Skessuhorn


Skessuhorn - 28.02.2018, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 28.02.2018, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 28. fEBRúAR 20188 Talsvert er nú af loðnu austan við landið. Skip HB Granda voru í síð- ustu viku að veiðum og fékk Vík- ingur AK afla í Meðallandsbuktinni og var honum landað til frysting- ar á Vopnafirði. Hrognafyllingin í farminum reyndist 16-18%. ,,Það eru nokkrir dagar í að hrogna- fylling þessarar loðnu gefi tilefni til hrognaskurðar og frystingar á hrognum. Það er hins vegar loðna fyrir vestan sem er með mun meiri hrognafyllingu en þar, sem hún heldur sig, er búið að vera snarvit- laust veður marga undanfarna daga og það hefur því verið ómögulegt að stunda þar veiðar,” segir Albert Sveinsson skipstjóri á Víkingi á vef HB Granda fyrir síðustu helgi. mm Gæðaeftirlit með félagsþjónustu LANDIÐ: Sigríður Jóns- dóttir, sérfræðingur í vel- ferðarráðuneytinu, hefur verið skipuð til að fara með stjórn nýrrar gæða- og eft- irlitstofnunar á sviði félags- þjónustu. Nýja stofnunin mun annast stjórnsýslu og eftirlit með félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitar- félaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga. Undir félagsþjónustu sveit- arfélaga heyrir meðal ann- ars ýmis þjónusta sem snýr að börnum, fjölskyldum, fötluðu fólki, öldruðum og innflytjendum. Stefnt er að því að eftirlit með barna- verndarmálum sem nú er á hendi Barnaverndar- stofu verði einnig á ábyrgð stofnunarinnar og er unn- ið að gerð lagafrumvarps þess efnis í velferðarráðu- neytinu. Það var Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra, sem skipaði Sigríði í starfið. -mm Ný heitavatns- lögn í pípunum VESTURLAND: Veit- ur ohf., dótturfélag Orku- veitu Reykjavíkur, auglýsti í Skessuhorni í síðustu viku, eftir tilboðum í endurnýjun hitaveitulagnarinnar sem liggur frá Kjalardal norðan við Akrafjall og til Akraness. Tilboð í verkið verða opnuð 1. mars nk. klukkan 11. -mm Karlmenn og metoo AKRANES: Magnús Orri Schram, stjórnarmaður í UN Women, verður með fyrirlestur í Tónbergi Akra- nesi í dag, miðvikudaginn 28. febrúar, klukkan 19:30. Hann ætlar að fjalla um ábyrgð karlmanna í breytt- um heimi vegna metoo bylt- ingarinnar. Í byrjun janú- ar var Magnús Orri með vinnustofu fyrir stjórnend- ur Akraneskaupstaðar þar sem fólk var mjög ánægt með framtakið og kallaði eftir því að fleiri myndu fá sömu fræðslu. -mm ASÍ telur forsendur kjarasamninga brostnar LANDIÐ: „forsendur kjara- samninga eru brostnar,“ að mati miðstjórnar Alþýðusam- bands Íslands. Samkvæmt ákvæði í núgildandi samning- um koma þeir því til endur- skoðunar fyrir lok þessa mán- aðar. „Það er mat ASÍ, að óbreyttu, að forsendur um að launastefna kjarasamninganna hafi verið stefnumarkandi hafi ekki gengið eftir. Því er heim- ild til uppsagnar þeirra fyrir lok febrúar enn í gildi,“ segir í yfirlýsingu frá miðstjórn ASÍ. Vegna þessarar stöðu hefur verið ákveðið að boða til for- mannafundar aðildarfélaga ASÍ og fer hann fram í dag, mið- vikudaginn 28. febrúar; „þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.“ -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 17. - 23. febrúar. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 1 bátur. Heildarlöndun: 23.421 kg. Mestur afli: Eskey Óf: 23.421 kg í þremur róðrum. Arnarstapi: Engar landanir á tímabilinu. Grundarfjörður: 4 bátar. Heildarlöndun: 278.133 kg. Mestur afli: Geir ÞH: 112.566 kg í sex löndunum. Ólafsvík: 20 bátar. Heildarlöndun: 724.017 kg. Mestur afli: Bárður SH: 93.623 kg í níu róðrum. Rif: 17 bátar. Heildarlöndun: 789.277 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 124.360 kg í tveimur löndun- um. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 195.857 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 183.851 kg í þremur löndun- um. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Örvar SH - RIF: 93.432 kg. 19. febrúar. 2. Tjaldur SH - RIF: 87.010 kg. 21. febrúar. 3. Jákup B KG - ÓLA: 86.311 kg. 22. febrúar. 4. Rifsnes SH - RIF: 83.888 kg. 19. febrúar. 5. Þórsnes SH - STY: 69.278 kg. 21. febrúar. -kgk Þrjátíu og þrír nemendur útskrif- uðust nýverið frá Stóriðjuskóla Norðuráls, sautján úr grunnnámi og sextán úr framhaldsnámi. Stór- iðjuskólinn hefur verið starfrækt- ur frá árinu 2012 og hafa hundr- að nemendur útskrifast frá honum síðan. Tilgangur námsins er með- al annars sá að auka verðmæta- sköpun og styrkja samkeppnis- stöðu fyrirtækisins, auka öryggi starfsfólks við vinnu og efla starfs- ánægju. „Þetta er fimmti hópurinn sem útskrifast frá Stóriðjuskólan- um. Um 80% þeirra sem hafa út- skrifast eru í starfi hjá Norðuráli í dag á meðan aðrir hafa kosið að afla sér frekari menntunar. Norð- urál er í samstarfi við Símennt- unarmiðstöðina á Vesturlandi og fjölbrautarskóla Vesturlands um námið, en auk þess koma sérfræð- ingar frá Norðuráli að kennsl- unni,“ segir Sólveig Bergmann upplýsingafulltrúi Norðuráls. mm Útskrift frá Stóriðjuskóla Norðuráls Útskriftarhópur úr grunnnámi ásamt forsvarsmönnum fyrirtækisins. Útskriftarhópur úr framhaldsnámi ásamt forstöðumönnum fyrirtækisins. Styttist í að hrognavinnsla geti hafist Krapaflóð féll úr bæjarlæknum ofan við Augastaði í Hálsasveit í Borgarfirði aðfararnótt laugardags og olli skemmdum. flóðið hafnaði meðal annars á gámi sem stendur skammt austan við íbúðarhúsið á bænum, en gámurinn þessi hýsir viðkvæm rannsóknatæki sem Jap- anir eiga til að mæla norðurljós. Íbúðarhúsið slapp við flóðið, að sögn Snorra Jóhannessonar bónda, en vatn og aur náði að leka inn um óþétta hurð á gámnum og reiknar hann með að skemmdir hafi orðið á tækjum og tölvubúnaði sem inn í honum eru. Það muni þó koma betur í ljós þegar reynt verður að kveikja á þeim að nýju. Svipað flóð að magni til féll á bæjarhúsin á Augastöðum árið 1985 og þar áður er vitað um krapaflóð úr þessum læk árið 1930. Stífla kemur í lækinn í um 700 metra hæð og safnast þá vatn ofan við hana sem brýtur sér svo leið niður með miklum látum. Snorri segir að úrkoman á föstu- daginn hafi verið gríðarlega mik- il samhliða hlýindum og snjóbráð í fjallinu og úr Okinu. Hann segir að sökum hvassviðris hafi úrkomu- mælir sem er á bænum ekki náð að mæla úrkomumagnið þar sem úr- koman var lárétt þegar hún féll til jarðar í suðaustan rokinu. mm Krapaflóð skemmdu tæki til norðurljósarannsókna Hér er horft upp með farvegi krapaflóðsins og á gáminn með viðkvæmum rannsóknatækjum Japana á Augastöðum. Ljósm. sj.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.