Skessuhorn - 22.11.2017, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2017 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímur tók á móti Vestra í
toppslag 1. deildar karla í körfu-
knattleik í gærkvöldi. Fyrir leikinn
var Skallagrímur í öðru sæti en Vestri
í því þriðja. Borgnesingar biðu leiks-
ins með nokkurri eftirvæntingu því
Aaron Parks, nýr erlendur leikmað-
ur liðsins, lék þarna sinn fyrsta leik
með Skallagrími. Leikurinn var fjör-
ugur og spennandi en lauk að lokum
með sigri Skallagríms, 106-96.
Vestramenn byrjuðu í svæðis-
vörn og gerðu skyttum Skallagríms
erfitt fyrir í upphafi leiks. Borgnes-
ingar höfðu þó heldur yfirhönd-
ina fyrstu mínúturnar. En gestirnir
gáfu ekkert eftir, voru öflugir und-
ir körfunni og komust yfir seint
í fyrsta leikhluta. Leikurinn var í
járnum og gestirnir leiddu með að-
eins einu stigi að loknum upphafs-
fjórðungnum, 22-23. Vestramenn
voru mjög sterkir í öðrum leikhluta,
komu boltanum inn að körfunni og
snemma annars fjórðungs voru þeir
komnir ellefu stigum yfir. Skalla-
grímsmenn reyndu að spyrna við
fótum en varð lítt ágengt fyrr en líða
tók nær hálfleik. Með góðum spretti
síðustu mínúturnar tókst þeim að
minnka muninn í þrjú stig áður en
hálfleiksflautan gall, 49-52.
Mikið jafnræði var með liðunum
fyrst eftir hléið og hverri körfu var
svarað. Það var síðan um miðjan
þriðja leikhluta sem Skallagrímur
náði yfirhöndinni í leiknum og tíu
stiga forskoti fyrir lokafjórðunginn,
75-65. Skallagrímsmenn voru áfram
sterkari í fjórða leikhluta og mikil
stemning í liðinu. Mest náðu þeir 15
stiga forskoti um miðjan fjórðung-
inn en það sem eftir lifði leiks gættu
þeir þess að gefa engin færi á sér og
sigldu að lokum heim tíu stiga sigri,
106-96.
Eyjó með þrennu
Eyjólfur Ásberg Halldórsson var
atkvæðamestur Skallagrímsmanna
og setti upp huggulega þrennu.
Hann skoraði 22 stig, tók 14 frá-
köst og gaf 10 stoðsendingar. Aar-
on Parks átti skínandi fínan leik í
frumraun sinni með Borgarnes-
liðinu, skoraði 21 stig, tók 7 frá-
köst og gaf 8 stoðsendingar. Davíð
Guðmundssno skoraði 20 stig og
reynsluboltinn Darrel Flake skor-
aði 15 stig og tók 6 fráköst. Flake
var einkar nægjusamur í leiknum,
tók sex skot utan af velli og hitti úr
þeim öllum.
Hinn reyndi Nebojsa Knezevic
var yfirburðamaður í liði Vestra.
Hann átti stórleik, skoraði 37 stig
og tók 12 fráköst en næstur hon-
um kom Ingimar Aron Baldursson
með 17 stig.
Með sigrinum tylltu Skalla-
grímsmenn sér á topp deildarinnar
með 14 stig eftir átta leiki og eru
tveimur stigum á undan Breiðabliki
í sætinu fyrir neðan. Næsti leikur
Skallagríms verður leikinn á morg-
un, fimmtudaginn 23. nóvember,
þegar liðið tekur á móti FSu.
kgk
Skallagrímur sigraði Vestra í fjörugum leik
Eyjólfur Ásberg Halldórsson setti upp huggulega þrennu í leiknum. Aaron Parks lék vel í sínum fyrsta leik fyrir Skallagrím.
Meistaraflokksráð karla hjá Körfu-
knattleiksdeild Skallagríms hefur
ákveðið, í samráði við þjálfara liðs-
ins, að segja upp leikmannasamn-
ingi við Bandaríkjamanninn Zac
Carter sem leikið hefur með liðinu
í 1. deildinni frá upphafi tímabils.
Í fréttatilkynningu frá kkd. Skalla-
gríms eru Zac þökkuð vel unnin
störf. Jafnframt er greint frá því að
mat stjórnar og þjálfara hafi verið
að liðið þyrfti á annars konar leik-
manni að halda, sem leyst gæti fleiri
stöður á vellinum bæði varnar- og
sóknarlega í þeirri baráttu sem
framundan er við að tryggja Skalla-
grími að nýju sæti í deild þeirra
bestu.
Skallagrímur hefur því samið við
nýjan leikmann, Bandaríkjamann-
inn Aaron Parks. Hann leikur stöðu
skotbakvarðar, en hefur einnig leik-
ið sem leikstjórnandi. Aaron er 191
cm á hæð og 95 kg að þyngd. Hann
er fæddur árið 1994 og útskrifað-
ist frá CSUN háskólanum í Banda-
ríkjunum síðastliðið vor. Hann lék
með liði háskólans í hinni sterku
Big West deild í 1. deild háskóla-
boltans þar ytra. Á síðasta tíma-
bili sínu var hann með 11,4 stig
að meðaltali í leik, tók 4,7 fráköst
gaf 2,4 stoðsendingar og 1,7 stolna
bolta. „Aaron er jafnframt góður
varnarmaður sem mun hjálpa lið-
inu mikið á þeim enda vallarins. Er
Aaron boðinn velkominn í Borg-
arnesið fagra,“ segir í tilkynningu
kkd. Skallagríms. kgk
Körfuknattleiksfélag ÍA hefur sam-
ið við nýjan erlendan leikmann eft-
ir að Derek Shouse, sem leikið hef-
ur með liðinu í 1. deild karla síðan í
fyrra, þurfti að yfirgefa félagið vegna
slæmra meiðsla. Leikmaðurinn sem
kemur til með að fylla hans skarð er
Bandaríkjamaðurinn Marcus Levi
Dewberry. Hann útskrifaðist frá Sa-
int Leo háskólanum í Flórída síðast-
liðið vor. Á síðasta ári var hann með
20,5 stig, 4,8 stoðsendingar og 5,1
frákast að meðaltali í leik með liði
skólans sem skilaði honum sæti í úr-
valsliði deildarinnar.
„Við hjá ÍA erum mjög spenntir
fyrir komu Marcusar til liðsins og
bindum miklar vonir við kappann,
sem er sömuleiðis mjög spenntur
að spila fyrir ÍA,“ segir í tilkynningu
Körfuknattleiksfélags ÍA. kgk
ÍA semur við nýjan Bandaríkjamann
Marcus Levi Dewberry í leik með liði Saint Leo háskólans.
Skallagrímur skiptir um Kana
Aaron Parks í leik með liði CSUN háskólans í bandaríska háskólaboltanum.
Skagamenn tóku á móti FSu í
botnslag 1. deildar karla í körfu-
knattleik á föstudagskvöld.
Liðin hafa átt erfitt uppdráttar
í upphafi móts og voru án stiga í
tveimur neðstu sætunum fyrir leik-
inn. Svo fór að lokum að FSu hafði
sigur eftir jafnan leik, 80-87.
Mikið jafnræði var með liðunum
í upphafi leiks en heilt yfir höfðu
Skagamenn heldur yfirhöndina í
fyrsta leikhluta. ÍA leiddi með einu
stigi að upphafsfjórðungnum lokn-
um, 22-21. Liðin skiptust á að leiða
í öðrum leikhluta og köstuðu for-
ystunni á milli sín framan af leik-
hlutanum. Þegar þrjár mínútur
voru til hálfleiks var staðan jöfn,
33-33, en með smá rispu undir
lok fyrri hálfleiks náðu gestirnir að
fara með þriggja stiga forskot inn í
hléið, 38-41.
Skagamenn mættu ákveðnir til
síðari hálfleiks og náðu forystunni
eftir þrjár mínútur í þriðja leik-
hluta, 50-48 og eftir það var leik-
urinn í járnum. FSu komst yfir að
nýju og hafði síðan eins stigs for-
ystu fyrir lokafjórðunginn, 65-66.
Skagamenn komust fjórum stig-
um yfir snemma í fjórða leikhluta,
70-66 en gestirnir tóku forystuna að
nýju skömmu síðar. Leikurinn var
jafn um miðjan lokafjórðunginn en
það var þá sem gestirnir í FSu fóru
að síga fram úr. Þeir virtust einfald-
lega eiga meira eftir á tanknum og
höfðu sjö stiga sigur, 80-87.
Marcus Dewberry lék vel í frum-
raun sinni með Skagamönnum.
Hann skoraði 25 stig, tók sex frá-
köst og gaf sex stoðsendingar. Ár-
mann Örn Vilbergsson var með 15
stig og fimm fráköst og Jón Orri
Kristjánsson var með ellefu stig og
ellefu fráköst.
Charles Speelman var stigahæst-
ur gestanna með 26 stig, Hlynur
Hreinsson var með 17 stig og fimm
fráköst og Ari Gylfason með 15
stig.
Eftir leikinn sitja Skagamenn ein-
ir eftir á botni deildarinnar án stiga.
Tvö stig eru í FSu í sætinu fyr-
ir ofan en Skagamenn eiga þó leik
til góða á Selfyssinga. Næsti leikur
ÍA er gegn Fjölni föstudaginn 24.
nóvember. Hann fer fram í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi.
kgk
Skagamenn einir
á botni deildarinnar
Marcus Dewberry þreytti frumraun sína með ÍA á föstudag og átti prýðilegan leik.
Ljósm. jho.