Skessuhorn - 07.02.2018, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 7. febRúAR 2018 21
Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns íþróttamannvirkja.
Íþróttamannvirki á Akranesi eru Bjarnalaug, íþróttahúsið við Vesturgötu, íþróttahúsið á
Jaðarsbökkum, sundlaugin Jaðarsbökkum, Akraneshöll og grasvellir.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2018. Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður
Janusdóttir sviðsstjóri, skoliogfristund@akranes.is
Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar. Umsóknum fylgi ítarleg starfsferil-
skrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi til starfsins.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með
sjö þúsund íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða
þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð í
stjórnsýslunni.
Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæðni,
metnaður og víðsýni.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi
íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar
• Rekstur og dagleg stjórnun íþrótta-
mannvirkja
• Stjórnun starfsmannamála og ábyrgð á
framkvæmd starfsmannastefnu
• Stefnumótun og gerð starfs- og
fjárhagsáætlana
• Náið samstarf við Íþróttabandalag
Akraness, skólasamfélagið og aðra sem
sinna tómstundamálum
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun eða önnur menntun sem
nýtist í starfi
• Víðtæk þekking á málaflokknum
• Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg
• Leiðtogahæfni og góð samskiptahæfni
• Faglegur metnaður
• Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulags-
hæfileikar og frumkvæði
Starf forstöðumanns
íþróttamannvirkja á Akranesi
Brewbuddy sendir þeim allar upp-
lýsingar um stöðu gerjunarinnar beint
í app í símanum þeirra.
Bjarki fylgist með gerjuninni. Gerjun á upphafsstigi.
Tankarnir sem eru notaðir við gerjunina. Sá hægra megin er gamall mjólkur-
tankur.
Fyllstu varúðar er gætt þegar kemur að hreinlæti við bruggunina til að koma í veg
fyrir að bjórinn misheppnist.
Vífill og Bjarki að hefja bruggun á Katanesdýrinu.