. Fyrst sagði hann frá skýrslu sinni um ferðaþjónustu á Vesturlandi 2010-2016, en gögn í skýrslunni eru fengin með spurn- ingakönnun í Leifsstöð. Þar eru ferðamenn spurðir hvaða svæði þeir hafa heimsótt á landinu, hvort þeir hafa gist á þeim svæðum og þá hve margar nætur. Skýrslan náði upp- haflega til ársins 2015 en nýverið var síðasta ári bætt við. Helstu niður- stöður eru þær að 44% þeirra ferða- manna sem til Íslands komu á síðasta ári sóttu Vesturland heim. Af þeim sem heimsóttu landshlutann árið 2016 gistu 52% en 48% dvöldu að- eins daglangt. Sé árinu skipt í tvennt þá kemur í ljós að 61% sumargesta á Vesturlandi gistu en 45% vetrar- gesta. Á ársgrundvelli eru gistinætur á Vesturlandi að meðaltali 1,8, eða um 6,2% af öllum erlendum gisti- nóttum í landinu. Á tímabilinu 2010 til 2016 hefur ferðamönnum fjölgað mikið í lands- hlutanum. Sumargestum um Borg- arfjörð hefur til að mynda fjölgað 2,3 falt á tímabilinu en vetrargestum 6,4 falt. Á Snæfellsnesi er fjölgunin enn meiri. Þar hefur sumargestum fjölgað þrefalt frá 2010 til 2016 en fjöldi vetrargesta tífaldast. „Lifandi staður allan ársins hring“ Að lokinni kynningu sinni á skýrsl- unni skipti Rögnvaldur um hatt, setti á sig hatt formanns Ólafsdals- félagsins og ræddi um starfsemi þess og staðinn. Félagið var stofnað árið 2007 með það markmið að stuðla að endurreisn Ólafsdals í Gils- firði. Rögnvaldur fór stuttlega yfir aðdragandann að stofnun félags- ins, hvað hefur verið gert síðan og framtíðaruppbyggingu í Ólafsdal. Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni var árið 2015 undir- ritaður samningur við Minjavernd um endurreisn staðarins, en það er verkefni upp á um það bil 500 millj- ónir króna. Í sumar dró enn til tíð- inda þegar fundust vísbendingar um langhús með víkingalagi, jarðhýsi og fleiri fornar minjar. Mannvistarleif- ar fundust í kolalögum langhússins, samkvæmt niðurstöðum rannsókn- ar frá því í síðasta mánuði. „Þetta er gríðarlega spennandi,“ sagði Rögn- valdur um fornminjar í Ólafsdal en vék síðan aftur að framtíðarupp- byggingu Minjaverndar á staðnum. „Vonandi verður Ólafsdalur í fram- tíðinni lifandi staður allan ársins hring,“ sagði hann. Snæddu osta á Erpsstöðum Að loknu málþingi á Bifröst lá leið- in á Hraunsnef sveitahótel þar sem snæddur var léttur hádegisverð- ur áður en haldið var vestur í Dali. Fyrsta stopp þar var á Rjómabúinu Erpsstöðum. Þar tóku Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga El- ínborg Guðmundsdóttir, bænd- ur og ferðaþjónar, á móti hópnum. Þau sögðu frá starfseminni á Erps- stöðum; ís-, skyr-, konfekt- og osta- gerð sinni og gistingunni. Fram- leiðslan sjálf fer fram á býlinu og er seld í verslun í fjósinu. Þegar kom- ið er þangað inn geta gestir fylgst með kúnum í gegnum stóra gler- glugga. Þannig má fylgjast með ró- bótanum mjólka kýrnar handan af- greiðslunnar. Þorgrímur og Helga buðu jafn- framt upp á smakk af afurðunum við afar góðar undirtektir gesta sem gæddu sér á ís og ostum. Var falast eftir því að þau opnuðu búðina og fóru nokkrir gestanna frá Erpsstöð- um með góðgæti í fórum sínum. Lifandi saga að Eiríksstöðum Að lokinni heimsókn að rjómabúinu var haldið í Leifsbúð í Búðardal þar sem Kjartan Ragnarsson og Sigríð- ur Margrét Guðmundsdóttir sögðu frá fyrirhugaðri uppbyggingu Vín- landsseturs í Leifsbúð. Nánar um það í annarri frétt hér í Skessuhorni vikunnar. Næst var haldið að Eiríksstöðum í Haukadal þar sem Sigurður Hrafn Jökulsson á Vatni bauð ferðaþjónum í tilgátubæ Eiríks rauða. Sigurður brá sér í víkingaklæði, veitti vel af mat og drykk og fól blaðamanni að sjá til þess að aldrei skyldu rauðvíns- glös tæmast. Sigurður kveikti upp í langeldinum í bænum og sagði fjöl- margar sögur í myrkrinu og við- staddir skemmtu sér konunglega. Hann sagði sömuleiðis frá starf- seminni á Eiríksstöðum, en þar er lifandi sögusýning frá 1. júní til 1. september, auk þess sem tekið er á móti hópum allt árið um kring. Eftir ánægjulega og skemmti- lega heimsókn að Eiríksstöðum héldu gestir uppskeruhátíðarinnar að sveitahótelinu Vogi á Fellsströnd þar sem boðið var til kvöldverðar og gist en blaðamaður hélt heim á leið. Daginn eftir fór hópurinn í heim- sókn að Skarði áður en haldið var með rútunni í Borgarnes þaðan sem hver hélt til síns heima. kgk Ferðaþjónar hittust og fræddust á uppskeruhátíð Gestir uppskeruhátíðar hlíða á erindi málþingsins á Bifröst. Víkingurinn segir sögur. Sigurður á Vatni bauð gestum uppskeruhátíðar í tilgátubæinn að Eiríksstöðum þar sem hann fræddi gesti um starfsemina, svaraði spurningum og sagði margar skemmtilegar sögur. Þorgrímur og Helga tóku á móti hópnum á Rjómabúinu Erpsstöðum og buðu upp á ís og skyr. Nýjustu íbúar Dalabyggðar, selirnir sem dvelja í Búðardal, fönguðu athygli nokk- urs hluta hópsins þegar komið var að Leifsbúð. Kjartan Ragnarsson segir frá fyrirhugaðri uppbyggingu Vínlandsseturs í Leifsbúð í Búðardal. Gengið frá rútunni að tilgátubæ Eiríks rauða að Eiríksstöðum í Haukadal. Hlýtt á sögu við langeldinn á Eiríksstöðum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.