Skessuhorn - 28.02.2018, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 28. fEBRúAR 20184
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Vanbúið vegakerfi
Síðdegis á sunnudaginn brunaði ég í bílferð vopnaður myndavél. Ástæðan
var sú að skömmu áður höfðu viðbragðsaðilar um allt sunnanvert Vestur-
land fengið útkall á hæsta viðbúnaðarstigi. útkallsboð hljómuðu ekki vel.
Rúta hafði fokið út af, lent á hliðinni og óttast var að fjöldi fólks hefði slas-
ast. Blessunarlega kom þó fljótlega í ljós að ríflega þrjátíu sem í rútunni
voru reyndust allir hafa verið í öryggisbeltum og meiðsli á fólki voru því
minniháttar. Sjaldan hef ég upplifað með jafn áþreifanlegum hætti hvað
tiltölulega einfaldur búnaður eins og öryggisbelti getur haft mikla og af-
gerandi þýðingu. Þegar manni varð litið inn í rútuna þar sem hún lá hálf
úti í móa var augljóst að stórslys hefði orðið ef farþegar hefðu ekki verið
spenntir.
Eftir þessa ökuferð á sunnudaginn situr annað í mér. Á leið minni frá
Akranesi og upp að Seleyri og þaðan upp Borgarfjarðarbraut að slysstað ók
ég þrívegis í gegnum foráttuvitlaust veður. Vindáttin var sunnanstæð. fyrst
voru gríðarlegir sviptivindar norðan við Akrafjall, þá við Seleyri og loks á
móts við Árdal. Á engum þessara staða hafa yfirvöld samgöngumannvirkja
séð ástæðu til að settir verði upp sjálfvirkir vind- eða veðurmælar. Ekki síst
á slysstaðnum sjálfum hafa aðstæður oft verið erfiðar og til marks um það
hefur malbiksbútur ítrekað fokið burtu á sama stað og rútan fauk. Þarna var
á sunnudaginn ekki stætt eins og a.m.k. þrír fréttamenn fengu að kynnast,
og þar á meðal ég, er við fukum út í móta. Þarf nú mikið til.
Viðvörunarbúnaður sem settur væri niður á þekkta óveðursstaði er í mín-
um huga afar vanmetið öryggistæki og alls ekki dýrt. Miðað við nútíma-
tækni, svo sem þráðlausar gagnasendingar og sólarsellu sem aflgjafa, ætti í
mínum huga að fjölga verulega slíkum búnaði. Þörfin er vaxandi ekki síst
því fólk sem ekki er staðháttum og aðstæðum kunnugt ferðast í auknum
mæli um vegina okkar. Heimafólk er miklu líklegra til að kunna að lesa í
veðrið og halda sig heima þegar verstu veðrin geisa. Vissulega hefur Veður-
stofa Íslands stórbætt þjónustu sína á undanförnum misserum með því að
gefa út tilkynningar um hættustig frá gulum og upp í rautt. Það hjálpar, en
mun aldrei koma í stað vindmæla og skilta við þjóðvegina, sem varað gætu
við óveðri.
Í áranna rás hefur þótt sjálfsagt að hið opinbera byggi vita og komi fyrir
innsiglingarljósum og öðrum öryggisbúnaði við strendur. Það er sjálfsagt
mál hjá þjóð sem byggt hefur lífsafkomu sína á sjósókn. Á sama hátt má
færa fyrir því gild rök að nú þegar ferðaþjónusta skapar mestar gjaldeyris-
tekjur í þjóðarbúið að ástæða sé til að auka öryggi vegfarenda, enda byggir
greinin á því að fólk komist slysalaust milli landshluta og staða. Vissulega
hefur vetrarþjónusta Vegagerðarinnar verið bætt nokkuð, en betur má ef
duga skal. Þjóðvegir okkar eru lélegir og í raun flestir vanbúnir til að bera
þá umferð sem um þá fer. Viðhaldi þeirra og öryggiskröfum hefur ekki ver-
ið sinnt. frá því er sagt í blaðinu í dag hver fjárþörfin er til vegamála. Sam-
gönguráðherra kynnti það í ríkisstjórn í liðinni viku. fram kemur í yfirliti
hans að tugmilljarða vantar í vegakerfið, jafnt í nýframkvæmdir, viðhald
sem öryggisbúnað. Nú mun reyna á styrk ríkisstjórnar til að takast á við
það verkefni að bæta samgöngumannvirki eins og augljóslega þarf. Á liðn-
um árum hefur skort þann pólitíska kjark að skattleggja ferðaþjónustuna til
að standa straum af vegagerð. Þar að auki skila tekjur af skattheimtu vegna
umferðar sér ekki til fjárfestinga í vegagerð. Með það súra epli sitjum við nú
eins og raunar má lesa um í nokkrum fréttum í blaðinu í dag. Við lifum jú í
landi þar sem veður eru válynd og aðstæður til aksturs geta beinlínis verið
hættulegar. Ónýtir og viðhaldslausir vegir gera ástandið svo enn verra. Af
þessu leiðir að stjórnvöld verða að hafa kjark til að hefja uppbyggingu vega-
kerfisins og hætta öllum fyrirslætti í því sambandi.
Magnús Magnússon
Leiðari Það er oft líf og fjör á bryggjum lands-
ins þegar bátar eru að koma að landi
með góðan afla. Áhöfnin á Bárði SH
frá Ólafsvík hefur til að mynda feng-
ið góða veiði síðustu vikurnar og
hefur landað allt að 36 tonnum yfir
daginn í tveimur löndunum. Þeg-
ar vel veiðist koma gjarnan margir á
bryggjurnar til þess að fylgjast með
löndun og spjalla við sjómennina og
ræða þá gjarnan aflabrögð á léttum
nótum. Það gerði þessi herramaður
sem tók létt spjall við áhafnarmeð-
limi á Bárði þegar báturinn kom að
landi í vikunni. af
Bryggjuspjall mikilvægur þáttur í
lífinu í sjávarþorpunum
Þegar sjúkraflutningamenn koma
á slysstað er einstaklingur sem þeir
bjarga oft án meðvitundar. Lækna-
vaktin og sjúkraflutningamenn hafa
því mælst til að fólk hafi tengiliðinn
„ICE“ í nafnaskrá í símum sínum.
Í tilkynningu þar að lútandi seg-
ir: „Sjúkraflutningamenn vita að
flestir sem slasast eru með síma á
sér. Þeir vita hins vegar ekki hver
er nákominn þeim slasaða. Því er
óskað að allir slái inn í símann sinn
a.m.k. einn aðila sem heitir ,,ICE“
(In Case of Emergency). Undir því
ætti nafn þess sem er nákominn
að standa og við hann ætti að hafa
samband ef eigandi símans lendir í
slysi. Ef viðkomandi vill hafa fleiri
nákomna í símanum þá gæti sá not-
að ICE1, ICE2, ICE3 og svo fram-
vegis. Þetta er einfalt, ókeypis og
getur skipt máli. „Við vonum að þú
gerir þetta og sendir þessi skilaboð
áfram til allra sem þú þekkir,“ segir
í tilkynningu.
mm
Aðstandendur skulu skráðir í símaskrá
- In Case of Emergency (ICE)
Kanna á hug íbúa Hvalfjarðar-
sveitar til fyrirkomulags í komandi
sveitarstjórnarkosningum, þ.e.
hvort þeim hugnist betur persónu-
kjör eða listakosning. Sveitarstjórn
hefur falið skrifstofu sveitarfélags-
ins að annast skoðanakönnunina
sem nú hefur verið send út. frá
þessu segir á vefsíðu Hvalfjarðar-
sveitar, í tilkynningu sem sveitar-
stjórn ritar undir. Skoðanakönun-
in er framkvæmd þannig að öllum
kjörgengum íbúum sveitarfélagsins
er sent bréf þar sem þeim er boð-
ið að taka þátt í könnuninni. Svar-
ið við henni skal berast á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar í meðfylgjandi
umslagi. Hefur frestur til að skila
inn svari verið framlengdur til 5.
mars. Þegar niðurstöður liggja fyr-
ir verða þær birtar á vefsíðu Hval-
fjarðarsveitar.
Könnun ekki bindandi
Eins og greint hefur verið frá í
Skessuhorni hefur a.m.k. einn
hópur íbúa í Hvalfjarðarsveit
ákveðið að standa fyrir lista í kom-
andi kosningum og fleiri íhuga
það samkvæmt heimildum Skessu-
horns. forgöngumaður að vænt-
anlegum framboðslista er Björn
Páll fálki Valsson. fyrir fjórum
árum síðan fór hann fyrir hópi
sem safnaði undirskriftum þar sem
skorað var á íbúa að styðja hug-
mynd að persónukjöri þá um vor-
ið, sem varð raunin þegar geng-
ið var til kjörklefa 2014. Í samtali
við Skessuhorn fyrir tveimur vik-
um síðan sagði hann reynsluna af
því fyrirkomulagi ekki hafa verið
nógu góða til að hann væri fylgj-
andi persónukjöri að nýju.
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns eru skiptar skoðanir með-
al íbúa um fyrirkomulag í kom-
andi kosningum. Nú hefur verið
ákveðið að kanna með formlegum
hætti hvort íbúum hugnast betur
persónukjör eða listakosning með
áðurnefndri skoðanakönnun. Rétt
er að halda því til haga að niður-
staða könnunar sem þessarar get-
ur aldrei orðið bindandi því kjör-
gengum íbúum verður alltaf frjálst
að bjóða fram lista líkt og lög um
sveitarstjórnarkosningar segja til
um. kgk
Kanna hvort íbúar vilji
persónukjör eða listakosningu
Í Hvalfirði. Ljósm. úr safni.