Skessuhorn


Skessuhorn - 16.05.2018, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 16.05.2018, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 201812 Eins og tíðkast á vorin þá fara nem- endur leikskólans Sólvalla í Grund- arfirði í sveitaferðir og komast í kynni við almenn sveitastörf og sveitalíf- ið. Árgangur 2013 var í heimsókn á bænum Kverná við Grundarfjörð þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti við. Þar voru krakkarnir að gefa hestunum og kindunum brauð. Svo var farið og kíkt á lömbin, hænurnar og önnur dýr áður en hópurinn fór aftur á leikskólann reynslunni ríkari. tfk Heimir Hallgrímsson landsliðs- þjálfari, Helgi Kolviðarson aðstoð- arlandsliðsþjálfari og Guðmund- ur Hreiðarsson markmannsþjálfari keyptu fyrsta álfinn í álfasölu SÁÁ sem hófst í gær. Það voru Kolfinna, Dóróthea og Embla Margrét sem sáu um söluna en álfurinn í ár er í landsliðslitunum í tilefni af þátt- töku Íslands í HM í Rússlandi. Álfasalan stendur fram á sunnu- dag en hún er stærsta fjáröflunar- verkefni SÁÁ ár hvert. „Frá upp- hafi hefur samfélagið tekið álfin- um opnum örmum og hafa tekj- urnar skipt sköpum í þjónustu við ungt fólk. SÁÁ hvetur Íslendinga til að halda áfram að kaupa álfinn og stuðla þannig að því að ungt fólk geti náð bata og orðið virkir þátt- takendur í samfélaginu,“ segir í til- kynningu frá SÁÁ. mm Álfurinn valinn í byrjunarliðið Á síðasta fundi sitjandi sveitar- stjórnar í Borgarbyggð, fyrir kosn- ingar sem verða eftir tíu daga, var samþykkt breyting á deiliskipulagi í Bjargslandi í Borgarnesi sem ger- ir ráð fyrir að hægt verði að byggja 80 nýjar íbúðir. Af þeim eru 16 lóð- ir fyrir einbýlishús, 32 lóðir fyrir raðhús, tvær lóðir fyrir parhús og tvær lóðir fyrir fjölbýlishús með 14 íbúðum í hvoru húsi. mm Deiliskipulag gerir ráð fyrir 80 nýjum lóðum Meðfylgjandi mynd var tekin á ráðhúsströppunum á mánudag af sveitarstjórn og Gunnlaugi sveitarstjóra. Síðastliðinn laugardag var Háskólalestin á ferðinni í Borgarnesi. Í Hjálmakletti var hald- in vísindaveisla þar sem gestir gátu spreytt sig á alls kyns þrautum, tækjum og tólum. Með- al þess sem boðið var upp á var speglagald- ur, leikir með efni, ljós og hljóð, undarlegar fornleifar og margt fleira. Þegar ljósmyndari Skessuhorns leit við voru dágóður hópur af ungu og áhugasömu fólki að kynna sér það sem í boði var. Þetta er áttunda árið í röð sem Háskóla- lestin fer um landið. Á þeim tíma hafa á fjórða tug sveitarfélaga verið heimsótt um allt land og boðið upp á lifandi og skemmtilega vís- indamiðlun fyrir alla aldurshópa. Markmiðið er að auka áhuga yngri kynslóðarinnar fyrir tækni og vísindum. mm Háskólalestin heillaði unga fólkið Sólvellir í sveitaferð Þessi rolla þurfti að hafa fyrir því að nálgast brauðið en sumar gjafahendurnar voru pínu smeykar. Þessi naut góðs af brauðmetinu úr hendi krakkanna. Það er engu líkara en að að þetta hressa hross sé að reka upp hrossahlátur. Spurning hvort krakkarnir hafi verið að fara með gamanmál. Nú er sauðburður í fullum gangi og miklar annir hjá sauðfjárbænd- um víðsvegar um landið. Á bæn- um Bakkakoti Stafholtstungum bar ærin Þerna fimm lömbum fyrr í þessari viku og öll þeirra eru við góða heilsu. Þerna er afar frjósöm kind en í þau fimm skipti sem Þerna hefur borið hafa komið samtals 17 lömb. „Við finnum góðar fóstur- mæður fyrir tvö eða þrjú þessara lamba og Þerna fær að halda hinum hjá sér. Það er alltof mikið fyrir ánna sjálfa að vera með fimm lömb og þá verða lömbin heldur ekki mjög væn í haust,“ segir Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti. arg Þerna bar fimm lömbum Þerna með lömbin sín fimm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.