Skessuhorn - 28.02.2018, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 9. tbl. 21. árg. 28. febrúar 2018 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
Verður 5. mars í:
FVA Kl. 10–12
Kynning á öllu
háskólanámi á Íslandi!
Allir velkomnir!
Besta bankaappið
á Íslandi
Samkvæmt könnun MMR
20 ÁR
Þessi ungu menn æfa og keppa í karate ásamt vöskum hópi iðkenda hjá Karatafélagi Akraness. Alla jafnan er æft í kjallara íþróttahússins við Vesturgötu en þegar vel
viðrar er ekkert því til fyrirstöðu að færa æfingar utandyra. Þá er áherslan lögð á aðra þætti svo sem „að harka af sér“. Meðfylgjandi mynd var nýverið tekin upp við
rætur Akrafjalls. Ljósm. Eydís Líndal Finnbogadóttir.
Síðdegis á sunnudaginn fór rúta
með ríflega þrjátíu manns útaf veg-
inum á Borgarfjarðarbraut og hafn-
aði á hliðinni. Hún fékk á sig sterk-
an hliðarvind, en veður var mjög
slæmt á þessum stað. Mikill við-
búnaður var vegna slyssins enda var
í fyrstu talið að margir væru alvar-
lega slasaðir. Svo reyndist þó ekki
vera og þurfti einungis að flytja tvo
á slysadeild, báða lítið slasaða. Til-
viljun réði því að bílstjóri rútunnar
hafði skömmu áður en þetta gerð-
ist brýnt í tvígang fyrir farþegum að
bílbelti væri skylda. Jafnframt leið-
beindi hann farþegunum, sem að
stærstum hluta voru frönsk skóla-
börn, hvernig ætti að bera sig að ef
rútan færi á hliðina. Enginn vafi er
að þetta átti þátt í hversu lítil meiðs
urðu á fólki. Sjá nánar bls. 10.
mm/ Ljósm. ge.
Öryggisbeltin höfðu allt að segja
Tilkynningar um tvö innbrot í
heimahús á Akranesi voru tilkynnt
til lögreglunnar á Vesturlandi síð-
astliðinn sunnudag. Að sögn lög-
reglu báru innbrotin það með sér að
vera vel skipulögð. Þjófarnir fóru í
báðum tilfellum í gegnum glugga á
svefnherbergjum og svo virðist vera
að leitað sé eftir skartgripum, pen-
ingum og verðmætum smáhlutum.
„Lögreglan á Vesturlandi vill biðla
til fólks að læsa tryggilega gluggum
og hurðum þegar hús eru yfirgefin
og vera vel vakandi fyrir óvenjuleg-
um mannaferðum við hús hvort sem
er að nóttu eða degi. Eins er fólki
bent á að hafa vakandi auga með ná-
grönnum sínum og ef yfirgefa á hús
til lengri tíma að fá nágranna til að
fylgjast með húsinu. Lögregla mun
herða eftirlit með íbúðahverfum
næstu daga,“ segir í tilkynningu til
lögreglu, sem beinir þessum tilmæl-
um til allra íbúa á Vesturlandi, jafn-
vel þótt fyrrgreind innbrot um liðna
helgi hafi verið á Akranesi, að íbúar
hvarvetna hafi auga með grunsam-
legum mannaferðum. mm
Skipulögð innbrot í heimahús