Skessuhorn


Skessuhorn - 07.02.2018, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 07.02.2018, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 7. febRúAR 2018 23 Nauðsynlegt þykir að ráðast í um- fangsmikla uppbyggingu íbúðarhús- næðis um allt land. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri ályktun stjórnar Íbúðalánasjóðs, en stjórnin fundaði á Sauðárkróki í síðustu viku ásamt Ásmundi einari Daðasyni félagsmálaráðherra. Tilefni fund- arins var opnun nýs húsnæðisbóta- sviðs Íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki sem varð til með yfirtöku sjóðsins á útgreiðslum húsnæðisbóta. Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti einnig að grípa til aðgerða til að bæta stöðu leigjenda sem rannsóknir sýna að búa við mun hærri húsnæðiskostnað en aðrir hópar í samfélaginu. Ákvörðun Íbúðalánasjóðs um að grípa til aðgerða, vegna langr- ar stöðnunar í húsnæðisuppbygg- ingu á landsbyggðinni, er í takti við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinn- ar. Í húsnæðiskafla sáttmálans segir að; „öruggt húsnæði, óháð efnahag og búsetu, er ein af grundvallarfor- sendum öflugs samfélags“. Sjóður- inn skoðar nú þær leiðir sem eru færar til að bregðast við skorti á ný- byggingum á landsbyggðinni. Meðal þess sem er til skoðunar er að taka upp sömu úrræði hér á landi og eru til staðar fyrir framkvæmdaaðila á strjálbýlum svæðum í nágranna- löndum okkar varðandi fjármögn- un bygginga. Lögð verður áherslu á að vinnan skili árangri sem fyrst og verði í formi raunhæfra tillagna sem félagsmálaráðherra og ríkisstjórn geti tekið afstöðu til. Vaxandi þörf á landsbyggðinni Nýframkvæmdir á húsnæðismarkaði hafa síðustu ár að mestu einskorð- ast við suðvesturhornið en grein- ing Íbúðalánasjóðs bendir til að mikil þörf sé á uppbyggingu hent- ugs íbúðarhúsnæðis á ýmsum þétt- býlissvæðum allt í kringum landið. Þörfin fyrir nýtt húsnæði er meðal annars vegna fólksfjölgunar í kjöl- far aukinna atvinnutækifæra. Þá er oft eina lausa húsnæðið í boði fyrir nýja íbúa illa farið eða húsnæði sem uppfyllir á ýmsan hátt ekki kröfur nútímans. Hækkun fasteignaverðs sem valdið hefur fyrstu kaupendum á höfuðborgarsvæðinu vandræðum er ekki stórt vandamál á landsbyggð- inni heldur sú staðreynd að lítil sem engin uppbygging hefur átt sér stað. Þegar tölur um byggingu íbúða fyr- ir og eftir hrun eru skoðaðar sést að fyrir hrun fylgdist þróun húsnæðis- uppbyggingar á landinu öllu hlut- fallslega að. en eftir hrun er nær öll uppbyggingin á suðvesturhorninu. Þjóðfélagslega hagkvæmt Haukur Ingibergsson, formað- ur stjórnar Íbúðalánasjóðs, segir að bætt staða fólks á leigumarkaði og örvun nýbygginga á landsbyggðinni séu hvor tveggja stór verkefni. „Að- gangur að viðunandi húsnæði er lyk- ilatriði til að okkur vegni vel sem ein- staklingum, sem fjölskyldum og sem samfélagi í heild. Undanfarin áratug hefur nær ekkert nýtt húsnæði verið byggt á mörgum stöðum á landinu og skýringarnar á því eru ekki full- nægjandi. Lánastofnanir hafa ver- ið tregar til að veita lán til margra staða utan höfuðborgarsvæðisins og byggingaaðilar eru þar ekki held- ur á hverju strái. Við höfum ákveð- ið að bregðast við þessu. Það þýðir ekki að við ætlum að finna upp hjól- ið. Husbanken í Noregi, sem er þar- lend systurstofnun Íbúðalánasjóðs, hefur fjármagnað og stutt við hús- næðisuppbygginu meðfram strönd- um Noregs og í dreifbýlinu þar um árabil. Hann hefur þrátt fyrir það ekki orðið fyrir alvarlegum útlána- töpum enda getur þolinmóður lán- veitandi leyft sér að velja fleiri mark- aði en þá sem þykja mest spennandi hverju sinni. Það er þjóðfélagslega hagkvæmt að fólk búi í viðunandi húsnæði. Við sjáum að fjölmörg öfl- ug fyrirtæki vítt og breitt um landið í iðnaði, sjávarútvegi og ferðaþjón- ustu kalla eftir að byggt sé húsnæði fyrir þeirra fólk. Íbúðalánasjóður hefur þá ábyrgð að framfylgja hús- næðisstefnu stjórnvalda og það er al- veg morgunljóst að það verður ekki lengur unað við þetta stöðnunarást- and,“ segir Haukur Ingibergsson. Ráðherra segir markað- söflin bregðast Ásmundur einar Daðason, félags- málaráðherra: „Landsbyggðin hef- ur því miður allt of lengi setið eftir í úrræðum stjórnvalda. Það er nauð- synlegt að fara í aðgerðir til þess að tryggja betur húsnæðisöryggi lands- manna, óháð búsetu. Við getum ekki látið það viðgangast að fólki mæti húsnæðisskortur og oft á tíðum val um annars flokks húsnæði þegar það flyst út á land, því það er oft eina húsnæðið sem er laust. Þetta er óvið- unandi og skekkir enn frekar sam- keppnisstöðu minni sveitarfélaga. Húsnæði er grunnþörf og að sjálf- sögðu þarf að byggja nýtt húsnæði og ráðast í endurbætur á fleiri stöð- um en suðvesturhorninu. Atvinnu- lífið á landsbyggðinni er afar þrótt- mikið um þessar mundir. Ég tel að fólki sem hefur svigrúm til að greiða af húsnæði, þurfi að standa til boða að fá húsnæðislán eða fá almennilegt leiguhúsnæði. Það er kýrskýrt að þarna eru markaðsöflin að bregðast og þá verðum við að mæta því. fólk verður að hafa aðgang að húsnæði. Það liggur í augum uppi,“ segir Ás- mundur einar Daðason félagsmála- ráðherra. mm Íbúðalánasjóður hyggst setja landsbyggðina á oddinn Stjórn Íbúðalánasjóðs fundaði á Sauðárkróki ásamt félagsmálaráðherra. Hér sést hvernig uppbygging íbúða skiptist milli landshluta síðustu 18 ár. Þarna sést glöggt að hlutfallslega hefur mikið meira verið byggt af íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Um og yfir 80% íbúðarhúsnæðis sem byggt hefur verið á síðustu fimm árum er á höfuðborgarsvæðinu. eins og greint var frá í síðasta tölublaði var haldið upp á fjöru- tíu ára afmæli Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, föstudag- inn 2. febrúar. Um miðjan daginn var gestum og gangandi boð- ið í heimsókn til skrafs og skemmtunar auk þess sem boðið var upp á hressingu. Síðar um kvöldið var síðan fjölmenn afmæl- isveisla fyrir íbúa og starfsfólk. Ljósmyndari Skessuhorns kom við um nónbil á föstudaginn og tók meðfylgjandi myndir. Þar var margt um manninn og létt yfir gestum, starfsfólki og íbúum á Höfða. Myndirnar fá að tala sínu máli. mm Margt um manninn í afmæli Höfða

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.