Skessuhorn - 25.07.2018, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 30. tbl. 21. árg. 25. júlí 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
20 ÁR
Lúsina burt!
Augndropar!
Fáir sólardagar hafa einkennt sum-
armánuðina hingað til og ætla má að
það hafi stór áhrif á daglegan rekstur
garðyrkjufólks. En sú er ekki raunin
hjá Sædísi Guðlaugsdóttur sem rek-
ur gróðrarstöðina Gleim-mér-ei í
Borgarnesi. „Veðrið hrjáir mig ekki.
Plönturnar mínar eru bragglegar og
fínar. Það eina sem veðrið hefur haft
áhrif á er að fólk fer síður í matjurta-
garðana sína því jörðin er búin að
vera svo köld og blaut,“ segir hún og
nefnir að töluvert minni grænmetis-
sala hafi verið í ár. „Ég er svo ein-
staklega heppin með kúnnahópinn
minn. Þetta er stór og stabíll hópur
sem kemur til mín hvernig sem tíð-
in er og því er lítil sem engin niður-
sveifla í rekstrinum.“
Sjá nánar bls. 14.
FISK Seafood ehf. í Grundar-
firði hefur ákveðið að segja upp 19
starfsmönnum við rækjuvinnslu
frá og með næstu mánaðamót-
um. Tveimur að auki var boð-
in vinna áfram við að taka niður
tæki og undirbúa sölu þeirra. Í til-
kynningu frá FISK Seafood segir
að veiðar og vinnsla rækju hafi átt
erfitt uppdráttar hérlendis á und-
anförnum árum og sé ákvörðunin
tekin í ljósi langvarandi taprekst-
urs í Grundarfirði; „sem ekki virð-
ist gerlegt að vinda ofan af við nú-
verandi aðstæður,“ eins og segir
í tilkynningunni. FISK Seafood
kveðst harma þessar málalyktir
en vekur athygli á að rekstrarum-
hverfi veiða og vinnslu rækju á Ís-
landi hefur breyst verulega á und-
anförnum árum með óhjákvæmi-
legum samdráttaráhrifum. For-
svarsmenn fyrirtækisins vildu,
þegar Skessuhorn leitaði eftir því
í byrjun þessarar viku, ekkert láta
hafa eftir sér um framhald annarr-
ar starfsemi FISK í Grundarfirði.
Bæjarráð Grundarfjarðar var til-
kynnt um uppsagnirnar í síðustu
viku. Í yfirlýsingu bæjarráðs segir
að uppsagnirnar séu litnar alvar-
legum augum; „og hefði kosið að
fyrirtækið hefði haft samráð við
bæjaryfirvöld þannig að mögulega
hefði mátt undirbúa mótvæðisað-
gerðir.“
Sjá nánar bls. 2.
Þrastarungar vilja matinn sinn og það refjalaust. Þessari skemmtilegu mynd náði Áskell Þórisson í síðustu viku en hann býr á Ægissíðu við Innnesveg í Hvalfjarðarsveit.
Hreiðrið er skammt frá heimili Áskels og fylgist hann því vel með uppvexti og framgangi nágranna sinna.
Fín sala í sumarblómum
þrátt fyrir úrkomutíð
Reiðarslag fyrir atvinnulífið