Skessuhorn - 22.11.2017, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2017 17
ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR, FATASKÁPAR & RENNIHURÐIR
HÁGÆÐA DANSKAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
OPIÐ:
ÚRVAL INNRÉTTINGAVIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM VÖNDUÐ GÆÐAVARAGOTT SKIPULAG
Borgarbyggð auglýsir starf byggingarfulltrúa á
umhverfis- og skipulagssviði laust til umsóknar.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í
lifandi umhverfi. Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á
byggingarmálum og hefur eftirlit með
mannvirkjagerð sem fellur undir 1. og 2. mgr. 9.
gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Borgarbyggð auglýsir starf byggingarfulltrúa
laust til umsóknar
Helstu verkefni byggingarfulltrúa eru yfirferð og
afgreiðsla byggingarleyfisumsókna vegna
byggingarleyfisskyldra framkvæmda, stöðuleyfa og
fyrirspurna auk útgáfu byggingarleyfa að uppfylltum
skilyrðum.
Byggingarfulltrúi annast að auki eftirlit með
byggingarframkvæmdum og frágangi þeirra, sem og
umhverfi lóða til samræmis við samþykkt gögn,
skilmála, byggingarreglugerð og lög sem því tengjast.
Hann sinnir einnig öðrum verkefnum sem falla undir
verksvið byggingarfulltrúa og umhverfis- og
skipulagssvið hverju sinni.
BORGARBYGGÐ
[Cite your source here.]
Menntunar- og hæfniskröfur eru háskólamenntun á sviði
byggingarmála með löggildingu í mannvirkjahönnun skv.
25. gr. laga um mannvirki og reynsla á sviði byggingar-
mála og lagaumhverfis þess. Lögð er áhersla á
frumkvæði, skipulagshæfni, fagmennsku og góða
samskiptahæfileika.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi
stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnlaugur Júlíusson
sveitarstjóri í síma 433-7100. Umsóknir ásamt ítarlegri
starfsferilsskrá og kynningarbréfi skulu sendar til
borgarbyggd@borgarbyggd.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Í liðnum mánuði hélt stjórn Há-
skólans á Bifröst stefnumótunar-
fund þangað sem boðið var fulltrúa-
ráði skólans, starfsfólki, nemendum
og fulltrúum aðstandenda skólans.
Góð mæting var á fundinn en hann
sóttu yfir 50. Voru mörg áhugaverð
sjónarmið viðruð og velt upp spurn-
ingum er lúta m.a. að stefnupýra-
mída skólans, Háskólanum á Bifröst
eftir 10 ár, tengingu skólans við at-
vinnulífið, áherslum varðandi náms-
framboð og kennsluhætti, hugsan-
lega sameiningu við aðra háskóla,
staðsetningu skólans, forgangsmál
næstu ára og fleira.
Stjórn Háskólans á Bifröst vinn-
ur nú úr niðurstöðum umræðna sem
urðu á stefnumótunarfundinum en
tekið var saman viðamikið efni um
það sem fram kom og byggt verður
á við áframahaldandi vinnu. Niður-
stöður og ákvarðanir stjórnar há-
skólans verða í kjölfarið birtar með
stefnu skólans fyrir árin 2018 – 2021
en hún verður afgreidd samhliða
rekstraráætlun næsta árs á stjórnar-
fundi háskólans sem fram fer í næstu
viku.
Helstu niðurstöður
stefnumótunarfundar
Umræðurnar sýndu fjölbreytt við-
horf mismunandi hópa og voru þau
meira afgerandi í sumum efnisþátt-
um en öðrum. Í umræðunum kom
meðal annars fram sú sýn fund-
argesta að eftir tíu ár yrði skólinn
rótgróinn, alþjóðlegur háskóli með
skýra stefnumörkun á sérstaklega
tilgreindum sviðum og sterka fag-
lega tengingu við íslenska náttúru
og menningu. Sefnupýramídi há-
skólans verður endurskoðaður með
tilliti til niðurstaðna stefnumótunar-
vinnunnar. Ljóst er af niðurstöðun-
um að hann mun verða uppbyggður
með líkum hætti og áður.
Fram kom það viðhorf að almennt
yrði lögð áhersla á fjarnám við Há-
skólann á Bifröst og skólanum
mörkuð sérstaða og forysta á þeim
grunni. Á sama tíma skal stuðla að
uppbyggingu á svæðinu og styrkja
stöðu Bifrastar sem búsetukosts.
Skoðanir þátttakenda voru mis-
jafnar þegar spurt var um samein-
ingu háskólans við aðrar stofnanir.
Almenn skoðun þátttakenda var sú
að aðstandendur háskólans ættu að
vera opnir fyrir hugmyndum er lúta
að sameiningu háskólans og auknu
samstarfi. Einnig að brýnt sé að
undirbúa vel faglega greiningu áður
en ákvarðanir eru teknar í þeim efn-
um.
Varðandi staðsetningu skólans þá
komu fram tvær andstæðar skoð-
anir. Mikil áhersla var lögð á stað-
setningu skólans á Bifröst og talið
að sérstaða skólans felist m.a. í þeirri
staðsetningu. Einnig að horfa verði
á staðsetninguna í stærra samhengi
til framtíðar og í ljósi möguleika til
samvinnu við aðra skóla og stofn-
anir.
Fundargestir voru að mestu sam-
mála um að Háskólinn Bifröst skyldi
sækja fram á alþjóðlegum vettvangi
og hafa námið aðgengilegt jafnt á
ensku sem íslensku. Þá skulu verk-
efni er lúta að alþjóðavæðingu og
stefnumörkun í þeim efnum vera
vandlega undirbúin og fjárhagslega
sjálfstæð.
Mörgum hugmyndum var velt
upp um hvernig tengja mætti nám-
ið og háskólann betur við fyrirtæki
og atvinnulífið. Sérstaða Háskólans
á Bifröst hefur alltaf verið samofin
forystu og stjórnun og þannig tengst
viðskiptalífinu. Enginn vafi er á því
að þetta sé sérstaða skólans.
Nánari upplýsingar um stefnu-
mótunarfundinn, myndir og mynd-
bönd má finna á vef skólans.
mm/byggt á fréttabréfi.
Stefnumótunar-
fundur var haldinn í
Háskólanum á Bifröst