Skessuhorn - 22.11.2017, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 20178
Viðbrögð
við náttúru-
hamförum
LANDIÐ: „Í ljósi þess að
ríkislögreglustjóri hefur lýst
yfir óvissustigi almannavarna
vegna vísbendinga um aukna
virkni í Öræfajökli, vill Mat-
vælastofnun minna dýraeig-
endur á að huga að áætlunum
sínum um viðbrögð við nátt-
úruhamförum.
Þar sem náttúruhamfarir gera
oft ekki boð á undan sér, ættu
dýraeigendur að gera áætlan-
ir um skyndileg viðbrögð við
mismunandi vá og undirbúa
aðstæður eftir því sem kost-
ur er, með það að markmiði
að koma í veg fyrir slys og
aðrar þjáningar dýranna. Sér
í lagi á þetta við um aðstæð-
ur sem valda því að eigendur
gætu þurft að yfirgefa dýrin í
skyndi.
Við gerð viðbragðsáætlana
þyrftu eigendur að velta fyrir
sér hvernig þeir telja að dýr-
unum sé best borgið mið-
að við tilteknar aðstæður, svo
sem hættu á flóði, öskufalli,
ofsaveðri o.s.frv. og gera ráð-
stafanir í samræmi við það.
Jafnframt ættu þeir að tryggja
eftir föngum að til staðar sé
nauðsynlegur búnaður fyrir
eigið öryggi og dýranna, sem
og flutningstæki til rýmingar
ef til þess kæmi.
Dýraeigendur þyrftu einnig
að íhuga hvort aðrir geti sinnt
dýrunum ef þeir sjálfir eru
ekki í stakk búnir til þess. Til
að auðvelda björgunarsveit-
um eða öðrum ókunnugum
umhirðu dýranna, ætti hver
og einn dýraeigandi að leitast
við að hafa eftirtaldar upplýs-
ingar uppfærðar og sýnilegar á
staðnum á hverjum tíma:
Nöfn, heimilisföng og 1.
símanúmer þeirra sem
þekkja best til.
Upplýsingar um hvar finna 2.
megi lista yfir dýrin með
númerum og/eða öðrum
einkennum.
Upplýsingar um veikindi 3.
dýra, burði og aðra mikil-
væga þætti.
Upplýsingar um fjölda 4.
dýra og staðsetningu
þeirra í húsum og beitar-
hólfum.
Kort yfir hús og beitar-5.
hólf.
Leiðbeiningar um helstu 6.
verk, s.s. fóðrun og mjalt-
ir.
Upplýsingar um fóður, s.s. 7.
staðsetningu og birgðir.
Upplýsingar um stjórnun 8.
mikilvægs tækjabúnaðar,
s.s. mjalta-, fóður- og loft-
ræstikerfis, vararafstöðvar
o.s.frv.
Einstaklingsmerkingar dýra
eru mikilvægar í þessu sam-
bandi, meðal annars með tilliti
til umönnunar og til að koma
dýrum sem lent hafa á flækingi
til síns heima.“
mm
Ný ráðuneyt-
isstofnun um
félagsþjónustu
LANDIÐ: Stjórnsýsla og
eftirlit með félagsþjónustu
sem veitt er af hálfu sveit-
arfélaga, opinberra stofn-
ana eða á grundvelli samn-
inga verða falin nýrri ráðu-
neytisstofnun sem unnið
er við að koma á fót í vel-
ferðarráðuneytinu. Und-
ir félagsþjónustu sveitarfé-
laga heyrir t.d. ýmis þjón-
usta sem snýr að börnum,
fjölskyldum, fötluðu fólki,
öldruðum og innflytjend-
um. Auglýst hefur ver-
ið eftir stjórnanda stofn-
unarinnar. „Ákvörðun um
að fela þessi verkefni sér-
stakri stofnun byggist á til-
lögum nefndar sem ráð-
herra félagsmála skip-
aði árið 2014 með það að
markmiði að styrkja und-
irstöður heildstæðrar þjón-
ustu ríkis og sveitarfélaga
og skilja með skýrum hætti
á milli stjórnunar- og eftir-
litshlutans annars vegar og
veitingu þjónustunnar hins
vegar,“ segir í tilkynningu
frá ráðuneytinu. Stefnt er
að því að stofnunin taki til
starfa í byrjun næsta árs.
-mm
Heilabrot út af
málverki
Listfræðingar og almenn-
ingur hafa að undanförnu
furðað sig á atriði í gömlu
málverki efitr Ferdinand
Georg Waldmüller. Verk-
ið var málað 1860 og er til
sýnis í Neue Pinakothek
safninu í München í Þýska-
landi. Engu líkara er en
stúlkan á myndinni haldi á
einhverju og segja samsær-
iskenningasmiðir að sjálf-
sögðu sé hún með farsíma
í höndunum og er eins og
nútímafólk með andlitið
grafið ofan í símann.
Eins og fram kom í fréttum síðast-
liðið sumar festi Ísfiskur í Kópa-
vogi kaup á fiskvinnsluhúsum HB
Granda við Bárugötu á Akranesi.
Ráðgert var að flytja alla starfsemi
fyrirtækisins þangað um næstu ára-
mót. Nú liggur hins vegar fyrir að á
því verður seinkun að hluta. „Ísfisk-
ur mun hefja starfsemi á Akranesi
í janúar með um tíu starfsmönn-
um í fyrstu,“ segir Albert Svavars-
son framkvæmdastjóri Ísfisks í sam-
tali við Skessuhorn. „Flutningar
á fyrirtækinu héðan úr Kópavogi,
sem upphaflega stóð til að yrðu í
janúar, frestast þar til næsta sum-
ar. Ástæðan er sú að í janúar átti að
vera rólegur tími hjá fyrirtækinu til
flutninga en nú er ljóst að við get-
um ekki stöðvað framleiðslu vegna
mikilla pantana sem liggur fyrir að
afgreiða á Kínamarkað. Af þeirri
ástæðu munum við flytja alla starf-
semina á Akranes í sumar, líklega í
júní eða júlí. Við munum hinsveg-
ar flytja vinnslulínu sem við eigum
austur á Breiðdalsvík á Akranes og
koma henni fyrir í móttökusalnum
og því byrjar hluti starfseminnar
þar eftir áramót eins og til stóð.“
mm
Flutningi Ísfisks á Akranes
seinkar um nokkra mánuði
Úr vinnslusal Ísfisks í Kópavogi.
Það getur verið kuldalegt við lönd-
un þegar tekur að vetra. Það fengu
starfsmenn Fiskmarkaðar Snæfells-
bæjar að kynnast þegar þeir voru að
landa úr línubátnum Rák GK síð-
astliðinn laugardag.
Afli báta sem róa á línu frá Snæ-
fellsnesi hefur verið góður að und-
anförnu og gott verð hefur feng-
ist fyrir fiskinn á mörkuðum. En
nú er leiðindar veðurspá fyrir alla
þessa viku svo þá halda menn að sér
höndum og nota bræluna til þess
að endurnýja kraftana og hvíla lúin
bein. af
Kalsasamt við löndun
Matvælastofnun hefur síðastlið-
in tvö ár varað við neyslu kræk-
lings úr Hvalfirði. Ástæða viðvör-
unar var sú að DSP þörungaeitur í
skelkjöti hafði greinst yfir viðmið-
unarmörkum og eitraður þörung-
ur sem getur valdið DSP eitrun í
skelfiski hefur verið á sveimi í firð-
inum síðastliðið ár. Var um óvenju-
lega langt tímabil að ræða sem var-
að var við neyslu kræklings af svæð-
inu. Við sýnatöku úr sjó í Hvalfirði
nú í byrjun nóvember var kræklingi
safnað við Fossá. Ekki varð vart við
eitraða þörunga í sjónum. „Þör-
ungaeitur greindist en það var und-
ir þeim viðmiðunarmörkum sem
sett hafa verið. Fólk getur því hald-
ið í fjöru og tínt krækling og gætt
sér á uppskerunni,“ segir í tilkynn-
ingu frá Matvælastofnun.
mm
Kræklingur í Hvalfirði
nú laus við eiturþörung
Hálka eða snjóþekja var í gærmorg-
un á vegum á Vesturlandi en ófært á
Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og
Fróðárheiði. Aðfararnótt þriðju-
dags lentu vegfarendur í vand-
ræðum einkum á Holtavörðuheiði
þar sem fjöldi bíla sat fastur. Mik-
ið óveður geisaði á heiðinni þá um
nóttina og óskaði lögregla eftir því
síðla nætur að björgunarsveitir úr
Húnavatnssýslum og fjórar sveit-
ir af Vesturlandi færu til aðstoð-
ar vegfarendum á heiðinni. Þar var
fólk í nokkrum smábílum í vand-
ræðum eftir að bílar þess festust í
snjó og afleitu skyggni. Að minnsta
kosti sjö flutningabílar festust efst
á heiðinni. Heiðinni var lokað fyr-
ir umferð enda ófært framhjá fjölda
bíla sem skyldir voru eftir þar til
veðrið gekk niður.
mm
Fóru til aðstoðar á Holtavörðuheiði
Fjórar björgunarsveitir frá Akranesi, Borgarnesi og Borgarfirði fóru til aðstoðar á
Holtavörðuheiði ásamt húnvetningum.
Ljósm. úr safni Björgunarsveitarinnar Heiðars af sambærilegum aðstæðum.