Skessuhorn - 14.02.2018, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 14. FEbRúAR 201810
Framkvæmdir við Urðarfells-
virkjun í landi Húsafells í borga-
firði eru á lokametrunum og fram-
leiðsla raforku inn á dreifikerf-
ið hefst snemma í næsta mánuði
ef allt gengur að óskum. „Virkj-
unin er nánast tilbúin og bíð-
ur prufukeyrslu,“ segir bergþór
Kristleifsson á Húsafelli í sam-
tali við Skessuhorn. „Stíflan er til-
búin, vatn er komið á leiðsluna,
búið er að tengja allt rafmagn og
ganga frá öllu slíku. Nú á bara eft-
ir að prufukeyra virkjunina,“ seg-
ir hann. „Hingað eru væntanleg-
ir Austurríkismenn frá fyrirtækinu
sem seldi okkur vélarnar í virkj-
unina. Þeir koma á mánudaginn,
19. febrúar og ætla að gefa sér
hálfan mánuð rétt rúmlega til að
prufukeyra virkjunina. Þeir munu
gera prófanir á skynjurum, hita-
mælum og öllu slíku og yfirfara
alla víra. Það verður því snemma
í mars sem hægt verður að byrja
að keyra virkjunina og hefja fram-
leiðslu inn á kerfið, ef allt gengur
að óskum,“ segir bergþór ánægð-
ur.
Fjórða kynslóðin
virkjar
Inntaksmannvirki virkjunarinnar
er í 370 metra hæð yfir sjávarmáli,
við Urðarfell og þaðan fær virkj-
unin nafn sitt. Um fallvatnsvirkj-
un er að ræða þar sem lindarvatni
er veitt í gegnum rör, niður fjalls-
hlíðina að stöðvarhúsi í Reyðar-
fellsskógi. Þar knýr vatnsaflið Pel-
ton vél sem framleiðir orkuna.
Fallið er 275 metrar og virkjunin
á að geta skilað allt að 1100 kW
af raforku.
Urðarfellsvirkjun er fjórða
virkjunin á Húsafelli og rafmagns-
framleiðsla þar á sér nokkuð langa
sögu. Elstu virkjunina byggði Þor-
steinn Þorsteinsson, afi bergþórs,
árið 1948 og faðir hans, Krist-
leifur Þorsteinsson, virkjaði næst
árið 1978. Sjálfur reisti bergþór
þriðju virkjunina árið 2003 og nú
hefur fjórða kynslóðin tekið til við
að beisla vatnsorkuna því Arnar,
sonur bergþórs, hefur unnið náið
með föður sínum við gerð Urðar-
fellsvirkjunar. „Arnar er verkfræð-
ingur að mennt og hafði yfirum-
sjón með framkvæmdunum, sá um
alla forhönnun, útboð vélbúnaðar
og fleira,“ segir bergþór.
Framkvæmdir
gengið vel
Framkvæmdirnar hófust síðasta
vor með vegagerð upp að Urð-
arfelli og síðan var hafist handa
við aðra framkvæmdaþætti. berg-
þór segir að heilt yfir hafi verkið
gengið mjög vel. „Það hefur geng-
ið mjög vel allan tímann, með ör-
fáum undantekningum eins og
gengur og gerist. En nú er svo
komið að með hverjum deginum
stórminnka líkur á því að eitthvað
komi upp á. búið er að þrýstiprófa
leiðslurnar, allar lagnirnar í stífl-
unni hafa verið prófaðar, ljósleið-
ari og rafmagn hefur verið tengt.
Síðan á eftir að fara í smá frágang
þegar vorar, loka námum þar sem
við höfum sótt efni, ganga end-
anlega frá í kringum stöðvarhús-
ið og fleira í þeim dúr. Sumarið
reyndist okkur sérstaklega gott og
þó nokkrir kaflar í vetur hafi ver-
ið erfiðir þá tókst þetta nú samt,“
segir bergþór.
„Þetta er búið að vera nokkuð
viðamikið verkefni og við erum
ánægðir hvernig til hefur tekist,“
segir hann. bergþór segir að þar sé
ekki síst að þakka dyggri aðstoð og
vel unnum störfum sveitunga hans
sem hafa unnið að virkjuninni.
„Þetta eru verktakar úr Reyk-
holtsdal sem unnu að inntaks-
mannvirkinu og stöðvarhúsinu,
en húsið sjálft var forsteypt hjá
Loftorku í borgarnesi. Að öllum
framkvæmdum hafa komið öfl-
ugir verktakar úr sveitinni. Þetta
eru þeir Gunnar Konráðsson í
Túni, Einar Steinþór Traustason
og hans menn, Elmar Snorrason,
Arnar Gíslason rafvirki á Hvann-
eyri og hans menn. birkir Þór
Guðmundsson, sem er umboðs-
maður Global Hydro, hefur unn-
ið hörðum höndum að þessu með
okkur og Leó Jóhannsson, raf-
magnsverkfræðingur hjá Engó, sá
um að tengja vélbúnaðinn. Hon-
um til halds og trausts hafði hann
Hilmar Hallvarðsson, rafvirkja og
oddvita í Helgafellssveit.“
kgk/ Ljósm. Bergþór Kristleifsson.
Urðarfellsvirkjun verður gangsett í byrjun mars
Framundan eru lokaprófanir áður en rafmagnsframleiðsla hefst
Lónið við inntaksmannvirki Urðarfellsvirkjunar.
Einar Steinþór Traustason og Þorsteinn Bjarki Pétursson að koma rörinu fyrir. Menn að störfum við inntaksmannvirkið.
Verið að koma fyrir tækjabúnaði í stöðvarhúsinu í Reyðarfellsskógi.Rörin sem vatninu er veitt í gegnum og inn í stöðvarhúsið bíða uppsetningar.