Skessuhorn - 22.11.2017, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 20172
Hildibrandur Bjarnason bóndi, há-
karlaverkandi og ferðafrömuð-
ur í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi lést
16. nóvember síðastliðinn. Hildi-
brandur fæddist 18. nóvember
1936 á Asparvík á Ströndum. For-
eldrar hans tóku sig upp af Strönd-
um með barnahópinn sinn og fluttu
árið 1951 búferlum að Bjarnarhöfn
í Helgafellssveit. Þar hefur Hildi-
brandur og fjölskylda hans rek-
ið myndarbú með sauðfé og hross
en þekktastur er Hildibrandur fyr-
ir verkun og sölu á hákarli og miðl-
un þekkingar og fróðleiks til ferða-
manna sem í þúsundatali hafa sótt
Bjarnahöfn heim á ári hverju. Á bæj-
arhlaðinu hefur verið reist myndar-
legt safn um gamla búhætti og sjó-
sókn og aðstæður til móttöku ferða-
fólks eru þar framúrskarandi.
Óhætt er að segja að Hildibrand-
ur í Bjarnarhöfn sé fyrir löngu orð-
inn þjóðkunnur fyrir starf sitt, frá-
sagnargáfu og litríka persónu. Hann
var vinmargur sem glöggt sást fyr-
ir réttu ári á áttræðisafmælinu þeg-
ar hann tók á móti yfir 300 gestum
með gleði og söng heima í Bjarnar-
höfn. Veikindi höfðu hrjáð hann síð-
ustu misserin en af þekktri seiglu og
með bjartsýni um bata tókst hann á
við þann skafl allt til enda.
Hildibrandi í Bjarnarhöfn verð-
ur seint fullþakkað framlag hans til
uppbyggingar ferðaþjónustu á Vest-
urlandi. Hann vann brautryðjanda-
starf sem eftir var tekið við varð-
veislu minja og miðlun sögu lands
og þjóðar til gesta sem hingað komu
hvarvetna úr heiminum. Fyrir hönd
Vestlendinga allra eru honum að
leiðarlokum færðar þakkir fyrir sinn
skerf til samfélagsins. Eftirlifandi
eiginkonu, börnum og ættmenn-
um öllum eru færðar samúðarkveðj-
ur. Eftir lifir minningin um mætan
mann. -mm
Nú þegar stutt er eftir af nóvember
eru ýmsir fjölbreyttir viðburðir fram-
undan á Vesturlandi. Má þar t.d. nefna
hið árlega jólabingó Kvenfélagsins
19. júní, basar í Setrinu í Stykkishólmi
og jóla- og sveitamarkað í Breiðabliki.
Allt eru þetta kjörin tækifæri til að fara
og hitta fólk og gera sér dagamun í
skammdeginu.
Spáð er norðan hvassviðri eða stormi
og snjókomu eða éljagangi um landið
norðanvert, en úrkomulaust um sunn-
anvert landið á fimmtudag og föstu-
dag. Frost verður 0-8 stig. Á laugardag
er spáð allhvassri eða hvassri norðan-
átt í fyrstu með éljum á Norður- og
Austurlandi en bjart verður sunnan
heiða. Fer að lægja eftir hádegi, fyrst
á vesturhluta landsins en áfram verð-
ur kalt í veðri. Á sunnudag er útlit fyrir
austlæga átt og bjart veður en skýjað
og dálitla snjókomu á Suðvestur- og
Vesturlandi, hiti um frostmark við suð-
vesturströndina en talsvert frost í inn-
sveitum Norðan- og Austanlands. Á
mánudag er spáð hægum vindi, þurru
og frosti um land allt.
Alvarleg kerfisbilun varð hjá hýsingar-
aðila www.skessuhorn.is, 1984.is, nú
í lok síðustu viku og datt því spurn-
ing vikunnar út af vef Skessuhorns. Við
komum sterk inn með spurningu fyrir
næstu viku þar sem spurt er:
Hversu oft þværðu þér um hárið?
Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur frá
Akranesi er Vestlendingur vikunnar.
Hún náði besta árangri íslenskra kylf-
inga fram til þessa þegar hún varð í
þriðja sæti á Sanya Ladies Open í Kína
um helgina, í næststerkustu mótaröð
sem spiluð er í heiminum.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Ísland fremst
í upplýsinga-
tækni
HEIMURINN: Ísland er
nú í efsta sæti þjóða heims á
einkunnalista Alþjóða fjar-
skiptasambandsins í árlegri
skýrslu sem birt var í síð-
ustu viku um stöðu og þró-
un upplýsingasamfélagsins
í heiminum. Þar er ríkjum
raðað á lista eftir einkunn-
um og niðurstöðum skv.
mælikvörðum sem not-
aðir eru til að mæla stöðu
og þróun upplýsingasam-
félagsins. Einnig er birtur
listi með heildareinkunn-
um ríkja, svokallaður IDI
listi (ICT Development
Index). Þar er 176 ríkjum
um allan heim raðað í ein-
kunnaröð og borið er sam-
an við niðurstöður frá síð-
asta ári. Ísland var í 2. sæti
á þessum lista á síðasta ári,
en hefur nú skotist upp fyr-
ir Suður-Kóreu sem hef-
ur verið í efsta sætinu síð-
ustu ár. Í þriðja sæti er Sviss
og síðan kemur Danmörk í
fjórða sæti. -mm
Vetrarþjónusta
Vegagerðar-
innar
LANDIÐ: Vegagerðin
vill vekja athygli vegfar-
enda á því að aðeins örfá-
ir vegir eru í þjónustu all-
an sólarhringinn. „Í grennd
við marga þéttbýlisstaði
eiga vegir að vera færir til
klukkan 22 en víða lýkur
þjónustu um kvöldmatar-
leytið eða jafnvel enn fyrr
- og sumir vegir eru ekki
í daglegri þjónustu. Eft-
ir að þjónustu lýkur getur
færð spillst nokkuð hratt
þegar snjóar eða skefur
og ástandið getur því orð-
ið nokkuð annað en þegar
vegir voru hreinsaðir síðast
og færð skráð. Því er alltaf
ráðlegt að skipuleggja ferð-
ir innan þjónustutíma eftir
því sem kostur er,“ segir í
tilkynningu frá Vegagerð-
inni. -mm
Breyttur tími
körfuboltaleiks
AKRA-BORG: KKÍ hef-
ur gert breytingu á tíma-
setningu leiks í 1. deild í
körfubolta karla. Vestur-
landsslagur Skallagríms og
ÍA verður spilaður 15. des-
ember kl. 19.15 í stað 14.
desember.
-mm
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hef-
ur staðfest viljayfirlýsingu um sam-
starf við Bjarg íbúðafélag um upp-
byggingu þriggja fjölbýlishúsa fyr-
ir leiguíbúðir á Akranesi í samræmi
við ákvæði laga nr. 52/2016 um al-
mennar íbúðir. Bjarg leigufélag er í
eigu BSRB og ASÍ og er tilgangur
þess að byggja, eftir danskri fyrir-
mynd, íbúðarhúsnæði sem leigt er
til langs tíma á viðráðanlegu verði,
þ.e. án hagnaðarsjónarmiðs. Bæj-
arstjórn Akraness samþykkti á síð-
asta fundi sínum viljayfirlýsingu um
samstarf við íbúðafélagið um út-
hlutun lóða við Asparskóga 12, 14
og 16 á Akranesi. Auk þessa sam-
komulags við Akraneskaupstað hef-
ur Bjarg m.a. ritað undir viljayfir-
lýsingu við Reykjavíkurborg og
Hafnarfjörð um lóðir fyrir á annað
þúsund íbúðir en markmið félags-
ins er að byggja í fyrsta áfanga 1200
íbúðir í nokkrum sveitarfélögum.
mm
Leigufélagið Bjarg fær þrjár fjölbýlishúsalóðir á Akranesi
Lóðirnar Asparskógar 12,
14 og 16 liggja vestan við
götuna, samsíða einbýlis-
húsunum sem þarna sjást.
Ljósm. kgk.
Skortur hefur verið á heitu vatni í
Heiðarskóla og Heiðarborg í Hval-
fjarðarsveit að undanförnu. Tals-
verðrar óánægja gætir meðal íbúa
í sveitarfélaginu vegna þessa. Skúli
Þórðarson sveitarstjóri Hvalfjarðar-
sveitar segir að skortur á heitu vatni
hafi verið vandamál í nokkurn tíma.
Vandamálið ágerist í miklu frosti
eða í löngum kuldaköflum. Skúli
staðfestir að af og til þurfi að grípa
til þess að hita Heiðarskóla upp
með rafmagni. „Þetta er flókið mál
sem varðar samskipti og eignarhald
og engin úrlausn í sjónmáli eins og
er. Við skiljum vel þær óánægju-
raddir sem hafa heyrst í samfé-
laginu og erum að skoða hvað hægt
er að gera, en það er engin einföld
lausn til á þessu vandamáli,“ segir
Skúli í samtali við blaðamann. Að-
spurður hvaða hugsanlegu lausnir
sé verið að skoða segist hann ekki
geta greint frá því að svo stöddu.
„Eins og ég segi er þetta flókið en
við erum vel meðvituð um þetta
vandamál og erum að skoða hvað
sé hægt að gera. Þetta vandamál er
ekkert nýtt og ég veit ekki til þess
að það sé neitt meiri skortur á heitu
vatni núna heldur en verið hefur
síðastliðna vetur.“ arg Vegna heitavatnsskorts þarf af og til að kynda Heiðarskóla upp með rafmagni.
Skortur á heitu vatni
í Hvalfjarðarsveit
Andlát:
Hildibrandur Bjarnason í Bjarnarhöfn