Skessuhorn - 22.11.2017, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201714
Hátíðarguðsþjónusta var síðast-
liðinn sunnudag í Ólafsvíkurkirkju
þegar fimmtíu ára afmæli kirkjunnar
var fagnað. Sóknarbörn fjölmenntu
til kirkju en eftir guðsþjónustu var
dagskrá í Klifi. Frú Agnes M Sig-
urðardóttir biskup Íslands prédik-
aði við athöfnina og séra Óskar Ingi
Ingason þjónuðu fyrir altari ásamt
fyrrverandi prestum sóknarinnar og
prófasti sem sáu um lestra og bæn-
ir. Jazztríó skipað þeim Jóni Raf-
nssyni, Kjartani Valdimarssyni og
Þór Breiðfjörð sá um tónlist og söng
ásamt Elenu Makeeva organista,
Veronicu Osterhammer kórstjóra
og einsöngvara, Kór Ingjaldshóls-
kirkju og Kirkjukór Ólafsvíkur. Eftir
athöfnina var boðið til hátíðardag-
skrár í félagsheimilinu Klifi þar sem
Sturla Böðvarsson sagði m.a. frá
byggingu kirkjunnar. Einnig kom
fram við athöfnina í Klifi Barna- og
skólakór Snæfellsbæjar og sáu Val-
entina Kay og Evgeny Makeev um
stjórn.
Kennileiti fyrir bæinn
Ólafsvíkurkirkja setur sterkan svip
á bæinn og vekur form hennar og
byggingarstíll eftirtekt og aðdáun
margra sem þangað koma. Hún er
ein af fyrstu nútímakirkjum landsins
og var strax sátt um hana í söfnuðin-
um. Kirkjan var hönnuð af Hákoni
Hertervig og vígð 19. nóvember
1967. Fyrsta skóflustungan var tekin
1961 af Stefáni Kristjánssyni. Bygg-
ingameistari var Böðvar Bjarnason
frá Böðvarsholti í Staðarsveit.
Sterk tenging
Þegar kirkjan var í byggingu starf-
aði Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í
Stykkishólmi og fv. ráðherra með
föður sínum við framkvæmdina. Við
rifjum hér upp frásögn Sturlu sem
reyndar er síðan fyrir tíu árum þeg-
ar kirkjan varð fjörutíu ára:
„Ég byrjaði að vinna við smíð-
ina með pabba þegar ég var sextán
ára gamall og var við bygginguna
meira og minna á sumrin þar til
henni var lokið, allt frá því að vinna
á loftpressu til þess að setja kross-
inn á turninn og hengja upp altar-
istöfluna. Ólafsvíkurkirkja er flókin
bygging og faðir minn var vakinn og
sofinn yfir þessu verkefni. Ég var að
læra húsasmíði hjá honum á þessum
árum og fór síðar í byggingatækni-
fræði eftir það. Þegar kom að því að
vígja kirkjuna vorum við Hallgerður
Gunnarsdóttir farin að búa. Okkur
þótti tilvalið að standa aðeins upp frá
skólabókunum í Reykjavík, skreppa
vestur og láta gifta okkur og skíra
elsta barn okkar, Gunnar, í leiðinni.
Þannig vildi það til að hjónaband
okkar er jafngamalt kirkjunni. Þessi
dagur, þ.e. 19. nóvember er helg-
ur dagur í okkar fjölskyldu bæði af
þessu og vegna fleiri atburða. Og
svo hefur hjónaband okkar Hall-
gerðar verið gott og farsælt þannig
að yfir öllu þessu er mikil blessun,”
sagði Sturla.
af/mm/ Ljósm. af.
Ólafsvíkurkirkja fimmtíu ára
Gestir fjölmenntu til kirkju á afmælinu.
Aðalsteinn Þorvaldsson prestur í Grundarfirði, Gunnar Eiríkur Hauksson í Stykkishólmi, Friðrík Hjartar
fyrrum sóknarprestur Ólafsvíkurprestakalls og nú prestur í Vídalínskirkju, frú Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands, Óskar Ingi Ingason sóknarprestur í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli, séra Þorbjörn
Hlynur Árnason prófastur á Borg, séra Óskar Hafsteinn Óskarsson fyrrum sóknarprestur Ólafsvíkur-
prestakalls en nú sóknaprestur í Hrunaprestakalli og séra Magnús Magnússon fyrrum sóknarprestur
Ólafsvíkurprestakalls en nú sóknaprestur í Breiðabólsstaðarprestakalli. Á myndina vantar séra
Elínborgu Sturludóttur sóknarprest í Stafholtsprestakalli.
Barnakórinn og kirkjukórinn sem söng.
Biskub Íslands prétikaði við athöfnina. Prestar sem þjónað hafa Ólafsvíkurkirkju. Sturla Böðvarsson framan við Ólafsvíkurkirkju.
Ljósm. úr safni Skessuhorns/þþ.
Rithöfundurinn og fótboltamaðurinn Þorgrímur Þráinsson var
mættur ásamt föður sínum Þráni Þorvaldssyni.
Kirkjukórinn sá um glæsilegar veitingar.Sturla Böðvarsson ásamt fjöldskyldu.