Skessuhorn - 21.02.2018, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 2018 21
WEST ICELAND
Travel
Ferðast um Vesturland 2018-2019
Fr
ee
Co
pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is
Kynning á ferðablaðinu
Travel West Iceland 2018-2019
Útgáfuþjónusta Skessuhorns mun vorið 2018 gefa út
árlegt Ferðablað um Vesturland. Blaðið verður á ensku
og íslensku og ber nafnið Travel West Iceland 2018-2019.
Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlis-
stöðum á Vesturlandi prýða blaðið og auglýsendur
verða númeraðir inn á kortin. Lögð verður áhersla á að
auglýsendur noti alþjóðleg ferðaþjónustumerki í auglýs-
ingum.
Dreifing og form
Blaðið verður gefið út í 60.000 eintökum. Helstu dreif-
ingarstaðir nú verða á höfuðborgarsvæðinu, upplýsinga-
miðstöðvum um land allt, aðkomuleiðum ferðamanna í
landshlutann og síðast en ekki síst helstu áningar- og
ferðamannastaðir á Vesturlandi sjálfu. Lager af blaðinu
verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vesturlands
í Borgarnesi. Loks verður blaðið í aðgengilegu formi á
www.skessuhorn.is þaðan sem ferðaþjónustuaðilar
geta hvenær sem er hlaðið því niður og sent viðskiptavinum
sínum.
Blaðið verður litprentað í A5 broti og 120-160 blaðsíður.
Efnistök
Í blaðinu má m.a. lesa almennan kafla um Vesturland,
áhugaverðar héraðslýsingar fyrir Akranes, Hvalfjörð og
Kjós, Borgarfjörð, Snæfellsnes, Dali og Reykhóla á ensku
og íslensku auk ábendinga um markverða viðkomustaði,
náttúruundur og Vesturland að vetri. Loks verður við-
burðaskrá og sérstök þjónustuskrá fyrirtækja í ferðatengdri
starfsemi sem kynna sig og auglýsa í blaðinu.
Auglýsingasala og þjónustuskráning
Panta þarf auglýsingapláss og þjónustuskráningar tímanlega
eða í síðasta lagi fyrir 16. mars 2018. Auglýsingaverð eru
óbreytt frá síðustu tveimur árum. Um sölu auglýsinga og
skráningu þjónustuskrár sjá þær Ása og Halla í síma
433-5515 eða á netfangið ferdablad@skessuhorn.is.
Auglýsendum standa til boða fjölbreyttir kostir:
Heilsíðuauglýsing: Stærð: 128x190 mm.
Verð kr. 231.000 en með vsk. kr. 286.440.
Hálfsíðuauglýsing: Stærð: 128x93 mm eða 61.8x190 mm.
Verð kr. 123.200 en með vsk. kr. 152.768.
1/4 síða: Stærð: 61.8x93 mm.
Verð kr. 66.000, en með vsk. kr. 81.840.
1/8 síða: Stærð: 61.8x45 mm.
Verð kr. 35.200, en með vsk. kr. 43.648.
Skráning í þjónustuskrá blaðsins kostar 18.000 kr. en
með vsk. kr. 22.320. Athugið að líkt og undanfarin ár verða
einungis skráðar upplýsingar í þjónustuskrá blaðsins um
þau fyrirtæki sem þess óska og greiða fyrir. Í skráningunni
kemur fram nafn fyrirtækis, heimili, sími, netfang og vef-
fang auk helstu þjónustuþátta. Þeir sem kaupa 1/4 auglýs-
ingu í blaðinu eða stærri, fá fría skráningu í þjónustuskrá
sem kaupauka. Hægt er að kaupa umfjallanir að hluta eða
öllu leyti í stað auglýsinga. Panta þarf slíkt tímanlega.
Athygli er vakin á því að Markaðsstofa Vesturlands mun
á þessu ári ekki gefa út bæklinginn West Iceland - The
Official Tourist Guide.
Við hlökkum til góðs samstarfs sem fyrr við ferðaþjónustu-
fyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vesturlandi.
Starfsfólk Skessuhorns
Sími 433-5500
1/1
1/2 1/4
1/8
Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg heilsárs- og sumarstörf við
ferðaþjónustu hjá fyrirtækinu. Á Húsafelli er hótel, veitingastaður, bistró, verslun,
sundlaug, tjaldsvæði, golfvöllur, afþreyingar- og upplýsingamiðstöð og sumarhúsabyggð.
Við leitum að öflugu fólki sem brosir, hefur ríka þjónustulund og er sveigjanlegt ásamt því
að hafa haldbæra reynslu af þjónustustörfum og menntun sem nýtist í starfi.
Heilsársstörf
· Næturverðir
Sumarstörf
· Tjaldverðir · Sundlaugarverðir · Golfvallarstarfsmenn
· Móttökustarfsmaður · Gönguleiðsögumaður
Óskum eftir fólki í eftirfarandi störf:
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá með meðmælum og mynd á netfangið: starf@husafell.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2018.
Kostur ef starfsmenn geta sinnt fleiri en einu af
ofangreindum störfum. Húsnæði í boði fyrir rétta aðila.
HÚSAFELL RESORT
AUGLÝSIR EFTIR KRAFTMIKLU
FÓLKI TIL STARFA
RESORT
Tr el
Ferðast u est rl
Fr
ee
Co
pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is
Travel W
EST ICELA
N
D
- Ferðast um
Vesturland 2018-2019 - Your guide to W
est Iceland