Skessuhorn - 22.11.2017, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Gott að kynna sér
almenn öryggisatriði
Þegar yfirvofandi ógn vofir yfir setur að mörgum óhug, eðlilega. Nú færist
skammdegið yfir af krafti og árstíminn minnir óneitanlega á sig. Stórhríð
geisar um allt norðanvert landið þegar þetta er skrifað síðdegis á mánudegi.
Í gær fauk til dæmis lítil rúta út af í Staðarsveitinni og í dag féll snjóflóð
og lokaði veginum til Siglufjarðar. Samgöngur eru teknar að spillast. Þá er
boðað í fjölmiðlum að hæsti jökull landsins, sem jafnvel vísindamenn töldu
kulnaða eldstöð, sjálfur Öræfajökull, væri tekinn að hósta og ræskja sig.
Undir honum er greinilega virk eldstöð sem lætur enga vísindamenn segja
sér hvort hún er lífs eða liðin, jafnvel þótt hún hafi þagað í þrjú hundruð ár.
Í það minnsta er að myndast ferkílómeters dyngja efst á jöklinum skammt
frá sjálfum Hvannadalshnjúki. Við erum minnt á að við búum á landi hinna
miklu andstæðna þar sem eldur og ís takast á og maðurinn má sín lítils við
ákveðnar aðstæður.
Þessu tengt, þó á annan hátt. Í síðustu viku varð rof á ákveðinni þjón-
ustu. Eitt stærsta vefhýsingarfyrirtæki landsins lamaðist. Þar horfðu starfs-
menn upp á, án þess að geta nokkuð að gert, þegar heilu tölvusamstæð-
urnar dóu, hugbúnaður hvarf, algjört kerfishrun varð. Þúsundir vefsíðna
hreinlega hurfu. Á þessari stundu, tæpri viku síðar, er allsendis óvíst hvort
hægt verður að endurheimta allt það efni sem hýst var hjá fyrirtækinu. Við
á Skessuhorni vorum eitt af þeim fyrirtækjum sem urðum fyrir barðinu á
þessari árás sem mér finnst nokkuð augljóst að hafi verið gerð á fyrirtækið
1984.is. Enn hefur gamla heimasíðan okkar ekki fundist. Skaðinn var þó
takmarkaður í okkar tilfelli þar sem ungi maðurinn sem skrifaði síðuna fyr-
ir okkur fyrir tveimur árum ákvað að taka sjálfstæða afritun af henni mán-
aðarlega. Því gátum við á rúmum sólarhring eftir kerfishrunið mikla sótt
það sem skipti máli til að opna nýja heimasíðu og vistað hana á öðrum stað.
En þetta tímabil meðan vefurinn var úti var dálítið taugatrekkjandi enda
var ástand uppi sem ekki er unandi við þegar fréttasíða fyrir heilan lands-
hluta á í hlut.
Þetta ástand minnti mig óneitanlega á gamla daga þegar rafmagnir fór af
í sveitinni og allir urðu að bjarga sér við slíkar aðstæður. Oft tók talsverðan
tíma, stundum daga, að koma rafmagni á að nýju. Í sveitinni þurfti þá oft
að handmjólka kýrnar og fóðra búfénaðinn við kertaljós eða vasaljósatýru.
Menn gættu vel að því að eiga til birgðir af rafhlöðum í vasaljósin, næg kerti
og gas til upphitunar. Auðvitað urðu þetta yndisstundir með fjölskyldunni
eftir á að hyggja. Það sem helst hefur breyst síðan er að afhending raf-
magns er víðast hvar orðin miklu öruggari þannig að dæmi eru um að ungu
fólki og einkum börnum krossbregður þá sjaldan rafmagnið fer. Þessu litlu
skinn hafa jafnvel sjaldan eða aldrei kynnst því ástandi að ekki sé rafmagn
í híbýlum fólks, götulýsing slokknar og jafnvel kynding hverfur af húsum
þar sem aðrir orkugjafar eru ekki til staðar eða þá að rafmagn knýr heita-
vatnsdælurnar.
Vissulega verðum við háð tækninni og smám saman samofin henni. Þess
vegna þurfum við að hugsa út í að hæglega getur orðið rof hvort sem það
er á afhendingu rafmagns, sjónvarpsútsendingum eða útvarpi, svo ég tali
nú ekki um netið sem háð er bæði rafmagni og því að örbygljusamband sé
til staðar eða straumur á símstöðinni. Af þessu sökum er það hollt öllum að
kynna sér þau öryggisatriði sem eitt sinn voru skrifuð í Símaskránni en nú
er að finna í bæklingum sem almannavarnir hafa gefið út og dreift til heim-
ila. Ef raunveruleg ógn eða náttúruhamfarir steðja að er nefnilega dálítið
seint að byrja að leita uppi slíkar upplýsingar. Þetta er einungis vinsamleg
ábending og alls ekki fram sett til að mála skrattann á vegginn. Mér varð
bara hugsað út í þetta í varnarleysisástandi ritstjórans með svörtu heimasíð-
una í síðustu viku. Það getur allt gerst.
Magnús Magnússon
Leiðari
Í tilkynningu frá Sæferðum á
mánudag kom fram að vegna bilun-
ar í aðalvél Baldurs falla allar ferðir
ferjunnar niður þar til annað verð-
ur tilkynnt. „Viðgerð hefur staðið
yfir frá því í gær og var unnið í alla
nótt. Ekki er ljóst á þessari stundu
hve langt stopp ferjunnar verður,“
sagði í tilkynningunni sem skrifuð
var klukkan 11 á mánudaginn. Sæ-
ferðir mun nota farþegabátinn Sæ-
rúnu eitthvað í fjarveru Baldur og
verður það kynnt nánar á upplýs-
ingasíðu fyrirtækisins; www.saefer-
dir.is þegar betur verður vitað um
umfang bilunarinnar í aðalvél Bald-
urs.
mm
Aðalvél Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs er biluð
Akranesferja Sæferða hefur siglt
sína síðustu ferð milli Akraness og
Reykjavíkur þetta árið. Þetta kemur
fram í tilkynningu á Facebook-síðu
ferjunnar á mánudag. Skipinu sjálfu
verður nú siglt til annarra verkefna
undan ströndum Spánar.
Siglingarnar milli Akraness og
Reykjavíkur hófust um miðjan júní-
mánuð og síðan þá hafa verið farnar
áætlanaferðir þrisvar sinnum á dag,
alla virka daga. Í frétt Skessuhorns
frá því um miðjan síðasta mánuð
kom fram að stefnt væri að því að
halda siglingum áfram eitthvað fram
í desember, eins og hægt væri. Nú
hefur hins vegar verið ákveðið að
hætta siglingum. Undanfarna daga
og vikur hefur þurft að fella niður
fleiri ferðir en áður vegna veðurs.
Áhugi er fyrir því bæði hjá Sæferð-
um og Akraneskaupstað að halda
áfram siglingum næsta sumar, eins
og greint var ítarlega frá í frétt í 42.
tölublaði Skessuhorns um miðj-
an október. Áframhald siglinga er í
skoðun, að því er fram kemur á Fa-
cebook-síðu ferjunnar. „Við þökk-
um öllum þeim góðu farþegum sem
nýttu sér þessa samgönguleið í ár og
sjáumst vonandi aftur með hækk-
andi sól,“ segir í tilkynningunni.
kgk
Akranesferjan hefur
farið síðustu ferð ársins
Á Málræktarþingi 2017, sem fram
fór í Þjóðminjasafninu miðviku-
daginn 15. nóvember síðastlið-
inn, hlaut Grundaskóli á Akranesi
sérstaka viðurkenningu Íslenskrar
málnefndar fyrir árangursríkt starf
tengt kennslu í ritun og vinnu sem
tengist tungumálinu. „Grundaskóli
hlýtur viðurkenningu Íslenskr-
ar málnefndar fyrir markvissa rit-
unarkennslu og eftirbreytniverða
kennsluhætti þar sem ritun nem-
enda er mikilvægur hluti náms
þeirra í hinum ýmsu greinum,“
segir í niðurstöðu málnefndar sem
Guðrún Kvaran veitir forstöðu.
Grundakóli er sagður vekja frum-
kvæði að því að vekja opinbera at-
hygli á því sem vel er gert við með-
ferð íslenskrar tungu.
„Þessi viðurkenning er mikill heið-
ur fyrir starfsfólk skólans og enn ein
rósin í hnappagat öflugs skólastarfs
á Akranesi,“ segir Sigurður Arn-
ar Sigurðsson, skólastjóri Grunda-
skóla, sem veitti viðurkenningunni
viðtöku fyrir hönd skólans.
mm
Grundaskóli hlaut viðurkenningu
íslenskrar málnefndar
Fulltrúar Grundaskóla sem tóku við viðurkenningu Íslenskrar málnefndar.
Föstudaginn 17. nóvember síðast-
liðnn bauð Lionsklúbbur Grundar-
fjarðar íbúum bæjarins upp á ókeyp-
is blóðsykursmælingu rétt fyrir innan
innganginn í Kjörbúðinni. Það vor-
ur sjúkraflutningamenn bæjarins sem
framkvæmdu mælingarnar og fengu
góðar viðtökur. Hátt á annað hundr-
að manns nýttu sér þessa þjónustu
enda gott að vera vakandi yfir ástandi
á eigin líkama. tfk
Lions bauð upp á blóðsykursmælingu
Marinó Ingi Eyþórsson sjúkraflutn-
ingamaður er hér að mæla blóð-
sykurinn hjá Gunnari Ragnarssyni,
verslunarstjóra Kjörbúðarinnar.