Skessuhorn - 14.02.2018, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. FEbRúAR 2018 13
Fiskmarkaður Vestfjarða
Velkomin vestur
Lækkuð gjaldskrá - 2% söluprósenta
Samkeppni um einkennis-
merki, „lógó“, fyrir
Hestamannafélagið
Borgfirðing
Hestamannafélagið Borgfirðingur, sem varð til nú í
janúar með samruna hestamannafélaganna Faxa og
Skugga, efnir til samkeppni um merki félagsins. Verður
það notað á kynningarefni félagsins, heimasíður,
bréfsefni, fána, félagsbúning og flögg.
Tillögu að merki skal skila á jpg formi eða sambærilegu,
tilbúnu til nota á vefsíðum. Merkið verður eign félagsins.
Stjórn félagsins, sem jafnframt er dómnefnd, áskilur
sér rétt til að útfæra vinningstillöguna í samvinnu
við hönnuðinn. Enn fremur er áskilinn réttur til að
hafna öllum innsendum tillögum.
Tillögur að merki sendist sem jpg skrá til UMSB,
á netfangið umsb@umsb.is fyrir 9. mars nk. Tillögur
verða lagðar útprentaðar, nafnlaust, fyrir dómnefnd og
hlýtur sigurvegari keppninnar kr. 50.000 í verðlaun.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Sem kunnugt er bilaði aðalvél
breiðarfjarðarferjunnar baldurs
undir lok nóvembermánaðar. bil-
unin reyndist alvarlegri en talið
var í fyrstu og af þeim sökum lágu
ferðir niðri þar til 23. janúar. Þá var
farin prufusigling að morgni dags
og baldur hóf síðar siglingar sam-
kvæmt áætlun síðdegis sama dag.
Að sögn Nadine Walter, markaðs-
og sölustjóra Sæferða, hafa sigl-
ingar baldurs gengið að áfallalaust
síðan þær hófust að nýju eftir við-
gerðina. „Það hefur gengið ágæt-
lega, bílaumferðin er góð en það
mættu alltaf vera fleiri farþegar.
Ferjan er í flottu standi núna og
allt gengið vel síðan við byrjuðum
að sigla aftur,“ segir Nadine í sam-
tali við Skessuhorn.
Á meðan gert var við vél bald-
urs voru gerðar ýmsar endurbæt-
ur á ferjunni að innan. „Við gerð-
um það sem við gátum gert til að
gera bátinn meira aðlaðandi fyrir
farþegana. Skipt var um ofna og
skipt um tæki á farþegaklósettum
og gólfin dúklögð, auk þess sem
gangarnir voru dúklagðir, ný teppi
keypt og fleiri á leiðinni. Einnig
voru veggir málaðir,“ segir hún.
Nú siglir baldur samkvæmt
áætlun eina ferð á dag alla daga
nema laugardaga og svo eru farnar
tvær ferðir á föstudögum. „Þetta
er tilraunaverkefni sem innanrík-
isráðuneytið og Vegagerðin fengu
okkur í að prufa. Núna er áætlað
að baldur fari tvær ferðir á föstu-
dögum til 23. febrúar. Eftir það
verður skoðað hvernig gengið
hefur og tekin ákvörðun um fram-
haldið,“ segir Nadine Walter að
endingu.
kgk
Gengið vel síðan Baldur
hóf siglingar að nýju
Breiðafjarðarferjan Baldur hóf siglingar að nýju eftir vélarviðgerð 23. janúar, þegar þessi mynd var tekin. Ljósm. sá.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is