Skessuhorn


Skessuhorn - 21.02.2018, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 21.02.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 201824 Hugleiðingar eru margþættar svo það verður vaðið úr einu í annað. „Djöfulsins skítaveður er þetta alltaf hreint” hugsa ég við lestur frétta um lægðaganginn sem hef- ur farið yfir Ísland síðustu miss- eri. Þegar fréttirnar vísa í „hugleið- ingar veðufræðings“ hljómar það reyndar alltaf skemmtilega, jafnvel vinalega. en svo fatta ég að hann er að tala um áframhaldi éljagang. Ég bað örugglega um þetta með því að hugsa stundum „því það er eitthvað svo mikið heitt kakó og kósý þeg- ar élið lemur gluggana á húsinu“. Allavega, ég hugsaði ekki orð eins og „kósý“ og „kúr“ þegar ég fór og athugaði með stillansinn sem mág- ur minn hafði beðið mig að athuga rétt eftir kl. 23:00 í síðustu viku, hann var auðvitað fokinn á hlið- ana svo ég dró hræið upp að vegg í skjól. Ég prufaði svo að standa úti á veginum við húsið til að finna fyrir veðrinu (það brakaði í himninum) og þegar ég hafði lokið blásturs- meðferðinni í andlitinu (kinnar út- þandar eins og þegar maður stakk höfðinu út úr bílnum á faxabraut- inni á fullri ferð) þá sneri ég við. Ég fauk næstum út í móa, það var eins og hópur af fólki væri að ýta á bakið á mér, svona eins og þegar maður er búinn með alla gestrisni húsráðanda „ok, ok, eftir smá, ég er að fara, bídd´aðeins ég ætla að fá að segja eitt enn.“ Mér finnst þetta samt fínt að einhverju leyti því þegar storm- inn lægir og lognið kemur, brak- andi ferskt vetrarloftið leikur um mann, þá kann maður meir að meta slík augnablik. Þegar ég horfi nið- ur eftir Hvítá eftir hamaganginn er eins og ég sé að horfa á háskerpu skjáhvílu í Windows 10. Þú veist, þessi sem heitir Nature. Svo kem- ur náttúrulega hitinn og eyðilegg- ur allt, asahláka og fleiri glaðning- ar og snjórinn verður kúkabrúnn á sumum stöðum. Ákvörðunarfælni einkennir íslenskt veðurfar. fras- inn „það er ekki slæmt veður á Ís- landi heldur illa klætt fólk“ er það sem við Íslendingar segjum til að sætta sig við ástandið. Moskítóflug- urnar þrífast reyndar ekki í svona umhleypingaveðri svo það er ágæt- is punktur til að halda sig við þegar maður reynir að sætta sig við veð- urfarið. Nöldur pistlahöfundar Þórdís Kolbrún spurði í hálfkæringi hvenær höfuðborgarbúar hættu að kunna að aka í smá snjó. Auðvitað varð allt vitlaust. Það urðu marg- ir alveg rosalega móðgaðir, hvern- ig gat ráðherra í ríkisstjórn eigin- lega látið þetta út úr sér. Við erum heimsmeistarar í mörgu miðað við höfðatölu, jafnvel í því að miða allt við höfðatölu líka. en við erum ein- staklega góð í að móðgast, hvort sem það erum við sjálf eða fyrir hönd annara. Hvenær varð svo Stjörnufræði- Sævar að Bigga löggu, meina má ekkert gera í dag? Sprengja flug- elda einu sinni á ári, er það svona hræðilegt? erum við sem samfé- lag að breytast í Gaurinn í blokk- inni sem Jón Gnarr lék snilldarlega í fóstbræðrum. Pistillinn sem birtist á Vísi og kallast Land hreindýranna er frá- bær málsvari fyrir dýravernd. Þar er sagt að íslenzki hreindýrastofn- inn sé sá stærsti í evrópu, 6500 dýr. Ok, samanlagt eru um 135 þúsund dýr í Noregi og Grænlandi. Svo segir hann að það sé ljótt og ógeðs- legt að veiða dýr. Veiðimenn þurfa að lobbýa meira. Undankeppnin fyrir Söngva- keppnina er byrjuð aftur, svona til að auka enn á þunglyndið. Í alvöru mér finnst líf mitt styttast þegar þessi keppni byrjar (reyndar styttist í endann hjá okkur öllum á hverjum deginum sem líður í okkar lífi en þú veist hvað ég meina). Ég sakna þessara old school „executive dec- isions“ sem réðu ríkjum hér á árum áður, til dæmis hvernig ICY flokk- urinn fékk að fara með Gleðibank- ann út til Bergen. Þar voru eirík- ur Hauksson og félagar handvald- ir af stjórnendum sjónvarpsins og Þorgeir Ástvaldsson fékk að fljóta með. Nöldur er jóga fyrir sálina. Axel Freyr Eiríksson Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmar 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 7 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is Hönnum, prentum og merkjum fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki Smáprent Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is ekkert samfélag kemst lífs af án fegurðar, tungumáls og sögu. Þau samfélög sem ekki hafa varðveitt sögu sína eiga það á hættu að týn- ast og líða undir lok. Má þar nefna sorgarsögu þjóðfélaga í Ameríku og Afríku sem ekki höfðu tileink- að sér ritlistina og nýlenduveldin eyðilögðu hugsunarlaust, litu á in- fædda sem skynlausar skepnur og útrýmdu nánast menningu þeirra sem týndist í hafsjó gleymskunnar. Hver þjóð og hvert samfélag í þjóðunum þarf að varðveita sögu sína ef ekki á illa að fara eins og þeg- ar frumbyggjunum í Bandaríkjun- um var bannað að rækta menningu sína og höfðu nærri dáið út. fræði- mennirnir þurfa að skrifa söguna, skáldin, tónlistarmenn og aðrir listamenn þurfa að gæða svæði sitt lífi með verkum sínum, kennarar skólanna, tónlistarmenn og heim- ilin kenna svo nemendunum svo að héraðið verður að lifandi sam- stilltri heild. Svo varðveita söfnin söguna handa kynslóðunum. Söfn eru ekki geymsla listaverka, muna, bóka og skjala, heldur lifandi sam- band fræðimanna sem þar vinna og eru hið raunverulega líf safnsins. Á safninu finna allir muni og rit við sitt hæfi. fyrir fræðimennina eru söfnin líftaug til að semja fræði- rit og kennslubækur, þar finna meistara- og doktorsnemar efni í ritgerðir sínar og fólkið kemst í snertingu við sögu sína til að skilja nútímann betur. Söfn, listamenn, kennarar og fræðimenn verða lif- andi heild og sérfræðingar safnsins eru lykillinn að söfnunum og þau verða ein af líftaugum svæðisins. Án sögu og lista deyr hver byggð. Þetta virðast þeir sem rituðu safna- lögin sem gengu í gildi árið 2011 nr. 141 hafa gert sér grein fyrir. Þar er tilgangur safns að varðveita menningar- og náttúruarf Íslands og „tryggja að honum verði skil- að óspilltum til komandi kynslóða, veita fólki aðgang að honum og stuðla að aukinni þekkingu á þess- ari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn.“ (Safnalög nr. 141/2011). Tilefni þessa pistils er að lýsa reynslunni af Safnahúsinu í Borg- arnesi. Sögu þess kunnum við að- eins í molum en vitum hve gott og ómetanlegt starf Bjarna Bach- manns var. Síðar tóku við þær Guðrún Jónsdóttir og Jóhanna Skúladóttir sem hafa opnað starf- semi safnsins enn frekar með skipulagningu fyrirlestra auk þess sem tekið er á móti skólahópum sem undirrituð man enn vel eftir úr uppvextinum. er slíkt fræðslu- starf oft fyrsta reynsla verðandi samfélagsþegna af safnastarfi og er góð tilfinning að vita að við eig- um öll sameiginlega hlutdeild í. Vel er látið af bókasafninu fyrir þá sem þangað leita. fátt jafnast á við að hitta á söfnum fólk sem hefur yfirsýn yfir sögu héraðs og þekk- ir hvern hlut og hvert skjal líkt og þær Guðrún og Jóhanna gera. fyr- ir nokkrum árum leitaði ég undir- ritaður til safnsins til að sjá verk frænda míns sem ég bjóst við að finna þar í handriti og fékk að sjá það sem mig vantaði og var það í hinni bestu vörslu og ekki stóð á því að finna það sem ég bað um. Tónlistarskólinn í Borgarnesi er önnur glitrandi perlan í kaup- staðnum sem gerir staðinn lífvæn- legan og fagran eins og safnahúsið, gleymum ekki Landnámssetrinu. Þar sem ekki er söngur, önnur tón- list og leiklist og þar sem ekki er skrifað og ort, nennir fólkið ekki að vera og fer burt. Vonandi munu íbúarnir fága þessa gimsteina sína svo að lífið verði fagurt og gott og öllum þyki vænt um Borgar- nes, þennan meginkjarna Borg- arbyggðar. Þó að hér sé rætt um einn kaupstað á það sama við flesta staði á Íslandi. Listin og sagan ger- ir þá að góðum og fögrum heim- ilum íbúa sinna. Í því sambandi er Safnahúsið í Borgarnesi ómissandi hlekkur í þeirri keðju, keðju sem er mikilvægari en margan grunar. Það er ei á það hættandi að höggva á slíka hlekki. Edda Björnsdóttir kennari og Þor- steinn Þorsteinsson lífefnafræðingur. Pennagrein Söfnin, listin og menningin Stofnfundur femínistafélags Pí- rata var haldinn á laugardagskvöld. Hlutverk þess verður að standa fyr- ir málfundum, námskeiðum og ým- iss konar fræðslu í þeim tilgangi að efla málefnalega umræðu um fe- menísk málefni, sem og að styðja og efla þá einstaklinga sem starfa innan félagsins. fyrsti formaður femínistafélags Pírata er Dóra Björt Guðjónsdótt- ir, ritari er Helena Magneu Stef- ánsdóttir og gjaldkeri er Valgerð- ur Árnadóttir. Varamenn eru elín eddudóttir og Helgi Hrafn Gunn- arsson. -fréttatilkynning. Píratar stofna femínistafélag Nöldur er jóga fyrir sálina PISTILL

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.