Skessuhorn - 16.05.2018, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 20184
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Nostalgía gamla
kverúlantsins
„Drottinn ég er kominn í þitt heilaga hús...“ Þannig hljóðar upphaf bænar
sem gjarnan er flutt við upphaf fermingarguðsþjónustu. Þetta rifjast upp
fyrir mér nú vegna þess að á mánudaginn voru rétt fjörutíu ár frá því ég
og jafnaldrar mínir í sveitinni staðfestum skírnina. Við athöfnina var verk-
efnum skipt milli hópsins og mér hafði verið úthlutað að fara með bænina
í upphafi samkomunnar. Á þeim tíma var maður afar óframfærinn; feim-
inn og skorti sjálfstraust sem heldur hefur aukist síðan. Ég lagði því á mig
að æfa lestur þessarar bænar svo rækilega að enn í dag get ég farið með
hana utanbókar.
Það var fremur kaldur og næðingssamur vordagur þarna í maí 1978.
Reyndar held ég að almennt hafi vorað seinna í þá daga en við eigum
að venjast í seinni tíð. Kannski eru það gróðurhúsaáhrifin? Kannski er
það líka sú staðreynd að bændafólk þess tíma átti mikið undir að hlýnaði
snemma á vorin, gróður tæki vel við sér, þannig að hægt væri að hefja vor-
verkin tímanlega. Þá eins og nú veðja menn á hvenær hlýnar að vori þegar
hrútunum er hleypt til ánna. Of mikil bjartsýni í þeim efnum gat komið
mönnum í koll, rétt eins og það gat verið þreytandi þegar kindurnar voru
að bera fram á sumar og gróður jafnvel farinn að spretta úr sér.
Fyrir fermingaraldur okkar hafði verið los á prestum í Reykholti. Ein-
hverjir komið til afleysinga um stuttan tíma, einn lasnaðist í miðri jóla-
hugvekju og dó í kjölfarið. En uppfræðari okkar jafnaldranna var korn-
ungur séra Hjalti Hugason. Vonandi ekki okkar vegna, en hann ákvað
að hætta prestsskap eftir þennan eina vetur og gerast fræðimaður. Síðar
þetta ár kom því nýr prestur á höfuðstað héraðsins og hefur sá ekki hvik-
að síðan. Ég gleymi aldrei þegar ég sá séra Geir koma akandi í hlað á
hárauðum Skoda Rapid; með upprúllað skeggið, pípuhatt á höfði, í lafa-
frakka og með pípu, rétt eins og Sherlock Holmes. Hann sló nýjan tón,
setti ný viðmið í tísku þess tíma sem þá hafði einskorðast við að saumað
var úr efnisvalinu í vefnaðarvörudeild Kaupfélagsins í Borgarnesi. Þarna
bárust því á svipstundu tískustraumar sem sveitafólkið hafði ekki kynnst
áður. Raunar var séra Geir eins og klipptur út úr tvö hundrað ára gömlu
tískublaði Familie Journal eða Hjemmet og var bara býsna mikill töffari.
Og er enn.
Nú fermingarathöfnin gekk vel, allavega í minningunni. Ekki leið yfir
neinn og engum svelgdist á messuvíninu. Eftir kalsasama myndatöku úti í
kirkjugarði var haldið heim og slegið upp veislu. Matur góður og fullt hús
fólks í alsparifötunum. Drengurinn alsæll með gjafirnar; hnakk frá for-
eldrunum, nokkra svefnpoka frá fjarskyldari og fjöldan allan af símkeytum
með frómum óskum. Um kvöldið var kíkt í fjárhúsið en seint um kvöldið
sofnað út frá It’s now or never sem Elvis söng svo undurblítt á fyrstu seg-
ulbandsspólunni sem ég eignaðist og gat spilað í nýja sambyggða útvarps-
og segulbandstækinu. Tæki þetta átti síðar eftir að verða dýrt á fóðrum,
át hverja segulbandsspóluna á fætur annarri og reyndist því dýrt í rekstri.
Engu að síður voru þessi sambyggðu tæki mikil raritet og færðu á svip-
stundu vestræna menningu inn á heimilin. Allt í einu var hægt að velja um
aðra tónlist en þá sem bauðst náðarsamlegast í viðtækinu þegar Jón Múli
og Pétur þulir hjöluðu við lýðinn á Gufunni.
Allt gekk þetta því að óskum og vafalítið hefur draumurinn snúist um
bænina sem greypt var í hugann ...til að lofa þig og ákalla, og allt það.
Magnús Magnússon
Leiðari
Sæferðir munu ekki bjóða upp á
ferjusiglingar milli Akraness og
Reykjavíkur í sumar. Ástæðan er sú
að fyrirtækinu tókst ekki að finna
ferju sem uppfyllir kröfur yfirvalda
um siglingar af þessu tagi. Sem
kunnugt er stóð fyrirtækið fyr-
ir áætlanasiglingum yfir Faxafló-
ann síðasta sumar. Um var að ræða
tilraunaverkefni í samvinnu við
Akraneskaupstað og Reykjavíkur-
borg. Var leigð ferja erlendis frá til
siglinganna. Fyrsta ferðin var farin
um miðjan júnímánuð og siglt var
fram yfir miðjan nóvember. Nú
er ljóst að ekkert verður af slíkum
siglingum þetta sumarið.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjar-
stjóri á Akranesi, segir þessa nið-
urstöðu ekki koma á óvart. Bæjar-
yfirvöld hafi verið í sambandi við
Sæferðir í vetur og fylgst með leit
þeirra að bát sem uppfyllir skilyrði
til siglinga af þessu tagi. „Þrátt fyr-
ir að byrjað hafi verið síðasta haust
að leita að báti sem uppfyllir öll
skilyrði sem sett eru af Samgöngu-
stofu þá hefur sú leit því miður
ekki borið árangur. Um tíma í vet-
ur voru þeir komnir með bát sem
síðan gekk þeim úr greipum,“ seg-
ir Sævar í samtali við Skessuhorn.
„Af því að um tilraunaverkefni er
að ræða er ekki auðveldlega hægt
að finna báta sem uppfylla þessar
ströngu kröfur sem gilda um sigl-
ingar af þessu tagi hérlendis, sem
og okkar kröfu um að siglingin
taki ekki meira en hálftíma,“ seg-
ir hann.
Þrátt fyrir að ekkert verði af
siglignum á komandi sumri segir
Sævar að um langtímaverkefni að
ræða í huga bæjaryfirvalda. „Meg-
inatriðið er að þessi samgöngubót
verði til staðar í framtíðinni, sér-
staklega þegar uppbygging á Sem-
entsreit verður komin vel á veg.
Þegar þar verður risin byggð og
hótel niður við höfnina er alveg
skýrt í mínum huga að sigling-
ar milli Akraness og Reykjavíkur
verði hlutur sem við Skagamenn
getum nýtt okkur,“ segir hann.
„Við lærðum heilmikið á tilrauna-
siglingunum í fyrra. En ég tel að
við þurfum að hafa að minnsta
kosti tvö ár undir í tilrauninni til
að safna nægilegum upplýsingum
áður en ákvörðun verður tekin um
siglingar í framtíðinn,“ segir Sæv-
ar Freyr Þráinsson að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Engin Akranesferja mun sigla í sumar
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi síðastliðinn mánudag
að setja í auglýsingaferli tillögur að
breytingu á deiliskipulagi og aðal-
skipulagi Borgarbyggðar sem gerir
ráð fyrir að heimila skotæfingasvæði
í landi Hamars, ofan við Borgarnes.
Sveitarstjórn staðfestu þannig af-
greiðslu umhverfis-, skipulags- og
landbúnaðarnefndar frá því í síðustu
viku. Sveitarstjórn samþykkti með
sjö atkvæðum gegn tveimur þessa
niðurstöðu málsins, sem vissulega er
með þeim umdeildari síðari ár. Eft-
ir að lýsing að skipulaginu hafði ver-
ið auglýst mótmæltu 123 einstak-
lingar skipulagsbreytingunni með
formlegum hætti, bæði einstakling-
ar, félagasamtök og aðrir hagsmuna-
aðilar.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð
fyrir að breyta landnotkun 16,7 ha
svæðis í landi Hamars úr landbún-
aði í opið svæði til sérstakra nota.
Gert er ráð fyrir sjö bílastæðum,
félagshúsi, skeetvelli, riffilbraut og
göngustíg frá bílastæði að skeetvelli
og meðfram riffilbraut. Þá verður
ný reið- og gönguleið lögð 400 m
sunnan við væntanlegt skotæfinga-
svæði. Nýr aðkomuvegur verður
lagður að svæðinu, frá Bjarnhólum
sunnan efnistökusvæðis og verður
samnýttir með núverandi reið- og
gönguleið. Breytingin er ekki háð
umhverfismati skv. lögum um mat á
umhverfisáhrifum.
mm
Sveitarstjórn samþykkti auglýsingu
vegna skotæfingasvæðis
Sveitarfélagið Borgarbyggð stend-
ur í þessari viku fyrir þremur sam-
eiginlegum framboðsfundum allra
framboða sem bjóða fram til sveit-
arstjórnar 26. maí. Á mánudag-
inn var fundur í Logalandi, þar
sem meðfylgjandi myndir voru
teknar. Í gærkvöldi var svo fund-
ur í Lindartungu en annað kvöld,
fimmtudaginn 17. maí, verður
fundur klukkan 20:30 í Hjálm-
akletti í Borgarnesi. Fyrirkomulag
fundanna er að fulltrúar framboð-
anna halda samanlagt átta mín-
útna framsöguræður og var dreg-
ið um röð þeirra. Fundunum stýr-
ir Hrefna Bryndís Jónsdóttir at-
vinnuráðgjafi en Gunnlaugur A
Júlíusson gegnir stöðu tímavarð-
ar. Eftir framsöguerindi er fundar-
gestum boðið að koma sér fyrir við
borð, sem frambjóðendur skiptast
á um að sitja við. Þannig sköpuð-
ust líflegar umræður um ólík mál
sem snerta íbúa.
Á fundinum í Logalandi var
þokkaleg mæting í ljósi þess að
mikill annatími er nú í sveitum
landsins og margir sem ekki gefa
sér tíma til fundahalda. Framboðs-
ræður voru málefnalegar og ljóst
að ekki greinir mikið milli fram-
boða í málefnum og áherslum fyrir
kosningarnar. Í Borgarbyggð bjóða
fram fjórir listar; Framsóknar-
flokks, Sjálfstæðisflokks, Samfylk-
ingar og óháðir og Vinstri hreyf-
ingarinnar græns framboðs. Venju
fremur hátt hlutfall frambjóðenda
eru að stíga sín fyrstu skref í for-
ustu stjórnmálanna og fyrirséð að
mikil endurnýjun verður í sveitar-
stjórn.
mm
Þrír framboðsfundir í Borgarbyggð